Fleiri fréttir

Bandamenn hafa unnið góða sigra

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, fullyrðir að hermenn bandamanna í Afganistan hafi unnið góða sigra gegn uppreisnarsveitum talibana í landinu. Hann segir þó að baráttunni sé langt frá því lokið.

Leiðtogarnir verða að hætta að misnota aðstöðu sína

Leiðtogar þróunarríkjanna verða að hætta að misnota aðstöðu sína á kostnað efnahagslífsins og nýta þróunaraðstoð Vesturlandanna með skynsömum hætti. Þetta segir Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sem í dag heimsótti Afríkuríkið Gana.

Mannskæð sprengjuárás í Írak

Fjórir óbreyttir borgarar og að minnsta kosti 40 særðust þegar bílasprengja sprakk á markaði í ú útjaðri Mosul í norðurhluta Íraks í dag.

Féll niður virki á tónlistarhátíð

Breskur karlmaður á þrítugsaldri lést í dag eftir að hafa fallið af brún gamals virkis í borginni Novi Sad norðan af Belgrad, höfuðborg Serbíu. Í virkinu, sem stendur í hlíð við miðborgina, fer fram árleg tónlistarhátíð. Slysið varð í gærkvöldi en maðurinn lést af sárum sínum á sjúkrahúsi í dag. Ekki er vitað um tildrög slyssins.

Yfir 300 farþegar þurftu að yfirgefa flugvél í skyndi

Meira en 300 farþegar breiðþotu flugfélagsins British Airways þurftu að yfirgefa vélina í skyndi í morgun eftir að reykur kom upp í farþegarými hennar rétt eftir að hún ók frá flugstöðvarbyggingunni á flugvellinum í Phoenix í Bandaríkjunum.

Íranir sýna samningsvilja

Íranar eru að útbúa umfangsmikið skjal þar sem fjallað eru um stjórnmál, öryggismál og alþjóðamál, til þess að leggja fyrir vestrænar þjóðir. Í skjalinu er fjallað ítarlega um sjónarmið Írana í þessum málaflokkum.

Castro spáir valdaránum

Fidel Castro fyrrverandi leiðtogi Kúbu spáir því að ef Manuel Zelaya forseti Honduras fái ekki að taka aftur við embætti sínu muni hvert valdaránið af öðru verða framið í Suður-Ameríku.

Þúsundir húsa gjöreyðilagðar

Meira en 400 þúsund manns þurftu að yfirgefa heimili sín eftir að harður jarðskjálfti varð í suðvestanverðu Kína á fimmtudag. Hamfarirnar kostuðu einn mann lífið og hundruð manna slösuðust, þar af nokkrir tugir alvarlega.

Segir efnahagshruni afstýrt

Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði við lok G8-fundarins á Ítalíu í gær að líklega hefði tekist að afstýra efnahagshruni í heiminum, sem hefði haft skelfilegar afleiðingar. Enn væri þó langt í varanlegan bata.

Maður stangaður til bana í Pamplona

Maður lést eftir að naut stangaði hann í hinu árlega nautahlaupi í spænsku borginni Pamplona í morgun. Nautið hljóp manninn niður og hafði svo horn í síðu hans.

Franskir ferðamenn verstir í heimi

Þeir eru hrokafullir, þrjóskir og tala yfirleitt ekkert tungumál nema sitt eigið. Hverjum er lýst þarna? Auðvitað Fransmönnum.

Útfararstjórar grófu upp lík

Fjórir útfararstjórar í Chicago hafa verið ákærðir fyrir að grafa upp mörg hundruð lík í þeim tilgangi að selja grafirnar aftur.

Reyndi að myrða nemanda sinn

Grunnskólakennari í Mansfield á Englandi er í haldi lögreglu, grunaður um að reyna að myrða einn nemenda sinna og stórslasa annan.

Stálu úr bensínsjálfsölum

Tveir menn, sem brutu upp sjálfsala á nokkrum bensínstöðvum í bænum Fredericia á Jótlandi í nótt eru enn ófundnir eftir að þeir komust undan lögreglu í miklum eltingarleik um götur bæjarins en mennirnir brugðu meðal annars á það ráð að aka á lögreglubíl og skemma hann til að komast undan.

Kínverjar minnast Jacksons

Kínverjar hyggjast koma sér upp eftirlíkingu af búgarði Michaels Jackson heitins, Neverland, á eyju nálægt Shanghai til að heiðra minningu poppgoðsins.

Gatt-viðræðum verði hraðað

Leiðtogar átta auðugustu ríkja heims og fimm upprennandi efnahagsvelda samþykktu í gær að GATT-viðræðunum um aukið frelsi í heimsviðskiptum verði hraðað. Nú er stefnt að því að ljúka þeim á næsta ári, en upphaflega átti þeim að ljúka með samningi árið 2004.

Hökkuðu sig inn í farsíma stórstjarna og stjórnmálamanna

Breska blaðið The Guardian segir fjölmiðlafyrirtækið sem meðal annars gefur út æsifréttablöðin News of the World og The Sun í Bretlandi hafa hakkað sig inn í farsíma þúsundir manna, meðal þeirra séu stórstjörnur og stjórnmálamenn.

Ekki sáttur með samþykktina um loftslagsmál

Ekki var gengið nógu langt í loftlagssáttmála sem leiðtogar helstu iðnríkja heims samþykktu í gær. Þetta segir Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna. Hann segir samninginn pólitískt og siðferðilega mikilvægan fyrir framtíð mannkynsins, jafnvel fyrir framtíð jarðarinnar.

Iðnríkin ná samkomulagi í loftslagsmálum

Fulltrúar átta stærstu iðnríkja heimsins, svokallaðra G-8 ríkja, náðu í gær samkomulagi um sameiginlegar lausnir í loftslagsmálum þegar samþykkt var að vinna að því að draga úr hlýnun jarðar þannig að hún yrði um 2 gráður á Celsius miðað við upphaf iðnbyltingarinnar og draga úr gróðurhúsaáhrifum um helming á næstu fjörtíu árum.

Berst áfram gegn spillingu

Susilo Bambang Yudhoyono, forseti Indónesíu, þykir nokkuð öruggur með endurkjör eftir fyrstu talningu atkvæða úr forsetakosningum, sem haldnar voru í gær.

Hu mætti ekki á leiðtogafund

Hu Jintao, forseti Kína, sneri heim frá Ítalíu í gær vegna átakanna í Xinjiang-héraði. Hann mætti því ekki á leiðtogafund G8-ríkjanna, þar sem þau átök hefði væntanlega borið á góma.

Demókrati aðstoðar Karzai

Bandarískur demókrati, fyrrverandi kosninga-ráðgjafi Bills Clinton, starfar nú með Hamid Karzai, forseta Afganistans, og reynir að tryggja honum sigur í forsetakosningunum, sem haldnar verða í næsta mánuði.

Ganga ungrar konu stöðvuð

Lögreglan á Gasa stöðvaði för ungrar konu og manns, sem gengu saman á ströndinni. Maðurinn var handtekinn ásamt tveimur félögum hans og urðu þeir fyrir barsmíðum af hálfu lögreglunnar. Þetta fullyrðir bæði konan og einn mannanna.

Farþegi lést eftir Íslandsferð

Farþegi skemmtiferðaskipsins The Marco Polo lést á mánudag er skipið var á leið til hafnar í Englandi eftir ferð um Ísland. Talið er að maðurinn, sem var á áttræðisaldri, hafi fengið hjartaáfall.

Danir skammast sín fyrir þjóðerni sitt

Næstum sjötti hver Dani heldur því leyndu að hann sé frá Danmörku þegar að hann ferðast erlendis. Þetta sýnir viðhorfskönnun sem gerð var fyrir danska blaðið metroXpress. Þá segist tíundi hver Dani fá neikvæð viðbrögð þegar hann segir frá því erlendis að hann sé danskur.

Ákærður fyrir að stela aðgangskóða Goldman Sachs

Fyrrverandi starfsmaður Goldman Sachs-fjárfestingarbankans, sem ákærður er fyrir að stela aðgangskóða að viðskiptagagnagrunni bankans, hefur verið látinn laus gegn 750.000 dollara tryggingu en réttarhöldin hefjast 3. ágúst.

Dýrustu bílastæði heims í London

Lundúnabúar njóta þess vafasama heiðurs að greiða hæstu bílastæðagjöld í heimi. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar ástralska ráðgjafarfyrirtækisins Colliers International sem náði til allrar heimsbyggðarinnar.

Glæpatvíburar í Varde loks sakhæfir

Tvíburabræður á unglingsaldri í danska bænum Varde hafa haldið samfélaginu þar í heljargreipum árum saman með skemmdarverkum og annarri andfélagslegri hegðun.

Kim slappur í sjónvarpsávarpi

Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, var fölur og fár þegar hann ávarpaði þjóð sína í sjónvarpi í morgun í tilefni þess að 15 ár eru í dag liðin frá því að faðir hans, Kim Il-sung, sem hélt um valdataumana á undan honum, lést árið 1994.

Dæmdur frá flöskunni

Breti á fimmtugsaldri hefur hlotið dóm sem bannar honum að vera drukkinn á almannafæri á Englandi og í Wales næstu sjö árin, eða til ársins 2016.

Óska eftir að ráða norn

Ferðamannastaðurinn Wookey Hole Caves í Somerset á Englandi auglýsir nú eftir norn og býður jafnvirði rúmra 10 milljóna króna í árslaun fyrir stöðuna.

Engin skýring á voðaverkunum

Íbúum í smábænum Gaffney í Suður-Karólínu létti mjög þegar lögreglu tókst á mánudag að fella fjöldamorðingjann, sem hafði hrellt bæjarfélagið dögum saman með fimm morðum af handahófi.

Leiðtogar hittast og ræða heimsmálin

Leiðtogar G8-ríkjanna koma saman í jarðskjálftabænum L‘Aquila á Ítalíu í dag, þar sem þeir ætla að ræða heimsmálin og snæða saman næstu þrjá daga.

Minningarstund um Michael í beinni

Nú er rétt að hefjast minningarstund um Michael Jackson, einn dáðasta söngvara seinni tíma. Jackson var jarðsettur í Forest Lawn kirkjugarðinum í Los Angeles fyrr í dag og hófst opinber minningarathöfn að því loknu. Athöfnin er sýnd í beinni á Stöð 2 extra og hér á Vísi.

Kröfu móður Jacksons hafnað

Dómari í Los Angeles hafnaði í gær kröfu Katherine Jackson, móður poppsöngvarans, um að hún yrði gerð að fjárhaldsmanni í dánarbúi Jackson. Þess í stað skipaði dómarinn lögfræðinginn John Branca og tónlistarútgefandann John McClain fjárhaldsmenn dánarbúsins. Í erfðaskrá söngvarans frá árinu 2002 kemur fram sú ósk hans að Branca og McCain meðhöndli eignir hans falli hann frá. Við dómsúrskurðinn í gær kom fram að eignir dánarbúsins væru metnar á 500 milljón dollara. Það eru um 64 milljarðar króna.

Hitlerstré veldur deilu í pólskum bæ

Eikartré í bænum Jaslo í Suðaustur-Póllandi, sem á sínum tíma var gróðursett á afmælisdegi Adolfs Hitler árið 1942 honum til heiðurs, verður að öllum líkindum öxinni að bráð fái bæjarstjórinn að ráða.

Sjá næstu 50 fréttir