Fleiri fréttir

Viðvörun til Vesturlanda

Ali Khameini, æðsti leiðtogi Írans, segir að afskipti leiðtoga Vestur­landa af stjórnmálum í Íran geti haft neikvæð áhrif á samskipti Írans við þessi lönd.

Hátt á annað hundrað látnir

Að minnsta kosti 156 manns biðu bana og yfir 800 særðust á sunnudag í harðvítugum átökum, sem brutust út í kjölfar mótmælasamkomu í Urumqi, höfuðborg Xinjiang-héraðs vestast í Kína.

Sömdu um fækkun kjarnorkuvopna

Að minnsta kosti 156 manns biðu bana og yfir 800 særðust á sunnudag í harðvítugum átökum, sem brutust út í kjölfar mótmælasamkomu í Urumqi, höfuðborg Xinjiang-héraðs vestast í Kína.

Ætlar að gera aðra tilraun

Lokað var á alla flugumferð á aðalflugvellinum í Tegucigalpa, höfuðborg Hondúras, í gær. Kvöldið áður höfðu stjórnvöld meinað lendingu flugvélar með Manuel Zelaya, hinum brottrekna forseta landsins, innanborðs.

Telja sig hafa náð raðmorðingjanum

Lögregla telur að innbrotsþjófur sem skotinn var og drepinn af lögreglu í Norður-Karólínu fylki í dag sé raðmorðinginn sem leitað er að vegna fimm morða í Suður-Karólínu. Maðurinn var skotinn af lögreglu þegar hann reyndi að brjótast inn á heimili í Gastonia en það er einungis tæpum 50 kílómetrum frá Gaffney þar sem morðin áttu sér stað.

Sjö látnir af svínaflensu í Bretlandi

Karlmaður og ungabarn eru nú látin eftir að hafa smitast af svínaflensunni svokölluðu. Bæði áttu þau við önnur heilsufarsvandamál að stríða.Fregnir af þessum andlátum koma einungis nokkrum klukkustundum eftir að staðfest var að níu ára barn lést eftir að hafa smitast. Nú hafa sjö manns látist af svínaflensu í Bretlandi.

Undirrituðu bráðabirgðasamkomulag

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og Dimitry Medvedev forseti Rússlands, hafa náð komist að bráðabirgðasamkomulagi um takmörkun kjarnorkuvopna á fundi sem stendur yfir í Moskvu milli leiðtoganna tveggja.

Meint vopnaflutningaskip væntanlegt til N-Kóreu

Norðurkóreska flutningaskipið Kang Nam er væntanlegt til hafnar í Nampo í Norður-Kóreu í dag en Bandaríkjamenn hafa grun um að skipið flytji hluti til smíði langdrægra eldflauga.

Á annað hundrað látnir í óeirðum í Kína

Að minnsta kosti 140 eru látnir og hátt í þúsund slasaðir eftir óeirðir í Xinjiang-héraðinu í Kína í gær. Þar kom til átaka milli úigúia og Han-Kínverja en þeir fyrrnefndu telja sér mismunað í kínverska samfélaginu.

Segir Jackson hafa dáið úr áhyggjum

Áhyggjur og streita vegna mörg hundruð milljóna dollara skuldabagga drógu Michael Jackson til dauða. Þetta segir einkaþjálfari hans, Lou Ferrigno, og vísar því alfarið á bug að söngvarinn hafi verið illa á sig kominn vegna lyfjaneyslu.

Bændur uggandi eftir beljudóm

Breskir kúabændur óttast hið versta eftir að héraðsdómur þar í landi úrskurðaði konu í vil sem hafði orðið fyrir beljuárás.

Ákærður fyrir að myrða mömmu sína

Hinn tuttugu og sex ára gamli Wehinmi Metsagharun, sem býr í Bretlandi hefur verið ákærður fyrir að myrða móður sína. Líkami hennar fannst á heimili hennar í Kenbury Gardens í Londin þann fjórða janúar.

Stálin stinn á milli stórveldanna

Obama Barrack, forseti Bandaríkjanna er kominn til Rússlands í opinbera heimsókn en þegar er komið babb í bátinn. Stuttu eftir að hann lenti bárust þær fregnir að mögulegt væri að Rússar myndu slíta viðræðum um kjarnorkuvopn.

Þrettánda heppnasta manneskja í heimi

Unglingstúlkan Baya Bakari er ein af þrettán heppnustu manneskjum veraldar en hún lfiði ein af hið hræðilega flugslys sem átti sér stað í síðustu viku nærri Kómoro-eyjunum.

Fjölskyldan vill steypa Jackson í jörðina

Fjölskylda poppgoðsins Michael Jacksons vill steypa líkkistu hans í jörðina þannig að brjálaðir aðdáendur geti ekki grafið kistuna upp eða vanvirt gröf hans að öðru leytinu til.

Kynlífskeppni á herskipi til rannsóknar

Áströlsk yfirvöld rannsaka nú skipverja á herskipinu HMAS Success en staðfestur grunur leikur á að skipverjar stundi heldur nýstárlega kynlífskeppni um borð.

Brown vill refsa Burma

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, útilokar ekki að frekari refsiaðgerðir gagnvart Burma eftir að ríkisstjórn landsins meinaði Ban Ki Moon, framkvæmdarstjóra Sameinuðu Þjóðanna, að hitta leiðtoga stjórnarandstöðunnar, Aung San Suu Kyi.

Fannst fjórum árum eftir andlát

Hin áttatíu og níu ára gamla Isabella Purves fannst látin á heimili sínu í Edinborg í Skotalandi fyrir stuttu. Aftur á móti fannst hún fjórum árum eftir að hún lést.

Sara Palin segir af sér

Sarah Palin, fyrrum varaforseta-frambjóðandi repúblikana, hefur sagt af sér sem fylkisstjóri Alaska. Afsögnin kemur eins og blaut tuska í andlitið á samflokksmönnum hennar vestra en sextán mánuðir eru eftir af kjörtímabili hennar.

Bandaríkjaher færir sig inn í þorpin

Bandarískir hermenn færðu sig inn í bæi í Suður-Afganistan í gær, á öðrum degi mikillar sóknar gegn uppreisnarmönnum. Lítillar mótstöðu hefur gætt frá yfirvöldum í bæjunum eða talíbönum, sem eru mjög sterkir á þessum slóðum.

Tvö börn létust í stórbruna í Lundúnum

Tvö börn eru látin eftir að eldur kom upp í háhýsi í Camberwell sem staðsett er í suð-austur Lundúnum. Tíu manns eru særðir eftir eldinn sem kom upp í tólf hæða húsi við Havil stræti.

Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna heimsótti Suu Kyi

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kom til Mjanmar, áður Búrma, í dag. (LUM) Hann ætlar í heimsókn sinni að þrýsta mjög á um það við herstjórn landsins að hún láti stjórnarndstöðuleiðtogann Aung San Suu Kyi lausa úr fangelsi.

Segja ómögulegt að stöðva útbreiðslu svínaflensu

Framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar segir ómögulegt að stöðva útbreiðslu svínaflensunnar um allan heim. Bretar spá því að hundrað þúsund ný tilfelli greinist á degi hverjum frá lokum sumars.

Rændi tölvubanka fyrir sjúkrareikningum sonarins

Ebank bankinn í íslenska tölvuleiknum EVE Online hefur vakið mikla athygli á heimsvísu síðastliðinn mánuð. Ástæðan er sú að spilarinn Ricdic, sem var hátt settur í bankanum, stakk af með innistæður annarra leikmanna og seldi þær á svörtum markaði fyrir alvöru peninga. Grein um málið birtist meðal annars í vefútgáfu New York Times og víðar.

Bretar æfir Írönum

Bretar eru æfir Írönum vegna áforma þeirra um að rétta yfir starfsmönnum í breska sendiráðinu í Teheran. Þeir voru handteknir um síðustu helgi og sakaðir um aðild að mótmælum vegna forsetakosninganna í Íran í síðasta mánuði.

Minningarathöfn um Jackson á þriðjudag

Aðgangur að minningarathöfn um Michael Jackson, sem haldin verður í Staples Center í Los Angeles á þriðjudaginn, verður takmarkaður við 11.000 manns og þurfa þeir, sem hyggjast reyna að næla sér í miða, að skrá sig sérstaklega fyrir fram.

Hádegisverðurinn er aldrei ókeypis

Ítölsk yfirvöld hafa látið loka sögufrægum veitingastað í Róm eftir að japönsk hjón voru rukkuð um tæpar 700 evrur fyrir hádegisverð.

Ómönnuð flugvél felldi tíu talibana

Ómönnuð árásarflugvél Bandaríkjahers skaut þremur flugskeytum að hópi talibana í Suður-Waziristan í Pakistan í morgun og drap tíu þeirra en særði sjö.

Stúlka sem lifði flugslysið af komin heim

Þrettán ára gömul frönsk stúlka, sem komst ein lífs af þegar flugvél jemenska flugfélagsins Yemenia fórst í Indlandshafi fyrr í vikunni, er komin heim til Marseille í Frakklandi þar sem hún býr.

Ofursti í breska hernum féll í Afganistan

Hæst setti breski hermaður sem fallið hefur í stríðsátökum í þrjá áratugi lést í Afganistan í gær þegar brynvarin bifreið, sem hann var í, ók yfir jarðsprengju sem talibanar höfðu komið fyrir á vegi.

Fyrstu myndir frá tunglfarinu berast

Tunglfar bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA hefur nú sent fyrstu myndirnar af yfirborði tunglsins til jarðar og er það í fyrsta sinn sem loftmyndir eru teknar af tunglinu úr svo lítilli hæð en farið sveimar umhverfis tunglið í 50 kílómetra hæð.

Síðasta æfing Jacksons - myndband

Myndskeið af síðustu æfingu Michael Jackson fyrir Lundúna túrinn hefur verið gert opinbert. Á myndbandinu, sem tekið er upp tveimur dögum fyrir andlát Jacksons, virðist hann gríðarlega sprækur og dansar af sinni alkunnu snilld.

Vél Air France splundraðist þegar hún skall í hafið

Talið er að flugvél Air France sem fórst 1. júní á leið sinni frá Brasilíu til Frakklands hafi splundrast þegar vélin hrapaði í hafið. Áður hefur verið talið að flugvélin hafi sundrast á flugi þar sem brak úr henni dreifðist yfir margra kílómetra svæði.

Sjá næstu 50 fréttir