Leiðtogar hittast og ræða heimsmálin 8. júlí 2009 04:00
Leiðtogar G8-ríkjanna koma saman í jarðskjálftabænum L'Aquila á Ítalíu í dag, þar sem þeir ætla að ræða heimsmálin og snæða saman næstu þrjá daga. Efnahagskreppan verður aðalmálið í viðræðunum, en einnig er áhersla á loftslagsmál og öryggismál. Einnig þykir nokkuð ljóst að átökin í Xinjiang-héraði í Kína verði eitthvað rædd við Hu Jintao, forseta Kína. G8-ríkin eru Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Ítalía, Japan, Kanada, Rússland og Þýskaland. Auk þess hafa fimm upprennandi efnahagsveldi fengið þátttökurétt í fundarhöldunum, en þau eru Brasilía, Indland, Kína, Mexíkó og Suður-Afríka. Í gær tóku Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti og Luiz Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu, höndum saman og hvöttu til að þessi upprennandi efnahagsveldi fengju aukið vægi í alþjóðamálum. Angela Merkel Þýskalandskanslari tók undir þetta og sagðist reikna með að tuttugu ríkja hópur stærstu efnahagsvelda heims yrði mikilvægasti vettvangurinn af þessu tagi innan tíðar. Að þessu sinni er G8-fundurinn haldinn á Ítalíu, og hinn umdeildi forsætisráðherra Silvio Berlusconi setur óneitanlega svip sinn á samkomuna. Hann kom því til leiðar að fjallaþorpið L'Aquila yrði fundarstaður, en harður jarðskjálfti varð nærri 300 manns þar að bana í vor. Aðstæður þar eru töluvert verri en þjóðarleiðtogarnir eiga að venjast. Í stað glæsihótela er þeim boðið upp á gistingu í harla frumstæðum skálum, enda þurftu meira en fimmtíu þúsund manns að yfirgefa heimili sín og búa nú í tjöldum eða á gistihúsum. Staðsetningin er hugsuð til að sýna samstöðu með fórnarlömbum jarðskjálftans, en íbúar á svæðinu kvarta engu að síður undan því að miklir fjármunir fari í fundarhöldin. Þetta fé hefði verið hægt að nota til að laga vegi og húsnæði sem varð fyrir skemmdum.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira