Erlent

Sextán stúlkur fórust í sprengingu í Tyrklandi

MYND/AFP
MYND/AFP

Sextán skólastúlkur eru látnar eftir að heimavist hrundi í Tyrklandi í nótt í kjölfar gasspreningar. Talið er að rúmlega 40 stúlkur hafi verið í byggingunni þegar hún hrundi og voru þær flestar sofandi.

Sprengingin varð í bænum Balcilar í suðurhluta landsins.

Að minnsta kosti 27 stúlkur komust út úr byggingunni við illan leik. Talið er að sex fórnarlömb á lífi séu föst í rústunum. ,,Við heyrum í þeim. Ég trúi því að við náum að bjarga þeim," hefur Sky News eftir Mehmet Demirgul, borgarstjóra.

Aðstoð hefur verið send frá Ankara.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×