Erlent

Fimm fjallgöngumenn fórust í snjóflóði

Mynd/ AFP
Mynd/ AFP

Að minnsta kosti fimm fjallgöngumenn fórust í snjóflóði á fjallinu K-2 á landamærum Pakistans og Kína um helgina.

Fólkið tilheyrði hópi frá Suður-Kóreu. Þrír hinna látnu voru frá Kóreu og tveir frá Nepal. Sjö aðrir úr hhópnum komust niður heilu og höldnu.

Óttast er um fleiri hópa á fjallinu sem þar eru fastir í átta þúsund metra hæð eftir að snjóflóðið sópaði burt föstum klifurlínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×