Erlent

Sextán kínverskir lögreglumenn myrtir

Sextán kínverskir lögreglumenn voru myrtir í árás í borginni Kashgar í Zinjiang í gærkvöld. Mennirnir voru við landamæravörslu þegar tveir menn óku að þeim í ruslabíl og köstuðu tveimur handsprengjum að þeim áður en þeir réðust að lögreglumennina með hnífum. Aðeins fjórir dagar eru þar til að Ólympíuleikarnir hefjast í Kína. Báðir árásarmennirnir voru handteknir skömmu síðar. Kashgar er um 4000 kílómetrum frá Peking.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×