Erlent

Stálgirðingar settar upp við landamæri BNA og Mexíkó

Myndin tengist ekki fréttinni ekki beint.
Myndin tengist ekki fréttinni ekki beint.

Stálgirðingar hafa verið settar upp á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó vestur við El Paso í Texas til þess að auka öryggi við landamærin. Girðingin er fimm metra há og er stálið svo þéttvafið að hendur og fætur manna geta ekki krækt í það til þess að klífa girðinguna. Stálið er þó ekki svo þéttvafið að ekki sé hægt að sjá í gegnum það.

Girðingin stendur á tveggja metra löngum steinsteypustall neðanjarðar til þess að koma í veg fyrir að hægt sé að grafa undir girðinguna. Girðingin er staðsett þannig að ólöglegur innflytjendur og dópsalar þurfa að leita út í eyðimörkina til þess að komast yfir landamærin en þar er mun auðveldara fyrir lögregluna að ná þeim.

Áætlað er að reisa girðingu á 3200 kílómetra löngum kafla fyrir 31. desember og er búið að ljúka helmingnum af þeirri framkvæmd. Margir eru mótfallnir þessu verki, meðal annars náttúruverndarsinnar og ýmiss samfélög við landamærin. Standa yfir fjöldamargar lögsóknir vegna hinna nýju öryggisráðstafanna.

Til þess að ljúka verkinu á réttum tíma hefir því verið brugðið til þess ráðs að réttlæta girðinguna með lögum um verndun vatns, verndun dýra í útrýmingahættu og svæði frumbyggja Ameríku. Þetta kemur fram á fréttavef Breitbart.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×