Erlent

Ellefu létust á K2

Ellefu fjallgöngumenn fórust á næst-hæsta fjalli heimsins, K2, í Pakistan um helgina. Fólkið var á leið niður af fjallinu eftir að hafa náð á toppinn þegar snjófljóð skall á hópnum, en í honum voru tuttugu og fimm manns.

Ítalskur meðlimur hópsins sem björgunarmenn hafa náð til lýsti því hvernig flóðið hreif suma með sér en aðrir einangruðust á fjallinu í kjölfarið og létust úr kulda og vosbúð.

Fjallið er talið það hættulegasta í heiminum en þetta slys er það mannskæðasta hingað til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×