Erlent

Þýskar lögreglukonur fá „skotheld brjóstahöld“

Hin skotheldu brjóstahöld eru ekki með spöngum eins og venjuleg.
Hin skotheldu brjóstahöld eru ekki með spöngum eins og venjuleg.

Þýskar lögreglukonur fá á næstunni það sem þýskir fjölmiðlar kalla skotheld brjóstahöld.

Þau eru sérhönnuð fyrir lögregluna og hafa ekki spangir eins og aðrir brjóstahaldarar heldur svipar meira til íþróttabrjóstahaldara. Talsmaður þýsku lögreglunnar sagði að eilítil hætta gæti skapast af því fyrir konur að vera í spangabrjóstahöldum undir skotheldu vesti. Ef skot hafnaði í vestinu gæti það skekkt spangirnar og skaðað lögregluþjónana.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×