Erlent

Nóbelsverðlaunahafinn Alexander Solzhenitsyn er fallinn frá

Rússneski rithöfundurinn og Nóbelsverðlaunahafinn Alexander Solzhenitsyn, sem opinberaði fangabúðakerfi Jósefs Stalíns í bókum sínum, lést nærri Moskvu um helgina, 89 ára gamall.

Solzhenitsy var útlægur frá gömlu Sovétríkjunum í tvo áratugi og bjó þá í Bandaríkjunum. Hann sneri aftur til heimalands síns 1994. Kunnustu bækur hans eru Gúlag eyjaklasinn og Dagur í lífi Ivans Denesovitsj.

Eftir heimkomuna skrifaði Solzhenitsyn nokkrar miklar bækur um sögu og samsend rússnesku þjóðarinnar. Hann var heilsutæpur síðustu árin og lést úr hjartaáfalli.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×