Erlent

Clinton vill meira fé í baráttuna við HIV

BIll Clinton, fyrrverandi forseti.
BIll Clinton, fyrrverandi forseti.

Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, kallar eftir auknum fjárframlögum í baráttunni við alnæmi í heiminum. Alþjóðleg ráðstefna um sjúkdóminn stendur nú yfir í Mexíkó og þar sagði Clinton að auka þurfi framlög um fimmtíu prósent á næstu tveimur árum til þess að unnt sé að standa straum af lyfjagjöf til þeirra sem smitast hafa.

Nýjustu tölur sína að þrátt fyrir að HIV smituðum hafi fækkað lítillega á síðustu árum fjölgi tilfellum enn í sumum löndum. Nú er talið að þrjátíu og þrjár milljónir manna séu HIV jákvæðir í heiminum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×