Erlent

Palestínumenn flýja til Ísraels

Tæplega 200 Palestínumenn flúðu til Ísraels í gær þegar harðir bardagar brutust út á milli Hamas og Fatah hreyfinganna á Gaza ströndinni. Níu palestínumenn féllu og níutíu og fimm særðust í bardögunum.

Flóttamennirnir tilheyra Fatah hreyfingunni. Hamas liðar skutu á þá þegar þeir fóru yfir landamærin til Ísraels, en ísraelskir hermenn skutu á móti til að verja flóttafólkið.

Talsmaður ísraelska varnarmálaráðuneytisins sagði að þrjátíu flóttamannanna hefðu nú snúið aftur til Gaza, að beiðni Mahmouds Abbas, forseta. Þeir voru handteknir þegar þeir komu yfir landamærin.

Talsmaðurinn sagði að hinir yrðu áfram í Ísrael um sinn og væru ellefu á sjúkrahúsi, þar sem þeir nytu aðhlynningar vegna skotsára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×