Erlent

Rignir á Dani

Miklar rigningar eru nú í Danmörku en í gær var úrkoman á nokkrum stöðum álíka mikil og venja er í öllum ágústmánuði. Á Norður-Jótlandi var úrkoman um 60 millimetrar í gær og á Skagen var hún 70 millimetrar.

Mest rigndi þó á eyjunni Anholt í Kattegat þar sem úrkoman náði 100 millimetrum á einum sólarhring. Þónokkuð vatnstjón hefur orðið í Danmörku vegna þessa en veðurfréttamenn spá því að regninu sloti í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×