Erlent

Vill ísbirni af lista yfir dýr í útrýmingarhættu

Ríkisstjóri Alaska hyggst höfða mál á hendur bandarísku alríkisstjórninni vegna þeirrar ákvörðunar að setja ísbirni á lista yfir dýr í útrýmingarhættu. Vill ríkisstjórinn að dómstólar ógildi ákvörðunina.

Ísbirnir voru settir á listann vegna loftlagsbreytinganna en minnkun heimskautaíssins hefur í för með sér að það þrengir að björnunum, þar á meðal í Alaska sem er eini staðurinn í Bandaríkjunum þar sem ísbirni er að finna.

Miklar umræður eru nú í Bandaríkjunum um hvort ráðast eigi í olíu- og gasvinnslu á friðuðum svæðum í Alaska og óttast yfirvöld í Alaska að erfiðara gæti reynst að hefja boranir ef björnunum verður haldið á listanum yfir friðuð dýr.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×