Harðlínumenn í Ísrael vilja kosningar 1. ágúst 2008 12:20 Ehud Olmert, fráfarandi forsætisráðherra Ísrael.
Harðlínumenn í ísraelsku stjórnarandstöðunni krefjast þess nú að efnt verði til kosninga þegar í stað. Það gæti orðið til þess að helsti haukurinn í Likud-bandalaginu, Benjamin Netanyahu, komist aftur til valda. Það var ákvörðun Ehuds Olmerts, forsætisráðherra, um að láta af embætti sem gaf harðlínumönnunum færi á að krefjast nýrra kosninga. Þeir hafa eflst og magnast á meðan flokkur Olmerts virðist vera í uppnámi og óreiðu í kjölfar afsagnar hans. Kaldhæðni örlaganna ræður því að Benmjamin Netanyahu, sem var grunaður um spillingu í sinni ráðherratíð rétt eins og Olmert núna, virðist nú fremstur meðal jafninga í Likud. Í flokki Olmerts - sem var stofnaður af Ariel Sharon fyrir þremur árum - eru Tzipi Livni, utanríkisráðherra, og Shaul Mofaz, fyrrum formaður ísraelska herráðsins. Mofaz hvatti til þess á valdatíma sínum í hernum þegar seinni intifadah-uppreisnin stóð sem hæst, að sjötíu Palestínumenn yrðu drepnir á degi hverjum. Þessar upplýsingar komu fyrst fram fyrir þremur árum í bók eftir tvo kunna ísraelska blaðamenn og þetta hefur verið rifjað upp nú. Önnur fullyrðing í þessari bók hefur einnig verið rifjuð upp síðustu dægrin - sem sé sú að Ariel Sharon hafi ákveðið að leggja niður tilteknar gyðingabyggðir í Palestínu til að beina athyglinni frá spillingarmálum sem hann stóð sjálfur frammi fyrir. Sharon lifir enn meðvitundarlaus í öndunarvél á sjúkrahúsi í Ísrael.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira