Erlent

Mbeki þvertekur fyrir að hafa tekið við mútum

Tabo Mbeki, forseti Suður Afríku, þvertekur fyrir að hann hafi þegið mútur frá þýsku vopnaframleiðslufyrirtæki. Ásakanir um mútuþægni forsetans eru settar fram í Suður Afríska blaðinu Sunday Times en blaðið segir að Mbeki hafi greitt forsetanum fyrir að tryggja að sala á þremur kafbátum gengi í gegn. Forsetinn og talsmenn hans segja ekkert hæft í fréttinni og í sama streng tekur þýska fyrirtækið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×