Erlent

Hryðjuverkamaður úr ETA látinn laus

Jose Ignacio de Juana Chaos yfirgefur fangelsið í morgun. Mynd/ AFP.
Jose Ignacio de Juana Chaos yfirgefur fangelsið í morgun. Mynd/ AFP.

Almenningur á Spáni er furðu lostinn yfir því að Jose Ignacio de Juana Chaos, félagi úr aðskilnaðarhreyfingu Baska, hafi verið látinn laus eftir 21 árs fangelsisvist.

Jose Luis Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, hefur lýst yfir vanþóknun sinni á Chaos en segir að ríkisstjórnin verði að virða lög í landinu. Chaos var dæmdur í meira en 3000 ára fangelsi árið 1987, en samkvæmt refsilögum sem þá voru í gildi, má hann sitja mest í 30 daga fangelsi.

Chaos sótti um lausn úr fangelsi árið 2004, en var hafnað vegna ógnandi hegðunar sinnar. Chaos tók þátt fjölda hryðjuverka sem ETA, aðskilnaðarsamtök Baska, stóðu fyrir. Þar á meðal var bílsprengjuárás í Madrid árið 1986, sem varð 12 óbreyttum lögregluþjónum að bana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×