Erlent

Bretar myrtir í Karíbahafinu

Þrjátíu og eins árs gamall Breti, Ben Mullany, lést á sjúkrahúsi í Bretlandi um helgina af skotsárum sem hann fékk þegar ráðist var á hann og konu hans á eynni Antigua í Karíbahafi í síðustu viku. Kona hans lést í árásinni - sem var gerð á síðasta degi brúðkaupsferðar þeirra.

Ben Mullany var fluttur til Bretlands fyrir helgina til að koma honum á betra sjúkrahús en völ er á á Antigua. Þar lést hann af miklum höfuðáverkum.

Lögreglustjórinn á Antigua segist vera sannfærður um að sér og sínum mönnum muni takast að hafa hendur í hári morðingjans. Nokkrir hafa verið handteknir vegna málsins en öllum sleppt hingað til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×