Erlent

Obama vill ganga á varaforðann

Barack Obama.
Barack Obama.

Barack Obama, forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum, vill láta veita 70 milljónum olíutunna úr varaforða landsins til þess að stemma stigu við hækkandi olíuverði í heiminum.

Obama hefur kynnt áætlun sína í eldsneytismálum fyrir komandi kosningar í nóvember en búist er við að olían verði eitt af hitamálum kosningabaráttunnar sem nú fer harðnandi með degi hverjum. Obama hefur nú stungið upp á að 70 milljónir tunna verði teknar úr varaforða Bandaríkjanna, en stjórnvöld í Washington hafa hingað til verið á þeirri skoðun að aðeins eigi að ganga á forðann í ítrustu neyð.

Tíu milljón tunnur voru teknar úr forðanum árið 2005 í kjölfar þess að fellibylurinn Katrína reið yfir. Þessi áætlun Obama hefur komið nokkuð á óvart en í Júní sagði hann að ekki kæmi til greina að ganga á varaforðann. Talsmaður hans segir að hann hafi hins vegar endurskoðað afstöðu sína í málinu í ljósi þróunarinnar undanfarið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×