Erlent

Geislavirk efni láku úr kafbáti

Báturinn var í Japan. Myndin tengist fréttinni ekki. Mynd/ AFP.
Báturinn var í Japan. Myndin tengist fréttinni ekki. Mynd/ AFP.

Geislavirk efni láku úr bandarískum kafbáti sem var í heimsókn í Japan fyrr á þessu ári. Yfirvöld segja að lekinn hafi verið svo lítill að hann hafi ekki valdið neinum skaða.

Þetta er upplýst á fremur óheppilegum tíma fyrir stjórnvöld bæði í Japan og Bandaríkjunum. Þau eru að reyna að sannfæra japönsku þjóðina um að engin hætta sé því samfara að gera Japan að heimahöfn bandaríska flugmóðurskipsins George Washington.

Flugmóðurskipið er kjarnorkuknúið. Japan er eina landið sem gerð hefur verið kjarnorkuárás á. Það voru raunar einmitt Bandaríkjamenn sem gerðu þá árás.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×