Erlent

McCain komið með jafn mikið fylgi og Obama

Jón Hákon Halldórsson skrifar

Bandarísku forsetaframbjóðendurnir John McCain og Barack Obama eru hnífjafnir samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Gallup.

Könnunin, sem gerð var 30. júlí til 1. ágúst bendir til að þeir hafi báðir 44 prósenta fylgi á meðal skráðra kjósenda. Obama hafði til skamms tíma um níu prósenta forskot á McCain eftir ferð hans til Evrópu, sem þótti heppnast mjög vel. Það forskot hvarf þó fljótt.

AP fréttastofan segist hafa heimildir fyrir því að McCain hafi boðið Eric Cantor, fulltrúadeildaþingmann frá Virginiu að verða varaforsetaefni sitt, en þær fréttir hafa ekki fengist staðfestar.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×