Erlent

Öryggið tryggt á Ólympíuleikunum

Kínversk yfirvöld reyna nú að fullvissa fólk um að áhorfendur og þáttakendur á ólympíuleikunum sem hefjast eftir nokkra daga séu óhulltir. Aðskilnaðarsinnar í Sínjang héraði eru sakaðir um árás á landamærastöð í gær, en forsvarsmenn leikanna segja að ítrustu öryggiskröfur séu uppfylltar í Peking og því sé gestum engin hætta búin.

Tveir menn eru sagðir hafa ekið upp að landamærastöð í héraðinu í gær, varpað handsprengjum á hóp lögreglumanna og ráðist síðan á þá með hnífa að vopni. Þeir voru handsamaðir en ekki fyrr en sextán lögreglumenn lágu í valnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×