Ríkisnefnd um mannasiði fyrir Ólympíuleikana 1. ágúst 2008 20:30
Kínverjum hefur verið gert að taka sig á í mannasiðum fyrir Ólympíuleikana - svo sem að hætta að hrækja um allar götur og smjatta. Sérstök ríkisnefnd hefur verið sett á laggirnar til að tryggja framfarir í mannasiðum - nefnd til uppbyggingar andlegrar siðmenningar, eins og hún heitir. Daglegir siðir Kínverja hafa oft komið útlendingum spánskt fyrir sjónir - en nú herma fréttir að ástandið sé mikið að batna, þökk sé átakinu til andlegrar siðmenningar. Áberandi færri spýta á göturnar og biðraðir eru ekki lengur sjálfsagður vettvangur olnbogapústra og ýtinga. Því má þakka skipulögðum biðraðaæfingum 11. dag hvers mánaðar að undaförnu. Borgarbúum í Beijing hefur einnig verið uppálagt að sýna útlendingum kurteisi og draga aðeins úr náttúrulegri forvitni sinni um einkahagi fólks. Skólabörn hafa fengið tilsögn í góðum siðum - þau hafa æft söngva um góða siði og lært að hirða rusl upp af götum og koma því til endurvinnslu samkvæmt reglugerðum. Borgarbúar hafa verið hvattir til að vera ekki í of litskrúðugum fötum - og að steinhætta að ganga um á náttfötunum, sem er algeng sjón í kínverskum borgum. Rúmlega milljón sjálfboðaliðar hafa verið virkjaðir til að kenna góða mannasiði í skólum, háskólum og á opinberum skrifstofum. Og á Ólympíuleikunum á að klappa jafnt fyrir öllum - enda sé sigur eða tap í keppni tímabundið bakslag en menningarásýnd ríkisins lifi um alla eilífð.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira