Erlent

Airbus A380 lenti á Kennedy velli í fyrsta sinn

Airbus A380
Airbus A380
Airbus A380 lenti í fyrsta sinn á bandarískri jörðu í gær eftir áætlunarflug. A 380 vélin, sem er stærsta farþegaflugvél í heimi, lenti á Kennedy vellinum í New York. Hún er frá flugfélaginu Emirates, flaug frá Dubai og voru 489 farþegar um borð. Mikil eftirvænting ríkti vegna flugsins því að Airbus er í mikilli samkeppni við Boeing flugframleiðandann um framtíðarstöðu á flugvélamarkaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×