Fleiri
Stjórnarflokkar halda velli í Úkraínu 24.4.2006 09:00 Ungverska stjórnin hélt velli Jafnaðarmannastjórnin í Ungverjalandi hélt velli í þingkosningum í landinu, en síðari umferð þeirra fór fram í dag. 23.4.2006 19:45 Björgólfur Thor 32. auðugasti maður Bretlands Breska blaðið Sunday Times metur eignir Björgólfs Thors Björgólfssonar á liðlega 214 milljarða króna og segir þær hafa fjórfaldast á einu ári. Hann er samkvæmt þessu þrítugasti og annar ríkasti maður Bretlandseyja. 23.4.2006 19:13 Aparnir fá að fara til heimkynna sinna Allt útlit er fyrir að fimmtíu og fjórir órangútan-apar, sem taldir eru vera frá Indónesíu, fái loks að snúa aftur til heimkynna sinna. Taílensk yfirvöld fundu apana í þarlendum safarí-dýragarði fyrir nokkrum misserum en þá höfðu þeir verið látnir stunda hnefaleika, gestum garðsins til skemmtunar. 23.4.2006 17:00 Góð kosningaþátttaka í Ungverjalandi Allgóð kjörsókn hefur verið í síðari umferð ungversku þingkosninganna sem hófst í morgun. Útlit er fyrir að ríkisstjórnin haldi meirihluta sínum. Þegar kjörstaðir voru opnaðir snemma í morgun höfðu þegar myndast biðraðir fyrir utan og það sem af er degi hefur kjörsókn verið býsna góð. Stöðugleiki hefur hingað til ekki verið helsta einkenni ungverskra stjórnmála því síðan járntjaldið féll árið 1990 hefur sitjandi ríkisstjórn aldrei náð að halda völdum. 23.4.2006 16:20 Sjá næstu 50 fréttir
Kaupmannahafnarháskóli yfirgefur miðbæinn Kaupmannahafnarháskóli hefur tilkynnt að skólinn muni nú yfirgefa sögufrægar og friðaðar byggingar skólans í miðborg Kaupmannahafnar, þar sem lögfræði, guðfræði og fleiri greinar hafa verið kenndar í 525 ár. 27.4.2006 08:00
Snow næsti talsmaður Hvíta hússins Tony Snow, fréttamaður á Fox-sjónvarpsstöðinni bandarísku, verður næsti talsmaður Hvíta hússins. Hann tekur við starfi Scotts McClellan sem í síðustu viku var látinn taka pokann sinn. 26.4.2006 21:00
Varar við innrás í Íran Ali Khamenei erkiklerkur í Íran varaði Bandaríkjamenn við að ráðast inn í landið í ræðu sem hann flutti á þingi íranskra verkamanna í dag. 26.4.2006 20:00
Fangaflugið var umfangsmikið og kerfisbundið Sérkennilegar leiðir fangaflugvéla bandarísku leyniþjónustunnar CIA frá einni borg til annarrar voru á meðal þess sem vakti grunsemdir rannsóknarnefndar Evrópuþingsins. Nefndin skilaði bráðabirgðaskýrslu sinni í dag þar sem því er haldið fram að CIA hafi flogið rúmlega þúsund sinnum í gegnum lofthelgi ESB síðan 2001 án þess að gera grein fyrir ferðum sínum. 26.4.2006 19:00
Tugþúsundir á flótta Tugþúsundir Srí-Lankamanna eru á flótta eftir að stjórnarherinn hóf loftárásir á svæði Tamíltígranna svonefndu. Vopnahléið sem verið hefur í gildi á þessari stríðshrjáðu eyju virðist þar með vera farið út um þúfur. 26.4.2006 18:45
Ráðamenn í Indlandi og Pakistan hefja viðræður Ráðamenn í Indlandi og Pakistan hafa ákveðið að hefja viðræður um hvernig megi tryggja að ekki komi til kjarnorkustríðs milli landanna fyrir slysni eða misskilning. Beggja vegna landamæranna ríkir almenn bjartsýni vegna viðræðnanna og telja ráðamenn þær vera skref í rétta átt í samskiptum Indlands og Pakistans. 26.4.2006 16:15
Þrjú þúsund manns hafa flúið heimili sín í norðausturhluta Sri Lanka Um þrjú þúsund manns hafa flúið heimili sín í norðausturhluta Sri Lanka eftir að stjórnarherinn hóf loftárásir gegn Tamíltígrunum, í kjölfar sjálfsmorðssprengjuatlögu að einum helsta hershöfðingja Sri Lanka í gær. Tamíltígrar hafa ekki lýst sjálfsmorðssprengjunni á hendur sér. 26.4.2006 16:14
Tveir sjálfsmorðssprengjumenn sprengdu sig í loft upp Tveir sjálfsmorðssprengjumenn sprengdu sig í loft upp á norðausturhorni Sínaískaga nú í morgun. Sprengjurnar urðu sem betur fer engum nema þeim sjálfum að bana en þeir stóðu við alþjóðlega friðargæslustöð um sextán kílómetra frá ísraelsku landamærunum. 26.4.2006 14:48
Rússar skjóta upp gervihnetti fyrir Ísraelsmenn Rússar skutu í gær upp gervihnetti fyrir Ísraelsmenn, sem ætlað er að njósna um kjarnorkutilraunir Íraka. Ísraelsmenn hafa árum saman litið á Írak sem einn sinna helstu óvina. Samkvæmt rússneskum yfirvöldum komst gervihnötturinn á sporbaug en ekki er enn víst hvort hann virki sem skyldi eftir skotið. 26.4.2006 09:31
Varar Bush Bandaríkjaforseta við frekari árásum Leiðtogi al Qaída í Írak, Abu Musab al-Zarqawi, kom óvænt fram á myndbandsupptöku í gær þar sem hann gagnrýndi nýju írösku stjórnina og varaði Bush, forseta Bandaríkjanna, við frekari árásum. Hann skoraði á Bush að segja þjóð sinni frá uppreisn og liðhlaupum í herafla Bandaríkjamanna í Írak, sem haldið væri leyndu. 26.4.2006 08:55
Myndband af al-Zarqawi í fyrsta sinn Myndband sem virðist sýna Abu Musab al-Zarqawi, leiðtogi al-kaída í Írak, var birt á vefsíðu íslamskra öfgamanna í dag. Al-Zarqawi er sagður hafa lagt á ráðinu um mannskæðar árásir og morð í Írak. Fyrir vikið hefur jafnvirði tæpra tveggja milljarðar króna verið settir honum til höfuðs. 25.4.2006 22:30
Unglingsdrengur handtekinn fyrir morð í Belgíu Belgíska lögreglan hefur handtekið 16 ára unglingsdreng sem grunaður er um að hafa átt aðild að morði á 17 ára strák í Brussel fyrr í þessum mánuði. Strákurinn neitaði að láta þjófa hafa MP3 spilarinn sinn og galt fyrir það með lífi sínu. 25.4.2006 22:30
Heimsótti þá sem særðir eru Hosni Mubarak, Egyptalandsforseti, heimsótti fjölmarga þeirra sem nú liggja sárir á sjúkrahúsi eftir hryðjuverkaárás á strandbæinn Dahab í gær. Tíu hafa verið handteknir vegna árásarinnar en tuttugu og fjórir féllu og sextíu særðust. 25.4.2006 20:30
Sakaðir um að hafa átt þátt í ódæðunum í Súdan Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í daga að frysta erlenda bankareikninga og eigur fjögurra Súdana auk þess hafa þeir verið settir í farbann. Mennirnir eru sakaðir um að hafa átt þátt í ódæðum sem framin voru í Darfur-héraði í Súdan. 25.4.2006 20:00
Lést þegar brú féll á Jótlandi Einn lést og fimm slösuðust þegar vegbrú á Jótlandi hrundi í dag. Verið var að vinna við lagfæringar á brúnni þegar hún gaf sig. 25.4.2006 19:45
Tíu handteknir Tíu hafa verið handteknir vegna hryðjuverkanna í Egyptalandi í gær. Tuttugu og fjórir féllu og sextíu særðust þegar vinsæll ferðamannastaður breyttist um stund í vígvöll. Íslensk hjón, sem eru í Sharm el Sheik, segja heimamenn algjörlega miður sín. 25.4.2006 18:00
Íranir láta andstöðu alþjóðasamfélagsins ekki á sig fá Allt bendir til þess að Íranar ætli að halda áfram auðgun úrans þrátt fyrir kröfur alþjóðasamfélagsins um að því verði hætt. Stjórnvöld í Teheran segjast ætla að hætta allri samvinnu við Alþjóða kjarnorkumálastofnunina verði gripið til refsiaðgerða og hafa boðið nágrannaríkjum sínum aðgang að kjarnorkutækni sinni. 25.4.2006 17:13
Bar sprengiefni undir belti Kona sprengdi sig í loft upp við bíl eins helsta hershöfðingja á Sri Lanka í dag. Hún hafði látist vera barnshafandi til þess að leyna sprengiefnum sem hún bar innan klæða en sprengingin dró 8 manns til dauða og særði 27 aðra. 25.4.2006 15:00
Gíanendra segist ætla að endurreisa þing Nepal Allsherjarverkfall og fjöldamótmæli hafa verið afboðuð í Nepal eftir að Gíanendra konungur sagðist ætla að endurreisa þing landsins. Maóistar hafna hins vegar tilboði konungs alfarið. 25.4.2006 14:32
Suður-Kórea hyggst verja Takeshima-eyjar Forsætisráðherra Japans segir nauðsynlegt að sýna stillingu þrátt fyrir ummæli forseta Suður-Kóreu um að suðurkóreskar eyjar sem Japanir gera tilkall til, verði varðar með kjafti og klóm. 25.4.2006 13:00
Tíu menn handteknir vegna hryðjuverka í Egyptalandi Egypska lögreglan hefur handtekið tíu menn vegna hryðjuverkanna í gær, sem urðu tuttugu og þremur að bana. Árásirnar voru ekki sjálfsmorðsárásir, heldur var tímasprengjum komið fyrir á jörðu niðri. 25.4.2006 12:15
Vilja engar jónur Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna ætlar að berjast gegn lögleiðingu á notkun maríjúana til lækninga. Nokkur ríki í Bandaríkjunm hafa þegar veitt leyfi til notkunar maríjúana við meðferð sjúkdóma sem valda miklum verkjum, svima og lystarleysi til lengri tíma. 25.4.2006 10:30
Frjálst flæði vinnuafls hefur aukið hagvöxt í Bretlandi Vinnuafl frá Austur-Evrópu hefur aukið hagvöxt og minnkað verðbólgu í Bretlandi verulega undanfarin ár. Samkvæmt niðurstöðum nýrrar skýrslu eru bein tengsl á milli lægri verðbólgu og meiri hagvaxtar annars vegar og aukins flæðis vinnuafls frá nýju löndum Evrópsambandsins til Bretlands hins vegar. 25.4.2006 09:45
Mótmæli afboðuð í Nepal Andstæðingar Gyanendra konungs í Nepal hafa sagst munu hætta mótmælum gegn honum sem hafa staðið vikum saman eftir að konungurinn lofaði að vinna náið með uppreisnarmönnum kommúnista. 25.4.2006 09:30
23 látnir og 62 særðir í Egyptalandi 23 hafa fundist látnir og 62 særðir eftir hryðjuverkaárás í bænum Dahab í Egyptalandi í gær. Þrjár sprengjur sprungu nær samtímis um fimmleytið í gærkvöldi að íslenskum tíma þegar mannþröng var á götum þessa vinsæla ferðamannastaðar við Rauðahafið. 25.4.2006 09:20
Stofnandi Enron bar vitni Kenneth Lay, stofnandi orkufyrirtækisins Enron, bar í dag vitni í fjársvikamáli sem hefur verið höfðað gegn honum vegna gjaldþrots fyrirtækisins. Hann neitaði því að hafa logið að fjárfestum um fjárhagsstöðu fyrirtækisins. 24.4.2006 22:45
Stuðningur við Bush Bandaríkjaforseta aldrei minni Stuðningur við Bush Bandaríkjaforseta hefur aldri verið minni samkvæmt nýrri skoðanakönnun CNN. Aðeins 32% Bandaríkjamanna eru sátt við frammistöðu forsetans og 60% Bandaríkjamanna ósátt. 24.4.2006 22:30
Hryðjuverkaárás í Egyptalandi Að minnsta kosti 30 fórust og um 160 særðust, þar af fjölmargir lífshættulega, þegar þrjár sprengjur sprungu á veitingastað, kaffihúsi og í stórmarkað í ferðamannabænum Dahab í Egyptalandi síðdegis í dag. Mubarak Egyptalandsforseti segir þetta hryðjuverk sem verði að refsa fyrir. 24.4.2006 22:08
Þingið í Nepal verður endurreist Konungur Nepals ætlar að endurreisa þingið í landinu. Með því vill hann aftur koma á lýðræði í landinu og friði eftir stanslaus átök í þrjár vikur. 24.4.2006 22:00
Minnst 30 fórust í sprengingum í Egyptalandi Að minnsta kosti 30 fórust og um 150 særðust í þremur sprengingum í ferðamannabænum Dahab í Egyptalandi síðdegis í dag. 24.4.2006 18:57
Óhæfuverk í Írak Á meðan ráðamenn í Írak ræða skipan nýrrar ríkisstjórnar hafa minnst átta Írakar fallið í röð sprengjuárása í höfuðborginni Bagdad í dag. Þá fundust 17 lík í borginni í dag og bendir allt til þess að fólkið hafi verið pyntað áður en það var myrt. 24.4.2006 17:45
Óttast ekki refisaðgerðir Ahmadinejad, Íransforseti, gaf í dag í skyna að til greina kæmi að Íranar segi sig úr Alþjóða kjarnorkumálastofnuninni ef aðild að henni geri ekkert gagn. Stofnunin vísaði kjarnorkudeilunni til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í síðasta mánuði. Íranar hafa frest fram á föstudag til að hætta auðgun úrans. 24.4.2006 17:15
Árás Maóista hrundið Öryggissveeitum í Nepal tókst í dag að hrinda árás mörg hundruð Maóista á litla borg í austur hluta landsins. Árásin hófst í nótt og skiptust uppreinsar- og hermenn á skotum í margar klukkustundir. Þegar upp var staðið lágu fimm Maóistar og einn öryggissveitarmaður í valnum. Enn hefur verið sett á útgöngubann í höfuðborginni Katmandu í dag, þar sem tugþúsundir hafa undanfarna daga mótmælt alræðisvaldi Gyanendra konungs. 24.4.2006 17:00
Abbas hótar Hamas-liðum Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, ætlar ekki að reka nýskipaða heimastjórn Hamas-liða þó lög heimili honum það. Hann sagði Hamas-liða verða að gera sér það ljóst að þeim sé nauðugur sá kostur að hefja friðarviðræður við ísraelsk stjórnvöld. 24.4.2006 16:30
Mikill sigur fyrir Gíursany í Ungverjalandi Stjórnarflokkarnir héldu velli í þingkosningum í Ungverjalandi, sem fram fóru í gær. Þeirra bíður það verkefni að ná niður mesta fjárlagahalla innan Evrópusambandsins. Núverandi ríkisstjórn hlaut 210 þingsæti af 386. 24.4.2006 13:00
Bandaríkjamenn reyna að beita evrópskum bönkum fyrir sig Bandaríkjamenn íhuga að beita evrópskum bönkum og fjármálastofnunum fyrir sig til að fá Írana ofan af þróun kjarnorku. Þetta hefur tímaritið Time eftir embættismönnum sem voru viðstaddir fund Condoleezu Rice og fjármálaráðherra Bretlands og Þýskalands. 24.4.2006 12:45
Bandarískir hermenn ótryggðir Mörg hundruð bandarískir hermenn sem hafa slasast í Írak og Afganistan, eru ekki tryggðir, vegna kerfisbundinna mistaka tryggingasérfræðinga Pentagon. Nærri 900 hermenn skulda nú sem svarar rúmlega einni milljón dollara vegna sjúkrakostnaðar eftir að hafa slasast í átökum. 24.4.2006 12:15
Harry prins má ekki fara í stríð Yngri syni Karls Bretaprins, Harry, verður líklega bannað að fylgja herdeild sinni til Íraks þegar herdeildin verður send þangað á næsta ári. Breska blaðið Times greinir frá þessu í dag. 24.4.2006 10:15
Áframhaldandi ókyrrð í Nepal Hundruð Maóista réðust í morgun inn í litla borg í austurhluta Nepals og skutu að opinberum byggingum. Þegar síðast fréttist höfðu skotbardagar milli maóistanna og öryggissveita staðið í sex klukkustundir, en ekki hafa enn borist fregnir af mannfalli. 24.4.2006 09:30
Ósvikinn Bin Laden Bandaríska leyniþjónustan telur fullvíst að upptakan frá Ósama Bin Laden sem AlJazeera birti í gær, sé ósvikin. Á upptökunni hvatti Bin Laden fylgismenn sína til að búa sig undir langt stríð gegn Vesturlandabúum. 24.4.2006 09:15
Ungverska stjórnin hélt velli Jafnaðarmannastjórnin í Ungverjalandi hélt velli í þingkosningum í landinu, en síðari umferð þeirra fór fram í dag. 23.4.2006 19:45
Björgólfur Thor 32. auðugasti maður Bretlands Breska blaðið Sunday Times metur eignir Björgólfs Thors Björgólfssonar á liðlega 214 milljarða króna og segir þær hafa fjórfaldast á einu ári. Hann er samkvæmt þessu þrítugasti og annar ríkasti maður Bretlandseyja. 23.4.2006 19:13
Aparnir fá að fara til heimkynna sinna Allt útlit er fyrir að fimmtíu og fjórir órangútan-apar, sem taldir eru vera frá Indónesíu, fái loks að snúa aftur til heimkynna sinna. Taílensk yfirvöld fundu apana í þarlendum safarí-dýragarði fyrir nokkrum misserum en þá höfðu þeir verið látnir stunda hnefaleika, gestum garðsins til skemmtunar. 23.4.2006 17:00
Góð kosningaþátttaka í Ungverjalandi Allgóð kjörsókn hefur verið í síðari umferð ungversku þingkosninganna sem hófst í morgun. Útlit er fyrir að ríkisstjórnin haldi meirihluta sínum. Þegar kjörstaðir voru opnaðir snemma í morgun höfðu þegar myndast biðraðir fyrir utan og það sem af er degi hefur kjörsókn verið býsna góð. Stöðugleiki hefur hingað til ekki verið helsta einkenni ungverskra stjórnmála því síðan járntjaldið féll árið 1990 hefur sitjandi ríkisstjórn aldrei náð að halda völdum. 23.4.2006 16:20