Björgólfur Thor 32. auðugasti maður Bretlands 23. apríl 2006 19:13
Breska blaðið Sunday Times metur eignir Björgólfs Thors Björgólfssonar á liðlega 214 milljarða króna og segir þær hafa fjórfaldast á einu ári. Hann er samkvæmt þessu þrítugasti og annar ríkasti maður Bretlandseyja. Sunday Times birtir á hverju ári lista yfir þúsund auðugustu íbúa Bretlandseyja. Samanlagt ríkidæmi þeirra sem fylla listann að þessu sinni eru metin á hvorki meira né minna en fjörtíu og eitt þúsund milljarða króna og hafa þau aldrei verið meiri. Fjórðungur þeirra sem kemst á listann hefur erft auðæfi sín og einungis áttatíu og eina konu er þar að finna. Ríkustu menn Bretlands eru stáljöfurinn Lakshmi Mittal og Roman Abramovich, eigandi knattspyrnuliðsins Chelsea. Íslendingar mega hins vegar vel við una því Björgólfur Thor Björgólfsson er í 32. sæti listans. Auður hans er metinn á ríflega 214 milljarða króna en hann er sagður hafa fjórfaldast frá fyrra ári. Aðeins níu auðkýfingar á listanum hafa náð að ávaxta sitt pund betur en Björgólfur Thor. Bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir, kenndir við Bakkavör, eru svo í hundraðasta og þriðja sæti listans, með 82 milljarða króna. Fleiri nöfn sem tengjast Íslandi er þarna að finna, til dæmis eru foreldrar Dorritar Moussaieffs í 465. sæti yfir ríkustu íbúa Bretlands en þau efnuðust á skartgripasölu. Athygli vekur hins vegar að nafn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar er ekki að finna á listanum, en auður hans hefði að öllu jöfnu átt að tryggja honum sæti í þessum hópi. Ríkustu Bretarnir eru hins vegar ekki hálfdrættingar á við auðugasta mann heims, Robson Walton aðaleiganda WalMart-verslunarkeðjunnar bandarísku, en hann er talinn eiga 6.500 milljarða króna, ríflega sjöfalda landsframleiðslu Íslands.
Erlent Fréttir Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira