Erlent

Aparnir fá að fara til heimkynna sinna

MYND/AP

Allt útlit er fyrir að fimmtíu og fjórir órangútan-apar, sem taldir eru vera frá Indónesíu, fái loks að snúa aftur til heimkynna sinna. Taílensk yfirvöld fundu apana í þarlendum safarí-dýragarði fyrir nokkrum misserum en þá höfðu þeir verið látnir stunda hnefaleika, gestum garðsins til skemmtunar. Vísindamenn hafa síðan reynt að ákvarða uppruna þessara merkilegu mannapa með DNA-rannsóknum og bendir nú allt til að veiðiþjófar hafi hremmt þá á sínum tíma í frumskógum indónesísku eyjarinnar Borneó. Órangútanar lifa eingöngu villtir í Malasíu, Taílandi og Indónesíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×