Óhæfuverk í Írak 24. apríl 2006 17:45
Á meðan ráðamenn í Írak ræða skipan nýrrar ríkisstjórnar hafa minnst átta Írakar fallið í röð sprengjuárása í höfuðborginni Bagdad í dag. Þá fundust 17 lík í borginni í dag og bendir allt til þess að fólkið hafi verið pyntað áður en það var myrt. 15 lík fundust í litlum sendibíl sem hafði verið lagt rétt fyrir utan Bagdad. Það voru lögreglumenn í Abu Ghraib sem fudnu líkin. Svo virðist sem fólkið hafi verið pyntað grimmilega áður en það var tekið af lífi. Annars staðar í borginnu fundust tvö lík til viðbótar og meðferðin svipuð. Talið er að morðin tengist átökum trúarbrota sem hafa magnast stig af stigi síðustu vikur. Þessu til viðbótar hafa minnst átta Írakar týnt lífi og tugir særst í sjö sprengjuárásum í Bagdad í dag. Flestir, eða fimm, féllu þegar bílsprengja sprakk nálægt háskóla í austurhluta borgarinnar. Þrír féllu í árás sem gerð var nálægt heilbrigðisráðuneytinu. Svo virðist sem henni hafi verið beint gegn lögreglu. Talið er að þessi árásarhrina tengist því að skriður er komin á viðræður um skipan ríkisstjórnar í landinu sem hafa gengið hægt síðan kosið var til þings í desember. Um helgina var höggvið á hnútinn þegar sjíar útnefndu Jawad al-Maliki í embætti forsætisráðherra í stað Ibrahim al-Jaafari sem Kúrdar og súnníar vildu láta víkja. al-Maliki mun í dag undirbúa viðræður um skipan þjóðstjórnar. Réttarhöldunum yfir Saddam Hússein, fyrrverandi Íraksforseta, var haldið áfram í dag og voru rithandarsérfræðingar kallaðir fyrir réttinn til að meta hvort Saddam hefði skrifað undir skjöl þar sem fyrirskipuð voru fjöldamorð á hundrað og fimmtíu sjíum í þorpinu Dujail. Réttarhöldunum var síðan frestað til 15. maí næstkomandi en þá hefja verjendur málfutning sinn.
Erlent Fréttir Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Sjá meira