Heimsótti þá sem særðir eru 25. apríl 2006 20:30 Þessi egypska stúlka er ein þeirra sem særðist í sprengjuárásinni. Mynd/AP
Hosni Mubarak, Egyptalandsforseti, heimsótti fjölmarga þeirra sem nú liggja sárir á sjúkrahúsi eftir hryðjuverkaárás á strandbæinn Dahab í gær. Tíu hafa verið handteknir vegna árásarinnar en tuttugu og fjórir féllu og sextíu særðust. Flest bendir til að ekki hafi verið um sjálfsmorðsárásir að ræða, heldur hafi þrjár tímastilltar sprengjur sprungið á fjölförnum stað á mesta annatíma með örstuttu millibili. 24 féllu í árásinni, þar á meðal minnst þrír erlendir ferðamenn, og 60 særðust. Meðal þeirra sem liggja nú sárir eru um 40 Egyptar, þrír Danir, þrír Bretar, tveir Ítalir, tveir Þjóðverjar, tveir Frakkar, Suður-Kóreumaður, Palestínumaður, Svisslendingur, Bandaríkjamaður, Ísraeli og Ástrali. Tíu voru handteknir vegna árásanna í dag, allt Egyptar. Ekki er vitað hvaða hlutverki þeir gegndu við skipulagningu árásanna, né hvort þeir tengjast stórum hryðjuverkasamtökum. Hosni Mubarak, Egyptalandsforseti, og Ahmed Nazif, forsætisráðherra, heimsóttu í dag sjúkrahús í Sharm el-Sheik þar sem langlflestir þeirra sem særðust voru fluttir. Hann sagði árásina í gær hryðjuverk sem beinist gegn öllum Egyptum. Engin ástæða geti legið að baki önnur en að leggja efnahag landsins í rúst. Tíundi hver Egypti vinnur við ferðamannaiðnað og alls færa ferðamenn um fimm hundruð milljarða íslenskra króna inn í hagkerfi landsins á hverju ári. Ætlunin var að ná níu milljón ferðamönnum til Egyptalands í ár, en árásirnar á Sharm el Sheik í fyrra og síðan Dahab í gær hafa heldur betur sett strik í reikninginn. Fjölmargir þjóðarleiðtogar hafa fordæmt árásirnar í gær og þar á meðal er heimastjórn Palestínumanna. Ismail Haniey, forsætisráðherra, sagði árásina í gær hræðilega glæp og að Palestínumenn stæðu með Egyptum.
Erlent Fréttir Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fleiri fréttir Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Sjá meira