Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Al-Maliki verður forsætisráðherra Vonast er til að fjögurra mánaða stjórnarkreppa í Írak sé á enda eftir að samkomulag náðist um hver tæki við embætti forsætisráðherra landsins. Jalal Talabani var endurkjörinn forseti á íraska þinginu í dag. 22.4.2006 19:20
Bruni í Þrándheimi Stórbruni varð í miðborg Þrándheims í Noregi í gærkvöld. Enginn slasaðist en nokkur hús gjöreyðilögðust. 22.4.2006 17:30
Sýkt kjöt í dönskum verslunum Dönsk heilbrigðisyfirvöld rannsaka nú hvernig á því standi að níu tonn af ítölsku kalkúnakjöti hafi ratað í 173 danskar matvöruverslanir án tilskildrar vottunar. 22.4.2006 17:00
Rangar líkamsleifar afhentar Chilesk yfirvöld hafa beðið ættingja 126 fórnarlamba herforingjastjórnarinnar illræmdu afsökunar eftir að í ljós kom að þeim voru afhentar rangar líkamsleifar. 22.4.2006 16:45
Tvöfalt tilræði í Úkraínu Fjórtán slösuðust í tveimur sprengjutilræðum sem framin voru í úkraínsku borginni Kharkív í dag. 22.4.2006 16:15
Fjölmenn mótmæli í Palestínu Þúsundir fylgismanna Fatah-hreyfingar Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, efndu til mótmæla á Vesturbakkanum og Gaza-ströndinni í dag. 22.4.2006 15:53
Al-Maliki í stað al-Jaafari Vonast er til að höggvið hafi verið á hnútinn í stjórnarmynduninni í Írak eftir að tilkynnt var um að Jawad al-Maliki, yrði forsætisráðherraefni fylkingar sjía, í stað Ibrahims al-Jaafari, núverandi forsætisráðherra. 22.4.2006 10:15
Skotið á mótmælendur nærri konungshöll Lögregla í Nepal skaut á mótmælendur í miðbæ Katmandú í morgun og særði að minnsta kosti átta menn. Tugþúsundir manna hundsuðu útgöngubann og gengu um götur borgarinnar í átt að konungshöllinni. 22.4.2006 10:01
Bauð ókeypis brjóstaskoðun án þess að vera læknir Lögregla á Florída handtók í gær mann á áttræðisaldri sem hafði gengið hús úr húsi í gervi læknis og boðið konum uppá ókeypis brjóstaskoðun. Upp um manninn komst þegar kona sem hann var að skoða grunaði að eitthvað misjafnt væri á ferðinni þegar maðurinn bað hana um að fara úr öllum fötunum 21.4.2006 21:01
Sturtaði seðlunum niður Í Þýskalandi eru ekki allir með það á hreinu hvort enn sé hægt að skipta þýska markinu í Evrur. Það var í það minnsta ekki elllilífeyrisþegi einn í Berlín sem fleygði andvirði 30.000 Evra í klósettið heima hjá sér og sturtaði niður. 21.4.2006 20:31
Gyanendra vill sættir Ekkert útlit er fyrir að ólgunni í Nepal linni á næstunni þrátt fyrir að konungur landsins hafi heitið því í dag að koma á lýðræði þar á ný. Stærsti flokkur landsins segir sáttatilboð kóngsins ganga alltof skammt og því verði mótmælum haldið áfram. 21.4.2006 18:51
Deilt um skipan þingforseta á Ítalíu Hveitibrauðsdagar sigurvegara þingkosninganna á Ítalíu urðu töluvert færri en búist var við. Brestir eru komnir í Ólívubandalag mið- og vinstri flokka, sem staðfest var í vikunni að náð hefði naumum meirihluta í báðum deildum þings. 21.4.2006 14:30
Stjórnarandstæðingar fá að bjóða fram í Nepal Gyanendra, konungur Nepals, hefur ákveðið að leyfa stjórnarandstöðuflokkum í landinu að bjóða fram eigin forsætisráðherraefni. Hann segir þó að starfandi ríkisstjórn verði áfram við völd enn um sinn. Nepal hefur logað í óeirðum í rúman hálfan mánuð og hafa fjórtán fallið í átökum við öryggissveitir á þeim tíma. Mótmælendur hafa krafist þess að konungur afsalaði sér alræðisvaldi sem hann tók sér fyrir rétt rúmu ári. 21.4.2006 13:47
Nígerumenn ætla að gera upp við lánadrottna Stjórnvöld í Nígeríu stefna að því að greiða margra milljarða skuld sína við hinn svokallaða Parísarklúbb sem nítján lánadrottnar tilheyra, þar á meðal Bretar, Rússar og Þjóðverjar. Þar með yrðu Nígeríumenn fyrsta Afríkuríkið til að gera upp alþjóðlega lánadrottna. Um er að ræða greiðslu sem nemur jafnvirði rúmlega 350 milljarða íslenskra króna. Eftir það skulda þó Nígeríumenn áfram jafnvirði tæplega 400 milljarða króna. 21.4.2006 10:48
Tveir létust í eldsvoða Að minnsta kosti tveir stúdentar létu lífið og fjórir slösuðust þegar eldur kviknaði í Ríkisháskólanum í Moskvu í morgun. Byggingin er eitt eftirtektarverðasta kennileiti höfuðborgar Rússlands. Greiðlega gekk að slökkva eldinn sem kviknaði á tótfu hæð í heimavist skólans. 21.4.2006 09:51
Elísabet Bretlandsdrottning fagnar 80 ára afmæli Elísabet önnur Bretlandsdrottning fagnar áttræðis afmæli sínu í dag. Opinber hátíðarhöld í tilefni af afmælinu hefjast fyrir hádegi í dag en drottningin mun halda upp á afmæli sitt í Windsor kastala í dag. 21.4.2006 08:30
Lausna leitað í milliríkjadeilu milli Japan og Suður-Kóreu Tilraun verður gerð í dag til að leysa þá milliríkjadeilu sem upp er komin á milli Japans og Suður-Kóreu. Málið varðar eyjaklasa og hafssvæðið þar í kring sem bæði ríki gera tilkall til. 21.4.2006 08:00
Lítill árangur hjá Bush og Jintao Lítill sem enginn árangur virðist hafa orðið af viðræðum Hu Jintao, forseta Kína, og George Bush Bandaríkjaforseta í Washington í gær, að sögn Reuters-fréttastöðvarinnar. Stærstu málin sem þeir hugðust ræða snerust um efnahags- og öryggismál. Annars bar hæst á fundi leiðtoganna með blaðamönnum í gær að kona úr röðum Falun Gong hreyfingarinnar setti þessa hefðbundu athöfn úr skorðum um stund með framíköllum, og var hún fjarlægð af öryggisvörðum. 21.4.2006 07:45
Hjálparstarf í Darfúr héraði í hættu Hjálparstarfið í Darfúr-héraði í Afríkuríkinu Súdan gæti svo gott sem hrunið innan fárra vikna, ef ekki fæst meira fjármagn til hjálparstarfa. 21.4.2006 07:30
Andstaða við forsætisráðherra Íraks Ibrahim al-Jaafari, forsætisráðherra Íraks, hefur ákveðið að eftirláta bandamönnum sínum í stjórnmálafylkingu sjía-múslima að ákveða hvort hann eigi að víkja úr embætti. Kúrdar og súnní-múslimar hafa lýst yfir andstöðu sinni við að hann sitji áfram og er það ein ástæða þess hve illa hefur gengið að mynda ríkisstjórn síðan þingkosningar fóru fram í Írak í desember. 21.4.2006 07:15
Öflugur jarðskjálfti á Kamchatka-skaga Öflugur jarðskjálfti reið yfir Kamchatka-skaga í Austur-Rússlandi seint í gærkvöldi að íslenskum tíma en hann mældist 7,7 á Richter. Tíu harðir eftirskjálftar fylgdu stóra skjálftanum, eða allt upp í 6,1 á Richter. Fyrstu fregnir herma að fáir virðast hafa slasast en þó hafi nokkurt tjón orðið á mannvirkjum. Þetta eru umfangsmestu jarðhræringar í þessum hluta Rússlands í rúm hundrað ár, eða síðan árið 1900. 21.4.2006 06:55
Hálfs milljarðs pappírsörk Fyrsta pappírsörkin með leikritum Villiams Shakespeares verður boðin upp hjá Sothebys í London þrettánda júlí. Þessi einstaki gripur, sem er innbundinn í kálfaskinn frá sautjándu öld, inniheldur safn þrjátíu og sex leikrita. 20.4.2006 21:30
Dóná vex enn Meira en fimmtíu þúsund hektarar lands eru nú alveg á kafi í Austur-Evrópu eftir vatnavextina í Dóná. Þúsundir manna hafa yfirgefið heimili sín undanfarna daga í Rúmeníu, þar sem nærri tvö hundruð hús eru gjörónýt eftir vatnselginn. 20.4.2006 19:30
Mótmælendur láta í sér heyra í Washington Falun Gong-liðar komust í dag nær Kínaforseta í Bandaríkjunum heldur en þegar forseti landsins kom til Íslands árið 2002. Einn mótmælenda náði að setja fund forseta Kína og Bandaríkjanna úr skorðum um stund í Washington í dag. 20.4.2006 18:45
Viktoríuvatn að hverfa Stærsta stöðuvatn Afríku gæti þornað upp á næstu áratugum ef fram heldur sem horfir. Vatnsborð Viktoríuvatns hefur ekki verið lægra í heil áttatíu ár. 20.4.2006 18:45
Listi yfir nöfn fanga gerður opinber Bandarísk stjórnvöld hafa gert opinberan lista yfir nöfn þeirra fanga sem eru í haldi í Guantanamo fangelsinu. Á listanum eru meira en fimmhundruð fangar frá fjörutíu og einu landi og sumir hafa verið í haldi í meira en fjögur ár. 20.4.2006 13:45
Skotbardagar og óeirðir í Nepal Allt logar í óeirðum í höfuðborg Nepals, þar sem skotbardagar geysuðu í morgun á milli lögreglu og mótmælenda úr röðum stjórnarandstæðinga í landinu. Tugþúsundir manna hafa virt útgöngubann í höfuðborginni að vettugi. 20.4.2006 13:15
Heimsmarkaðsverð á hráolíu þrefaldast á 4 árum Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur þrefaldast á fjórum árum. Olíumálaráðherra Írans segist ánægður með þessa þróun. 20.4.2006 12:45
Mannskæður eldur í Moskvu 11 létust og 4 slösuðust í miklum eldi sem braust út í gámum byggingaverkamanna rétt utan við Moskvu í Rússlandi. Verkamennirnir voru sofandi þegar eldurinn braust út og þeir sem létust vöknuðu aldrei og reykeitrum varð þeim að bana. 20.4.2006 11:00
Heimsmarkaðsverð á olíu rauk upp í gær Heimsmarkaðsverð á olíu rauk upp þriðja daginn í röð í gær. Verðið á tunnu endaði í rúmlega 72 bandaríkjadölum í New York í gær og hækkaði um nærri einn dal frá deginum áður. 20.4.2006 10:45
Ringulreið ríkir í Nepal Algjör ringulreið ríkir í Katmandu, höfuðborg Nepals, þar sem skotbardagar geysuðu í morgun á milli lögreglu og mótmælenda úr röðum stjórnarandstæðinga í landinu. Mótmælendurnir krefjast þess að Gyanendra konungur afsali sér einræðisvaldi sem hann tók sér fyrir rösku ári. 20.4.2006 10:30
Sagðir selja líffæri úr dauðadæmdum föngum Kínverjar selja líffæri úr þúsundum dauðadæmdra fanga á hverju ári, án samþykkis þeirra. Þetta fullyrða bresk samtök sem hafa eftirlit með líffæraflutningum. Kínversk stjórnvöld neita ásökununum. 19.4.2006 19:00
Hæstiréttur Ítalíu staðfestir sigur Prodi Hæstiréttur á Ítalíu staðfesti í dag sigur Romanos Prodis í þingkosningunum á Ítalíu. 19.4.2006 18:45
Scott McClellan segir af sér Scott McClellan, blaðafulltrúi Bush Bandaríkjaforseta, hefur sagt af sér. Bush sagði þetta ákvörðun McClellans. Miklar breytingar hafa verið gerðar á starfsliði forsetans síðustu daga en í gær skipaði hann nýjan fjárlagastjóra. Í lok síðasta mánaðar var skipt um starfsmannastjóra í Hvíta húsinu og búist er við að Karl Rove, einn helsti ráðgjafi forsetans, þurfi að segja af sér vegna hneykslismáls 19.4.2006 14:47
Sigur Prodis í kosningunum staðfestur Ítölsk fréttastöð greindi frá því fyrir stundu að æðsti dómstóll á Ítalíu hefði staðfest að Ólívubandalag mið- og vinstri flokka, með Romano Prodi í broddi fylkingar, hefði sigrað í þingkosningum þar í landi í síðustu viku. Fréttastöðin getur ekki heimilda en dómstóllinn sendir ekki frá sér formlega tilkynningu fyrr en eftir klukkan þrjú í dag að íslenskum tíma. 19.4.2006 14:16
Ekkert lát á flóðum í Rúmeníu Yfirvöld í Rúmeníu hafa þurft að flytja mörg þúsund íbúa frá heimilum sínum í suðurhluta landsins vegna vatnavaxta í Dóná. Ekkert lát virðist ætla að verða á flóðum á svæðinu sem þó benti til að yrði raunin í gær. 19.4.2006 14:15
Útilokar ekki notkun kjarnorkuvopna Bush Bandaríkjaforseti vildi í gær ekki útiloka að kjarnorkuvopnum yrði beitt gegn Írönum. Hann sagði alla möguleika uppi á borðinu í kjarnorkudeilunni við stjórnvöld í Teheran. Utanríkisráðherra Rússa hvatti í dag Írana til að hætta auðgun úrans, alþjóðasamfélagið krefðist þess. 19.4.2006 13:15
Íslamskir öfgamenn farið um Balkanskagann í 15 ár Íslamskir öfgamenn, með tengsl við Al-Qaeda hryðjuverkasamtökin, hafa ferðast fram og aftur yfir Balkanskagann í meira en fimmtán ár. Þessu er haldið fram í nýrri skýrslu um grunaða íslamska hryðjuverkamenn í Bosníu. 19.4.2006 12:59
Saddam fyrirskipaði fjöldamorð Saddam Hússein, fyrrverandi forseti Íraks, undirritaði skjöl þar sem fyrirskipuð voru morð á 148 sjía-múslimum árið 1982. Gögn þess efnis frá rithandarsérfræðingum voru lögð fyrir dóm í Írak í morgun. 19.4.2006 12:55
Pyntaður til að bendla aðra við árásir Indónesískur öfgamaður, sem bíður aftöku fyrir aðild sína að hryðjuverkaárásunum á Balí 2002, segir að hann hafi verið pyntaður til að bendla Abu Bakar Bashir, andlegan leiðtoga íslömsku öfgasamtakanna Jemaah Islamia, við árásirnar. 19.4.2006 09:00
Gætu neyðst til að loka herstöð Bakiyev, forseti Kirgistan, segir að svo geti farið að stjórnvöld þar í landi neyðist til að loka herstöð Bandaríkjamanna þar ef stjórnvöld í Washington vilji ekki semja á ný um leigugreiðslur fyrir það landstæði sem stöðin stendur á. 19.4.2006 08:45
Mótmælendur fylgja Kínaforseta hvert fótmál Fjögurra daga opinber heimsókn Hu Jintaos, forseta Kína, til Bandaríkjanna hófst í gær. Forsetinn snæddi þá kvöldverð með stofnanda Microsoft. Í dag mun hann svo funda með Bandaríkjaforseta. Mótmælendur fylgja Kínaforseta hvert fótmál. 19.4.2006 08:30
Kona nýr forsætisráðherra Suður-Kóreu Þing Suður Kóreu valdi í morgun í fyrsta sinn konu í embætti forsætisráðherra landsins. Han Myeong-sook hlaut 182 atkvæði af 259 en Roh Moo-hyun, forseti Suður Kóreu, útnefndi hana í embættið. 19.4.2006 07:30
Al-Qaida á ferð um Balkanskaga Íslamskir öfgamenn, með tengsl við Al-Qaida, hafa ferðast fram og aftur yfir Balkanskagann í meira en fimmtán ár. Þessu er haldið fram í nýrri skýrslu um grunaða íslamska hryðjuverkamenn í Bosníu. 19.4.2006 07:30
Forseti Kína í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna Fjögurra daga opinber heimsókn Hu Jintaos, forseta Kína, til Bandaríkjanna hófst í gær. Forsetinn átti meðal annars fund með Bill Gates, stofnanda Microsoft, og snæddi síðan með honum kvöldverð. 19.4.2006 07:15