Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögregla skaut á mannfjölda í Addis Ababa Lögreglan í Addis Ababa í Eþíópíu skaut að fólki sem safnast hafði saman í borginni í dag í tilefni af degi heilags Mikjáls. Að sögn vitna höfðu einhverjir tekið upp á því að loka götum og ögra lögreglu og sinnt í engu tilmælum lögreglumanna, sem varð til þess að þeir gripu til vopna sinna. 20.1.2006 17:49
Úrslit þingkosninganna í Írak tilkynnt í dag Úrslit þingkosninganna í Írak, sem fóru fram þann 15. desember síðastliðinn, voru tilkynnt í dag. Bandalag sjía-múslíma vann flest sæti, 128 sæti af 275. 20.1.2006 14:51
Andanefja synti upp Thamesá Vegfarendur við breska þinghúsið geta þessa stundina virt fyrir sér andanefju sem hefur synt upp ánna Thames og er nú kominn til Lundúna. Hundruð manna hafa safnast saman á árbökkunum til að fylgjast með andarnefjunni enda er þetta í fyrsta skipti svo vitað sé til sem slíkt dýr hefur synt alla leið upp til Lundúna. 20.1.2006 13:31
Flugbanni aflétt vegna hátíðahalda Tæplega sextíu ára flugbanni á milli Taívans og Kína hefur verið aflétt til að auðvelda þeim Taívönum sem búa í Kína að skreppa heim yfir hátíðirnar, en Kínverjar fagna nýju ári um þessar mundir. 20.1.2006 12:19
Íranar færa til fjármuni Íranar eru byrjaðir að færa til fjármuni sem þeir geyma á bankareikningum erlendis. Bankastjóri íranska seðlabankans segir ástæðuna vera þá að Íranar vilji hafa vaðið fyrir neðan sig ef gripið verður til efnahagsþvingana gegn þeim. 20.1.2006 10:00
Vilja brotthvarf frá Vesturbakkanum Meirihluti Ísraela er fylgjandi því að Ísraelar hverfi einhliða frá því landssvæði á Vesturbakkanum sem þeir hernámu í Sex daga stríðinu árið 1967. 51 prósent aðspurðra segjast fylgjandi þessu í nýrri skoðanakönnun fyrir ísraelska dagblaðið Maariv. 20.1.2006 09:15
Tyrkneskt þorp í sóttkví Bandarískir sérfræðingar settu tyrkneska þorpið Beypazari í sóttkví til að reyna að hefta útbreiðslu fuglaflensunnar í Tyrklandi. Sérfræðingarnir eru staddir í landinu til að aðstoða tyrknesk yfirvöld að ná tökum á útbreiðslu flensunnar en að minnsta kosti tuttugu og einn maður hefur látist af hennar völdum á þessu ári, þar af fjögur börn. 20.1.2006 08:30
Sýrlendingar styðja Írana Bashar Assad, leiðtogi Sýrlendina lýsti yfir stuðningi við kjarnorkutilraunir Írana eftir fund sem hann átti með forsætisráðherra Írana, Mahmoud Ahmadinejad, í gær. Bashar Assad sagði Vesturlandabúa ekki hafa rökstudd nægilega hvers vegna þeir eru andvígir tilraunum Írana. 20.1.2006 08:15
44 farast í flugslysi Einn komst lífs af og fjörtíu og fjórir fórust þegar herflugvél brotlenti í fjalllendi í norð-austur Ungverjalandi í gærkvöldi. Vélin var á leið frá Kosovo til slóvensku borgarinnar Kosice þegar hún brotlenti. Um borð voru 38 farþegar, þar af 28 slóvenskir hermenn sem voru á leið heim eftir að hafa verið við störf á vegum friðargæslusveitar Nató. 20.1.2006 07:00
Ofbeldisfullir mótmælendur hertóku götur Abidjan í dag Ofbeldisfullir mótmælendur hertóku götur Abidjan,stærstu borgar Fílabeinsstrandarinnar, í dag, fjórða daginn í röð. Friðargæsluliðar hafa þurft að beita táragasi til að halda aftur af æfum mótmælendum fyrir utan höfðustöðvar Sameinuðu þjóðanna í borginni. 19.1.2006 16:05
Sjálfsvígsárás í Ísrael Svo virðist sem palestínskur vígamaður hafi verið sá eini sem lét lífð þegar hann sprengdi sig í loft upp í miðborg Tel Aviv í Ísrael í dag. Fregnir herma að minnst 10 hafi særst. 19.1.2006 14:31
Mannfall í tveimur sprengjuárásum í Írak Að minnsta kosti 22 létu lífið og 26 særðust í tveimur sprengjuárásum sem gerðar voru nánast samtímis í Bagdad, höfuðborg Íraks, nú í hádeginu. 19.1.2006 13:29
Blásýra lak í Saxelfi. Vélabilun í efnaverksmiðju í Tékklandi er sögð hafa valdið því að töluvert af blásýru lak í ánna Saxelfi fyrir rúmri viku. Tékkar hafa varað Þjóðverja við mögulegri hættu af völdum blásýrunnar. 19.1.2006 12:42
24 hafa látist úr kulda í frosthörkum í Rússlandi Að minnsta kosti 24 hafa látist úr kulda í miklum vetrarhörkum sem geisa nú í Rússlandi. Um 30 stiga frost er í höfuðborginni Moskvu og frost fer allt niður í 50 stig í Síberíu. 19.1.2006 12:32
Ekki jafn kalt í Kína í þrjá áratugi Miklar vetrarhörkur ógna búfé og villtum dýrum í Norðurvestur-Kína. Frost hefur farið alveg niður í 43 gráður og hefur ekki verið jafn kalt í Kína í þrjá áratugi. 19.1.2006 12:26
Handteknir á Spáni fyrir að kaupa barnaklám Athafnamenn, bankamenn og prestur eru meðal þeirra 33 manna sem spænska lögreglan hefur handtekið fyrir að sækja sér barnaklám á Netinu. Eftir því sem fram kemur á fréttavef BBC er talið að fólkið hafi greitt fyrir efni á heimasíðum í Hvíta-Rússlandi og Bandaríkjunum, en lögregla hóf rannsókn á málinu eftir ábendingu frá bandarískum yfirvöldum. 19.1.2006 10:30
Hvalshræ fyrir utan Japanska sendiráðið í Berlín Grænfriðungar mótmæltu vísindahvalveiðum Japana með sérstökum hætti í gærkvöld. Þeir lögðu dauðan hval fyrir utan japanska sendiráðið í Berlín. Sendiráðsstarfsmenn reyndu að koma í veg fyrir mótmælin en gátu það ekki þar sem þau brutu ekki gegn þýskum lögum. 19.1.2006 09:46
Sex konum sleppt úr fangelsi í Írak Yfirvöld í Írak hafa ákveðið að láta sex íraskar konur lausar úr fangelsi þar í landi. Talsmaður íraska dómsmálaráðuneytisins segir þetta ekki tengjast máli bandarískrar blaðakonu sem er í haldi mannræningja í Írak. Þeir hafa krafist þess að allar konur sem hafi verið fangelsaðar í Írak verði látnar lausar ellegar myrði þeir blaðkonuna. 19.1.2006 09:45
Barnaklámsmál á Spáni Athafnamenn, bankamenn og prestur eru meðal þeirra þrjátíu og þriggja manna sem spænska lögreglan hefur handtekið fyrir að sækja sér barnaklám á Netinu. 19.1.2006 09:38
Vilja leyfa lítil vændishús í Bretlandi Breska ríkisstjórnin hyggst leyfa rekstur lítilla vændishúsa í þeirri viðleitni að tryggja betur öryggi þeirra áttatíu þúsund vændiskvenna sem starfa í landinu. Samkvæmt fyrirætlan stjórnarinnar mun tvær til þrjár vændiskonur geta fengið leyfi til að starfrækja vændishús. Samhliða þessu verður ráðist harðar gegn vændi á götum úti þar sem viðskiptavinir vændiskvenna eiga yfir höfði sér sektir. 19.1.2006 09:30
Reyndu að féfletta skyndibitastað Hjón sem lögðu á ráðin um að féfletta skyndibitastað í Bandaríkjunum, með afskornum fingri í skál af chili, hafa verið dæmd í 9 og 12 ára fangelsi fyrir athæfið. Það var fyrir tæpu ári sem Anna Ayala sagðist hafa bitið í fingurinn þegar hún fékk sér af chilinu á skyndibitastaðnum Wendy´s. 19.1.2006 09:00
Fangelsisvist fyrir að selja boli? Forráðamenn dansks fataframleiðslufyrirtækis gætu átt yfir höfði sér tíu ára fangelsi fyrir að setja á markað boli með merkjum tveggja skæruliðahreyfinga, en tæpur fjórðungur söluandvirðis bolanna rennur til hreyfinganna. 19.1.2006 09:00
Miklar vetrarhörkur í Rússlandi Að minnsta kosti tuttugu og fjórir hafa látist úr kulda í miklum vetrarhörkum sem geisa nú í Rússlandi. Um þrjátíu stiga frost er í höfuðborginni Moskvu og frostið fer allt niður í fimmtíu stig í Síberíu. 19.1.2006 08:45
Blásýra lak út í Saxelfi Vélabilun í efnaverksmiðju í borginni Kolin í Tékklandi olli því að töluvert af blásýru lak í ána Saxelfi. Mörg tonn af fiski hafa drepist í ánni en ekki liggur fyrir á þessari stundu hvað tjónið er mikið fyrir fiskimenn á svæðinu. 19.1.2006 08:30
Georgía herðir á aðgerðum gegn fuglaflensu Yfirvöld í Georgíu hafa hert á aðgerðum sínum til að koma í veg fyrir útbreiðslu fuglaflensu þar í landi. Ákveðið hefur verið að setja á stofn miðstöð þaðan sem reynt verður að hefta útbreiðslu hins hættulega H5N1 afbrigðis sjúkdómsins í öllum héruðum landsins 19.1.2006 07:30
Enn eitt dauðsfallið af völdum fuglaflensu Óttast er að ellefu ára gömul stelpa hafi látist af völdum fuglaflensu í Austur-Tyrklandi í gær. Talið er að stúlkan hafi sýkst af hinu hættulega H5N1 afbrigði veirunnar. Sýni voru send til höfuðborgarinnar Ankara til að fá þetta staðfest. Stúlkan var yngst 10 systkina og eina stelpan. 19.1.2006 07:15
Vilja að deilan fari fyrir Öryggisráðið Bretar, Frakkar og Þjóðverjar hafa formlega farið fram á að deilan um kjarnorkuáætlun Írana verði lögð fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Alls óvíst er að það verði samþykkt hjá Alþjóða kjarnorkumálastofnuninni. 18.1.2006 18:45
Lagt á ráðin um að ræna syni Blairs Bresk lögregla hefur komið upp um ráðabrugg um að ræna Leo, yngsta syni Tonys Blair, forsætisráðherra Bretlands. Breska götublaðið Sun greindi frá þessu í morgun. 18.1.2006 13:15
Fílabeinsströndin rambar á barmi borgarastyrjaldar Fílabeinsströndin rambar á barmi borgarastyrjaldar. Þetta segja uppreisnarmenn í landinu en töluvert hefur verið um mótmæli og árásir á friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna þar í landi síðustu dag. 18.1.2006 13:06
Gazprom dregur úr gassölu til Evrópu Rússneska gasfyrirtækið Gazprom hefur minnkað gasflæði til Ungverjalands og Bosníu-Hersegóvínu svo fyrirtækið geti annað innlendri eftirspurn en afar kalt er í Rússlandi þessa dagana. 18.1.2006 12:51
Milosevic óskar eftir læknisaðstoð frá Moskvu Stjórnvöld í Moskvu skoða nú hvort þau geti orðið við beiðni frá Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, þess efnis að hann fái að leita til rússneskra lækna vegna hjartveiki sinnar. 18.1.2006 12:47
Kauphöllinni í Tokyo lokað fyrr en vanalega Kauphöllinni í Tokyo var lokað í morgun tuttugu mínútum fyrr en venja er. Þetta er í fyrsta sinn sem það er gert en óttast var að tölvukerfið í kauphöllinni kynni að hrynja vegna mikilla viðskipta. 18.1.2006 09:38
Japönum fækkar Japönum fækkaði í fyrra, í frysta sinn síðan árið 1945.Fæðingatíðni í landinu fer ört lækkandi og er talið að hún fari allt niður í eitt og eitt fjórða barn á konu á þessu ári, en til samanburðar eignast hver íslensk kona að meðaltali rúmlega tvö börn á ævi sinni. 18.1.2006 09:30
Hóta að drepa bandarískan blaðamann Uppreisnarmenn í Írak hafa hótað að taka bandarískan blaðamann sem þeir hafa í haldi af lífi ef ekki verður orðið við kröfum þeirra um að öllum konum í írökskum fangelsum verði sleppt innan þriggja sólarhringa. Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera greindi frá þessu í gær og birti myndband af konunni en gaf ekki upp hvernig það hefði borist stöðinni. 18.1.2006 09:30
Japönum fækkar í fyrsta sinn í rúm 60 ár Japönum fækkaði í fyrra, í fyrsta sinn síðan árið 1945. Fæðingatíðni í landinu fer ört lækkandi og er talið að hún fari allt niður í 1,25 börn á konu á þessu ári, en til samanburðar eignast hver íslensk kona að meðaltali rúmlega tvö börn á ævi sinni. 18.1.2006 09:15
Uppreisnarmenn handteknir í Írak Danskar og írakskar hersveitir handtóku þrjátíu og sex uppreisnarmenn í víðtæku áhlaupi á vígi uppreisnarmanna norðan við borgina Basra í Írak á mánudaginn. 18.1.2006 09:14
Hjálparstarf í Kasmír lamað Dynjandi úrkoma og aurskriður hafa lamað hjálparstarf í fjöllum Kasmír síðan um helgina. Eftirlifendur jarðskálftans sem hafast við hátt uppi í fjöllum eru algerlega afskiptir. 18.1.2006 09:10
Fuglaflensufaraldur getur dregið milljónir til dauða Sameinuðu þjóðirnar og Alþjóðabankinn hafa varað þjóðir heims við því að hugsanlegur fuglaflensufaraldur geti dregið milljónir til dauða og telja að þörf sé á 90 milljörðum dollara á næstu þremur árum til að takast á við flensuna í fátækari ríkjum heims. 18.1.2006 09:05
Mannfall og mannrán í Írak Íraskir byssumenn myrtu í morgun tíu lífverði og rændu verkfræðingi frá Malawi í höfuðborginni Baghdad. 18.1.2006 09:03
Friðargæsluliðar drepnir í Haítí Tveir jórdanskir friðargæsluliðar voru skotnir til bana og sá þriðji særðist í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí í gær. Ráðist var á þá á varðstöð í borginni en þar hefur verið róstursamt að undanförnu. 18.1.2006 08:45
Komið upp um áform um að ræna syni Blairs Bresk lögregla hefur komið upp um ráðabrugg manna um ræna Leo, yngsta syni Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands. Frá þessu greinir götublaðið Sun. 18.1.2006 08:30
Bandarísk blaðakona í haldi andspyrnumanna Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera sýndi í gærkvöldi myndband sem sýnir bandaríska blaðakonu sem er í haldi andspyrnumanna í Írak. Ekkert hafði heyrst til Jill Carroll síðan henni var rænt 7. janúar síðastliðinn í Bagdað. Myndbandið er um 20 sekúndur. Með því fylgdu þau skilaboð að bandarísk stjórnvöld hefðu 3 sólahringa til að láta lausar þær írösku konur sem væru í fangelsi í Írak ellegar yrði blaðakonan myrt. 18.1.2006 08:00
Fuglaflensa hugsanlega komin upp í Írak Grunur leikur á að mannskæði stofn fuglaflensunnar sé kominn upp í norðurhluta Íraks. Embættismaður úr röðum Kúrda sagði í morgun að verið væri að rannsaka hvort rekja mætti nýlegt dauðsdall í Norður-Írak til fuglaflensunnar. 18.1.2006 08:00
Eyða kókaplöntum í Kólombíu Þúsundir hermanna voru sendir í þjóðgarð í Mið-Kólumbíu í gær til að eyða kóka plöntum sem þar eru að finna og notaðar eru til kókaínframleiðslu. Svæðið þar sem plönturnar er að finna er 4.600 hektarar og ráða FARC skæruliðar þar lögum og lofum. 18.1.2006 07:45
Dómstóll í Tælandi dæmir tvo menn Dómstóll í Tælandi hefur sakfellt tvo þarlenda fiskimenn fyrir að hafa nauðgað og myrt breskum ferðamanni. Mennirnir, sem eru báðir á þrítugsaldri, réðust á rétt rúmlega tvítuga konu á ferðamannaströnd á eyjunni Koh Samui. Mennirnir eiga yfir höfði sér dauðadóm og hefur Tahksin Shinawatra, forsætisráðherra Tælands, hvatt til þess að þeir hljóti þyngstu refsingu fyrir ódæðið. Glæpurinn hafi skaðað ímynd landsins og kunni að hafa afar slæm áhrif á ferðamannaiðnaðinn á Tælandi. 18.1.2006 07:30
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent