Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jórdanía: Sjálfsmorðsárásir á þremur hótelum Sprengja sprakk á þriðja hótelinu á skömmum tíma í Amman, höfuðborg Jórdaníu, fyrir skemmstu. Þriðja hótelið er Days Inn hótelið en áður hafði verið tilkynnt um sprengingar á hótelunum Radisson SAS og Grand Hyatt en öll hótelin eru vinsæl á meðal vestrænna ferðamanna. 9.11.2005 20:48
Forseti Kína í opinberri heimsókn í Bretlandi Hu Jintao, forseti Kína spásseraði um sali breska þingsins í dag og ræddi við breska ráðamenn, en hann er í opinberri heimsókn í Bretlandi. Mannréttindafrömuðir tóku honum ekki jafnvel heldur mótmæltu og veifuðu tíbetskum fánum. 9.11.2005 20:07
Lengsta samfellda flug farþegaþotu Boeing-flugvélaverksmiðjurnar sendu í morgun vél af gerðinni 777 í loftið frá Hong Kong og hún á ekki að lenda fyrr en á morgun, eftir tuttugu og þriggja tíma flug. Leiðin liggur frá Hong Kong yfir Bandaríkin til Evrópu, en vélin á að lenda á Heathrow í fyrramálið. Ef þetta tekst er um að ræða lengsta samfellda flug farþegaþotu, bæði mælt í tíma og kílómetrum. 9.11.2005 20:01
Fimm hið minnsta látnir í tveimur sprengingum í Jórdaníu Að minnsta kosti fimm eru látnir og fjörutíu særðir eftir að sprengjur sprungu á tveimur hótelum í Amman, höfuðbog Jórdaníu, fyrir stundu. Önnur sprengjan, sú fyrri að því er virðist, sprakk á Radisson-hótelinu sem er vinsælt á meðal ísraelskra ferðamanna. 9.11.2005 20:01
Venus Express skotið á loft Það tókst vel til í morgun þegar geimflauginni Venus Express var skotið á loft. Þar með hófst könnunarferð til Venusar, næsta nágranna jarðarinnar. Vísindamenn vonast til að verða margs vísari um hlýnun jarðar en hundrað sextíu og einn dag tekur fyrir flaugina að komast á áfangastað. 9.11.2005 19:59
Demókratar sigruðu í Virginíu og New Jersey George Bush, Bandaríkjaforseti, fékk á baukinn í gær þegar demókratar höfðu betur í ríkisstjórakosningum í lykilríkjunum Virginíu og New Jersey. Því til viðbótar höfnuðu kjósendur umbótatillögum sem Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, lagði til. 9.11.2005 19:53
Rannsakað hvernig fjölmiðlar fréttu af málinu Rannsókn er hafin á fregnum um leynifangelsi bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Tilgangurinn er að vísu ekki að komast að því hvort slík fangelsi séu til, heldur hvernig fjölmiðlar fengu veður af málinu. 9.11.2005 19:35
Blair galt afhroð í fyrsta sinn Í fyrsta sinn frá því að Tony Blair varð forsætisráðherra Bretlands galt hann í dag afhroð í þinginu. Þingmenn höfnuðu með afgerandi hætti drögum Blairs að hryðjuverkalögum þrátt fyrir ákafar tilraunir hans til að telja þingheimi hughvarf. 9.11.2005 19:14
Staðfest að stúlka lést úr fuglaflensu í Indónesíu Staðfest hefur verið að banamein 16 ára indónesískrar stúlku sem lést gær, hafi verið fuglaflensa og er hún þar með sjötta fórnarlamb veikinnar í Indónesíu, en alls hafa tíu greinst með flensuna í landinu. 9.11.2005 14:00
Mæla með aðild Makedóníu að Evrópusambandinu Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði til í dag að Makedóníu yrði veitt aðild að Evrópusambandinu, aðeins fjórum árum eftir að landið var á barmi borgarastyrjaldar. 9.11.2005 13:45
Lestarslys í norðurhluta Indlands Að minnsta kosti fimm létu lífið þegar yfirfull farþegalest og flutningalest rákust saman í norðurhluta Indlands í dag. Lögregla á staðnum segir enn fjölda fólks fastan í flaki eins vagnanna sem kramdist undir flutningalestinni, en áreksturinn var svo harður að fjórir farþegavagnar fóru út af sporinu. Því er óttast að tala látinna eigi eftir að hækka. 9.11.2005 13:30
Bandaríkjaher segist hafa yfirbugað uppreisnarmenn í Qusayba Bandaríski herinn segist hafa náð að handtaka eða drepa alla uppreisnarmenn í borginni Qusayba við landamæri Sýrlands. 9.11.2005 12:45
Óeirðir færast í vöxt utan Frakklands Útgöngubann og hert löggæsla skilaði tilætluðum árangri í París í nótt. Í öðrum borgum landsins og nokkrum borgum í Þýskalandi og Belgíu hafa óeirðir hins vegar færst í vöxt. 9.11.2005 12:03
Tvísýnt um örlög hryðjuverkafrumvarps í Bretlandi Bæði Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, og Jack Straw, utanríkisráðherra landsins, hafa verið kallaðir heim frá útlöndum til þess að taka þátt í mikilvægri atkvæðagreiðslu um umdeilt frumvarp bresku stjórnarinnar um varnir gegn hryðjuverkum sem bera á undir breska þingið í dag. 9.11.2005 10:30
Rannsakar hryðjuverkaspólur sem dreift var í moskum Lögregla í Vestur-Yorkshire á Bretlandi rannsakar nú hvort myndböndum og DVD-diskum þar sem hvatt er til hryðjverka og ofbeldis hafi verið dreift í tveimur moskum í bænum Dewsbury um helgina. 9.11.2005 09:45
Hamingjusamir jafna sig fyrr á flensu Fólk sem er í hamingjusömu sambandi á auðveldara með að sigrast á flensu en þeir sem eru ósáttir í hjónabandi. Niðurstöður nýrrar rannsóknar lækna í Birmingham benda til þess að bein fylgni sé á milli hamingju í hjónabandi og þess hve fljótt fólk jafnar sig af flensu. 9.11.2005 09:30
Brown kallaður heim frá Ísrael vegna þingmáls Ferð Gordons Browns, fjármálaráðherra Bretlands, til Miðausturlanda varð heldur endaslepp því skömmu eftir að hann kom til Tel Aviv í Ísrael í gær var hann kallaður aftur heim til að taka þátt í mikilvægri atkvæðagreiðslu um lög gegn hryðjuverkum sem bera á undir breska þingið í dag. 9.11.2005 08:45
Japanar kaupa fuglakjöt af Indverjum vegna flensu Japanar hyggjast í fyrsta sinn kaupa alifuglakjöt frá Indlandi vegna fuglaflensunnar sem geisar í Asíu. Japanar hafa hingað til keypt fuglakjöt frá Taílandi og Kína en eftir að fuglaflensa greindist þar hafa yfirvöld bannað allan innflutning þaðan. 9.11.2005 08:30
Geimskutla af stað áleiðis til Venusar Geimskutlan Venus Express tók á loft frá Kasakstan í nótt. Geimvísindastofnun Evrópu hefur hannað flaugina, sem er ætlað að rannsaka yfirborð plánetunnar Venus. Geimskotið í nótt heppnaðist vel, en því var frestað um tvær vikur eftir að rannsóknir leiddu í ljós bilun í hitastilli. 9.11.2005 08:15
Unglingur gerði skotárás í gagnfræðaskóla Fimmtán ára gamall drengur hóf í gær skothríð í gagnfræðaskóla í Tennessee í Bandaríkjunummeð þeim afleiðingum að einn lést og tveir særðust alvarlega. Sá sem lést var aðstoðarskólastjóri í skólanum og annar hinna særðu var skólastjórinn. Ástæða árásarinnar liggur ekki fyrir að sögn lögreglu. 9.11.2005 08:00
Mannskæð bílsprengjuárás í Baquba Bílasprengja sprakk í Írak í dag. Sjö írakskir lögreglumenn létust og níu manns særðust, þar á meðal þrír almennir borgarar, þegar bílasprengja sprakk í sjálfsmorðsárás á lögreglusveit. Árásin átti sér stað í borginni Baquba, sem er rétt norðan við Bagdad. 9.11.2005 07:45
CIA rannsakar upplýsingaleka um leynifangelsi Bandaríska leyniþjónustan hefur hafið rannsókn á því hvernig dagblaðið Washington Post komst yfir upplýsingar um meint leynifangelsi Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu. Leyniþjónustan hefur farið þess á leit að dómsmálaráðuneytið kanni hver hafi lekið upplýsingunum í Washington Post. 9.11.2005 07:30
Óeirðir áfram víða um Frakkland Útgöngubann og hert löggæsla skiluðu tilætluðum áhrifum í París í nótt. Mikið dró úr óeirðunum í borginni, en sömu sögu er ekki að segja úr öðrum borgum landsins. Í Lyon, Toulouse, Bordeux og Amiens héldu óróaseggir uppteknum hætti og þar logaði allt í óeirðum. 9.11.2005 07:09
Frakkar setja útgöngubann Jacques Chirac Frakklandsforseti lýsti í gær yfir neyðarástandi svo að setja mætti útgöngubann í óeirðabæjum. Villepin forsætisráðherra segir að uppræta verði misréttið sem innflytjendur megi stöðugt þola. 9.11.2005 06:45
Undirbúningur hryðjuverkaárásar var á lokastigi Ástralska lögreglan handtók sautján grunaða hryðjuverkamenn í morgun og segist með því hafa komið í veg fyrir meiri háttar hryðjuverkaárás í landinu. Undirbúningur árásarinnar á að hafa verið á lokastigi. 8.11.2005 19:47
Athugasemdir við framkvæmd kosninga Það fór eins og búast mátti við í þingkosningunum í Aserbædjan um helgina. Flokkur forsetans Ilham Alievs fagnaði sigri, en alþjóðleg eftirlitsnefnd taldi margt athugavert við framkvæmd kosninganna. 8.11.2005 19:46
Fimm stjörnu hótel í Kabúl Fjórum árum eftir að talibanastjórnin var hrakin frá völdum í Afganistan opnaði fyrsta fimm stjörnu hótelið í Kabúl. Sjálfur forsetinn, Hamid Karzai, var mættur til að fagna þessum áfanga, en viðurkenndi að það væru ýmis vandamál óleyst enn. 8.11.2005 19:45
Palestínskur unglingur drepinn Palestínskur unglingur var skotinn til bana af ísraelskum hermönnum í bænum Nablus á Vesturbakkanum í dag. Að sögn talsmanns Ísraelshers var skotið á hóp Palestínumanna sem talið var að hafi verið að reyna að koma fyrir sprengjum í vegkanti á svæðinu. 8.11.2005 17:59
Skipuleggjendur Hróarskeldurhátíðarinnar sýknaðir af skaðabótakröfu Skipuleggjendur Hróarskeldurhátíðarinnar voru í dag sýknaði í eystri landsrétti í Danmörku og þurfa því ekki að greiða aðstandendum ein fórnarlambsins bætur, sem fórst á tónlistarhátíðinni árið 2000 8.11.2005 17:06
Enginn möguleiki á sanngjörnum réttarhöldum Talsmaður lögmanna Saddams Husseins og samstarfsmanna hans sagði nú síðdegis að enginn möguleiki væri á sanngjörnum réttarhöldum á meðan öryggi manna væri ekki tryggt. Einn verjenda í málaferlunum gegn Saddam var skotinn til bana og annar særðist þegar skotið var á bíl þeirra í Bagdad í dag. 8.11.2005 16:15
Evrópuráðið hefur rannsókn á meintum leynifangelsum Evrópuráðið hóf í dag rannsókn sína á því hvort leyniþjónusta Bandaríkjanna, CIA, starfræki leynifangelsi í Austur-Evrópu. Bandaríska dagblaðið Washington Post greindi frá þessu í síðustu viku og sagði að þar væru meintir hryðjuverkamenn í haldi þar sem þeir væru pyntaðir til sagna. 8.11.2005 14:37
Ekki miklar breytingar á hryðjuverkafrumvarpi Breska ríkisstjórnin mun ekki gera veigamiklar breytingar á umdeildum hryðjuverkalögum sem leggja á fram á breska þinginu á morgun. Þetta segir Charles Clarke, innanríkisráðherra Bretlands. Búist hafði verið við að ríkisstjórnin myndi leggja fram málamiðlun um frumvarp vegna harðrar andstöðu við það í öllum þingflokkum en af því verður ekki. 8.11.2005 13:45
Skotið á verjendur í málaferlum gegn Hussein Einn verjenda í málaferlunum gegn Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, var skotinn til bana og annar særðist þegar skotið var á bíl þeirra í Baghdad í dag. Mennirnir voru verjendur samstarfsmanna Saddam Hussein, sem ákærðir eru fyrir glæpi gegn mannkyni. 8.11.2005 13:30
Forsetakosningar í Líberíu í dag Líberíumenn ganga í dag til seinni umferðar forsetakosninga sem eru þær fyrstu síðan fjórtán ára borgarastyrjöld í landinu lauk. Valið stendur á milli tveggja frambjóðenda, fyrrverandi knattspyrnugoðsins George Weah, sem hlaut flest atkvæði fyrri umferð kosninganna, og Ellenar Johnson-Sirleaf, hagfræðings sem menntuð er í Harvard og sækist eftir að verða fyrsta konan í leiðtogaemætti í Afríkuríki. 8.11.2005 13:00
Pólskir tannlæknar til Svíþjóðar Eins og sagt var frá í fréttum Bylgjunnar í gær telst það orðið til kosta meðal verkamanna á Austurlandi að kunna pólsku. Í framtíðinni gæti pólskukunnátta þó komið sér vel víðar. 8.11.2005 12:45
Veita leyfi til að koma á útgöngubanni Nokkuð dró úr uppþotum í úthverfum Parísar í gærkvöld eftir að frönsk yfirvöld tilkynntu að borgar- og sveitastjórnum yrði heimilt að setja útgöngubann til að stemma stigu við óeirðunum. Nóttin var þó ekki átakalaus því víða annars staðar í Frakklandi voru bílar brenndir og ráðist gegn lögreglu. 8.11.2005 11:00
Skútsiglingamenn í vandræðum Franskir og breskir björgunarmenn reyna nú að bjarga áhöfnum þriggja skútna sem lentu í óveðri vestur af Biscaya-flóa í nótt. Skúturnar voru að taka þátt í kappsiglingu milli Frakklands og Brasilíu þegar óveðrið skall á. Hefur tveimur þeirra þegar hvolft samkvæmt fréttavef breska ríkisútvarpsins og mastrið er brotið á því þriðja. 8.11.2005 10:30
Hermenn ákærðir fyrir misþyrmingar í Írak Fimm bandarískir hermenn í Írak hafa verið ákærðir fyrir að beita fanga harðræði nýlega. Frá þessu greinir Bandaríkjaher. Fimmmenningarnir eiga að hafa kýlt og sparkað í menn sem biðu þess að verða fluttir í fangelsi í landinu í byrjun september. 8.11.2005 09:45
Maður deyr af völdum fuglaflensu í Víetnam Yfirvöld í Víetnam hafa staðfest að banamein manns sem lést í lok október hafi verið fuglaflensa. Hann sá fyrsti sem deyr af völdum hennar eftir að hún greindist aftur í fuglum þar í landi í haust. Maðurinn, sem var 35 ár, dó eftir að hafa borðað kjúkling með fjölskyldu sinni en ættingjar hans hafa ekki kennt sér meins eftir átið. 8.11.2005 09:30
Viagra ekki bara stinningarlyf Þýskir vísindamenn hafa komist að því að Viagra er ekki eingöngu stinningarlyf, heldur virkar einnig á blóðrásarsjúkdóminn Raynauds. Sjúkdómurinn sem hrjáir aðallega ungar konur lýsir sér í hægri blóðrás til handa og fóta sem leiða til mikils handkulda, útbrota og skjálfta. Ekkert lyf hefur dugað á sjúkdóminn hingað til. En eftir nokkra vikna inngjöf Viagra sáust batamerki á flestum konunum. 8.11.2005 09:00
De Beers gefur frá sér eignarhald í námum De Beers demantafélagið, eitt áhrifamesta félagið á demantamarkaðinum, mun í dag láta 15 % af eignarhaldi sínu í suður-afrískum demantanámum í hendur svartra fjárfesta í landinu. Þetta mun vera ein mesta uppstokkun í hundrað og sautján ára sögu félagsins. 8.11.2005 08:55
Norsk lögreglukona sektuð Norsk lögreglukona hefur verið dæmd til að greiða 850.000 norskar krónur í sekt fyrir fjárdrátt. Fjárdrátturinn átti sér stað á margra ára tímabili án þess að nokkurn grunaði, en hin 39 ára gamla kona dró að sér fé við afhendingu vegabréfa til norskra ríkisborgara. Aftenposten sagði frá. 8.11.2005 08:52
Ákærðir fyrir stríðsglæpi Fimm grunaðir hryðjuverkamenn, sem eru í haldi í hinu bandaríska Guantanamo fangelsi á Kúbu, hafa verið ákærðir fyrir stríðsglæpi og munu mæta fyrir herrétt. Þar með hafa níu manns, sem sitja í Guantanamo, sætt ákæru. 8.11.2005 08:15
Sveitarstjórnir fá leyfi til að koma á útgöngubanni Sveitastjórnir í Frakklandi hafa fengið leyfi til að setja á útgöngubann frá og með morgundeginum. Þetta er gert til að reyna að stemma stigu við óeirðunum sem geisað hafa síðustu tólf kvöld í úthverfum Parísar og víðar um landið. 8.11.2005 07:30
Fjárhagstjónið verður mikið Alþjóðabankinn telur að heimsframleiðslan dragist saman um 50.000 milljarða króna á ári verði fuglaflensan að heimsfaraldri. 8.11.2005 07:00