Fleiri fréttir

Hæpnar forsendur lögreglu

Lögmaður VIP Club segir tálbeitur lögreglu hafa boðið fíkniefni í skiptum fyrir kynlífsþjónustu. Lektor í lögum segir aðferðir lögreglu vafasamar.

Ólína krefst rökstuðnings frá útvarpsstjóra

Ólínu Þorvarðardóttur segir það sæta verulegum tíðindum að Páll Magnússon útvarpsstjóri hafi fallið frá því ferli að ráða dagskrárstjóra útvarps og krefst skýringa.

Segja fækkun sjúkraflutningsmanna hættuleik

Stjórn Lögreglufélags Suðurlands hefur sent frá sér ályktun vegna niðurskurðar sem boðaður hefur verið í mönnun sjúkraflutninga Heilbrigðisstofnunnar Suðurlands í Árnessýslu.

Lögreglan leitar vitna að umferðarslysi

Lögreglan á Suðurnesjum óskar eftir vitnum að alvarlegu umferðarslysi, þar sem ekið var á gangandi vegfaranda síðastliðinn fimmtudag um klukkan 18:40.

Páll ræðir ekki ástæður í dagskrárstjóramáli

"Það er bara af ástæðu sem ég kýs að ræða ekki opinberlega,“ segir Páll Magnússon, útvarpsstjóri um þá ákvörðun sína að fresta því að ráða í stöðu dagskrárstjóra útvarps.

VG leggst gegn kvótavæðingu á makríl

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur óskað eftir sérstakri umræðu við sjávarútvegsráðherra um áform varðandi kvótasetningu á makríl.

Ríkissjóður í ruslflokk ef Seðlabankinn fjármagnar skuldaleiðréttingu

Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, segir að lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fari í ruslflokk ef Seðlabankanum verði gert með lagabreytingum að fjármagna skuldaleiðréttingarsjóð. Þetta kom fram á opnum fundi í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis í morgun

Töluvert frost um næstu helgi

Veðrið hefur sett svip sinn á höfuðborgarsvæðið síðastliðin sólahring en töluverð snjókoma hefur gert vart við sig.

Máli Steinars Aubertssonar gegn ríkinu frestað

Máli Steinars Aubertssonar gegn íslenska ríkinu hefur verið frestað um ótiltekinn tíma en aðalmeðferð í málinu átti að hefjast í Héraðsdómi Reykjavíkur eftir hádegi í dag.

Faldi byssu í snjó fyrir lögreglumönnum

Lögreglumenn frá Selfossi höfðu í gær afskipti af manni sem grunaður var um ólöglegar veiðar, en hann gróf byssuna og skot í snjó þegar hann sá til lögreglumannanna.

Hlíðarfjall opnar átta dögum fyrr

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli opnar rúmri viku fyrr en áætlað var. Svæðið verður opnað á föstudaginn næstkomandi klukkan 16 en til stóð að opna svæðið 30. nóvember.

Hóflegar launahækkanir betri fyrir launþega

Hóflegar launahækkanir í komandi kjarasamningum skila sér frekar í vasa launþega heldur en miklar hækkanir. Þetta kom fram í máli Þórarins G. Péturssonar, aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands, á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í morgun.

Erfiðar aðstæður hjá Vegagerðinni suður með sjó í nótt

"Þetta fór allt saman vel hér á höfuðborgarsvæðinu og vel gekk að ryðja götur borgarinnar,“ segir Jóhann Bjarni Skúlason, yfirverkstjóri hjá Vegagerðinni í Hafnafirði, en mikil úrkoma var í nótt og þurftu starfsmenn Vegagerðarinnar að hafa hraðar hendur.

Ráðist á heilsuhæli segja Hvergerðingar

Bæjarstjórn Hveragerðis segir vanþekkingu á Heilsustofnuninni í bænum í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Stofnun taki ein endurhæfingastofnana á sig allan niðurskurð sem áætlaður sé í málaflokkunum. Veruleg skerðing verði á þjónustu.

Þrettán ára í vímu á stolnum bíl

Þrettán ára piltur var handtekinn í Reykjavík á þriðja tímanum í nótt eftir að hafa ekið stolnum bíl í gegnum girðingu á eyju á Miklubrautinni og stungið af, en bíllinn var óökufær.

Mikill snjór í Keflavík

Snjó tók að kyngja niður í Reykjanesbæ upp úr miðnætti og kallaði lögreglan út björgunarsveitir í nótt, til að aðstoða ökumenn í föstum bílum um allan bæinn.

Sluppu ómeiddir úr veltu en bíllinn gjörónýtur

Þrír menn og tveir hestar sluppu ómeiddir þegar bíll með hestakerru hafnaði utan vegar á Hellisheiði í gærkvöldi. Tveir ferðamenn sluppu líka ómeiddir þegar bíll þeirra valt út af þjóðveginum um Kleifaheiði í gærkvöldi.

Engin endurnýjun á fimm árum hjá sérfræðilæknum

Engin endurnýjun hefur orðið í hópi sjálfstætt starfandi sérfræðilækna í fimm ár. Þriðjungur læknisverka er unninn af læknum yfir sextugt, 15% meira en 2007. Efast er um að hærri laun dugi til að fá lækna heim.

„Ótrúlegt að svona hugsun viðgangist“

Ólafur Ingvar Guðjónsson ók ölvaður fyrir fimmtán árum, þá 17 ára gamall, og reyndist sú ökuferð örlagarík. Hann lenti í árekstri við aðra bifreið sem í var ungt par. Kona lést í árekstrinum.

VIP synjað um rekstrarleyfi og lokað samdægurs

Lögreglan hefur rannsakað starfsemi VIP Club í Austurstræti frá því í sumar. Staðurinn hefur verið rekinn með rekstrarleyfi til bráðabirgða síðan í júní, en það leyfi rann út annan nóvember síðastliðinn. Það fékkst ekki endurnýjað.

Bílvelta á Hellisheiði

Bílvelta varð í kvöld á Hellisheiði. Slysið átti sér stað skammt frá skíðaskálanum í Hveradölum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi þá urðu ekki slys á fólki.

Rithöfundurinn Doris Lessing látin

Doris Lessing, rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi, er látin 94 ára að aldri. Að sögn umboðsmanns hennar lést hún í svefni á heimili sínu í London í morgun.

Flugvél Icelandair snúið við - hægri hreyfillinn bilaði

Flugvél Icelandair sem var á leið frá Glasgow til Íslands var snúið við eftir um hálftíma langt flug. Kristófer Helgason, útvarpsmaður á Bylgjunni, var um um borð. "Það kom tilkynning aftur í vél: "Mayday mayday, right engine down“, segir hann.

Sjá næstu 50 fréttir