Segja fækkun sjúkraflutningsmanna hættuleik Samúel Karl Ólason skrifar 18. nóvember 2013 15:52 Fækka á sjúkraflutningamönnum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands um fjóra. Mynd/Pjetur Sigurðsson
Stjórn Lögreglufélags Suðurlands hefur sent frá sér ályktun vegna niðurskurðar sem boðaður hefur verið í mönnun sjúkraflutninga Heilbrigðisstofnunnar Suðurlands í Árnessýslu. Þar á að fækka sjúkraflutningarmönnum úr 16 í 12 um áramótin. Með breytingunum verður sjúkraflutningamönnum á vakt fækkað úr fjórum í tvo, ellefu tíma sólarhringsins. Félagið segir það vera hættuspil. Því svæðið sem sjúkraflutningamennirnir sjá um sé stórt og verkefnin séu oft tímafrek. Því gæti útkallstíminn lengst við breytingarnar og svo gæti farið að engan sjúkrabíl væri að fá. Hér að neðan er ályktun Lögreglufélagsins í heild sinni: Öryggi borgaranna stefnt í voða? Stjórn Lögreglufélags Suðurlands harmar fregnir af boðuðum niðurskurði Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, hvað varðar fyrirkomulag sjúkraflutninga í Árnessýslu. Fækkun sjúkraflutningsmanna á vakt hverju sinni úr fjórum í tvo, 11 tíma sólarhringsins er hættuspil. Svæðið sem sjúkraflutningsmönnum stofnunarinnar er ætlað að sinna er stórt og verkefnin oft á tíðum tímafrek. Útkallstími í neyðartilvikum kann við boðaðar breytingar að lengjast, jafnvel gæti það farið svo að engan sjúkrabíl væri að fá. Það er ekkert launungarmál að niðurskurður af þessum toga getur kostað mannslíf! Stjórn Lögreglufélags Suðurlands hvetur til þess að hætt verði við boðaðar breytingar á mönnun sjúkrabifreiða Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Árnessýslu.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Sjá meira