Fleiri fréttir

Meirihluti ungs fólks íhugað að flytja til útlanda

Meirihluti ungs fólks undir þrítugu hefur hugsað um að flytja til útlanda á síðustu mánuðum samkvæmt skoðanakönnun MMR. Alls sögðust 56 prósent fólks í aldurshópinum 18 til 29 ára hafa íhugað að flytja frá Íslandi.

Hundruðum hefur verið hjálpað úr ánauð

Rauði krossinn á Íslandi hefur með stuðningi utanríkisráðuneytisins styrkt baráttu gegn þrælahaldi í Hvíta-Rússlandi með fjárhagsaðstoð og ráðgjöf undanfarin þrjú ár. Talið er að fórnarlömb mansals þar séu nú yfir 1.000 á ári.

Í minningu um Árna Vilhjálmsson

Brjóstmynd af Árna heitnum Vilhjálmssyni, prófessor og fyrrverandi stjórnarformanni HB Granda, var afhjúpuð við hátíðlega athöfn í Odda í byrjun vikunnar

Tjaldanesið dregið til Flateyrar

Björgunarskipið Gunnar Friðriksson er nú að draga fiskiskipið Tjaldanes GK til Flateyrar, eftir að vélarblinu varð í skipinu upp úr miðnætti og allt rafmagn sló út.

Tekinn á 170 í Árnessýslu

Lögreglan í Árnessýslu stöðvaði ökumann í Hveradalabrekkunum laust fyrir miðnætti eftir að bíll hans hafði mælst á tæplega 170 kílómetra hraða, en þrír farþegar voru í bílnum auk ökumanns.

Síldin mögulega komin í Kolgrafafjörð

Síld virðist vera farin að leita inn á Kolgrafafjörð á Snæfellsnesi og hafa háhyrningar sést þar á ferð innan við brúnna, sem er á þverun fjarðarins.

Þarf að bæta ímynd ÖBÍ segir formaður

Ellen J. Calmon, nýkjörinn formaður Öryrkjabandalags Íslands, vill þétta hóp aðildarfélaga bandalagsins og breyta baráttuaðferðum. Nærri 9% þjóðarinnar tilheyra bandalaginu og huga þarf að því hve stóran og ólíkan hóp er um að ræða.

Þungar skattaálögur vinna gegn jarðstrengjavæðingu

Skattaálögur stjórnvalda eru ein af ástæðum þess að jarðstrengir eru vart raunhæfur kostur til uppbyggingar flutningskerfis raforku, segir forstjóri Landsnets. Kostnaðarmunur á loftlínu og jarðstreng erlendis er lítill.

Á annað hundrað á útkallslista Hraunavina

"Hraunavinir ætla að halda áfram varðstöðu í Gálgahrauni,“ segir Skúli Bjarnason, lögmaður náttúrverndarsamtakanna. Hann segir að Vegagerðin hafi tilkynnt Hraunavinum á fundi að hún myndi hefja framkvæmdir í Gálgahrauni og því hafi menn ákveðið að hafa fólk á vakt í hrauninu.

Rándýrum reiðtygjum stolið

Brotist var inn í hesthús við Mánagrund á fimmtudag og stolið þremur hnökkum og 20 beislum, þar af þremur mjög dýrum.

Með þrjú kíló af amfetamíni

Tæplega þrítugur maður hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan hann kom til landsins frá Brussel 22. september síðastliðinn og tæp þrjú kíló af amfetamíni fundust vandlega falin í farangri hans.

Neyðarblysi skotið á loft við Reykjavík

Hjálparsveit skáta í Kópavogi og Björgunarsveitin Ársæll voru kallaðar út á tíunda tímanum í kvöld eftir að tilkynning barst um neyðarblys á lofti utan við Reykjavík.

Árni Páll: „Uppörvandi og mikil hvatning“

„Þetta er uppörvandi og mikil hvatning,“ segir Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar. Flokkurinn bætir við sig fylgi frá kosningum í vor og mælist nú með 19,7% fylgi samkvæmt könnun félagsvísindadeildar Háskóla Íslands.

Sirkuskrakkar leika listir sínar

Það er ekki daglegt brauð að sjá krakka ganga á stultum, jöggla hringjum og halda fjöðrum á lofti á nefinu á sér, en það er einmitt það sem við gerðum í dag. Hrund Þórsdóttir heimsótti Æskusirkusinn.

Besti flokkurinn með 37% fylgi

Besti flokkurinn er stærstur stjórnmálaflokka í Reykjavík ef marka má könnun sem Capacent framkvæmdi nýverið. Besti flokkurinn er með 37% fylgi í könnuninni og fær sjö borgarfulltrúa

Kjarreldar í Ástralíu: "Fólk er hrætt"

Óttast er að kjarreldar í Nýju Suður- Wales í Ástralíu færist í aukana á næstu dögum en hundruð heimila hafa þegar brunnið til grunna. Fólk er óttaslegið, segir íslensk kona sem þar býr.

"Þrælkun er til staðar á Íslandi"

Dæmi eru um þrælkun á Íslandi í dag, samkvæmt nýrri alþjóðlegri skýrslu. Framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands tekur undir þetta og þekkir til margra mála af því tagi.

Brynjar segir málflutning Margrétar ekki boðlegan

"Mikið er aumt að sjá fólk gera lítið úr hæfni ráðherra með niðurlægjandi hætti. Það var lenska þegar fyrrverandi forsætisráðherra átti í hlut og nú skal það vera utanríkisríkisráðherra,“ skrifar Brynjar Níelsson.

Óánægja innan BSRB með fjárlagafrumvarpið

Stjórn BSRB lýsir yfir vonbrigðum sínum með fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Fyrstu verk nýrrar stjórnar voru að hafna milljarða tekjum frá útgerðinni og ferðaþjónustunni.

Rúmar 30 milljónir uppá Skaga

Tveir skiptu með sér fyrsta vinning í sexföldum potti í lottóinu í gærkvöldi og hlaut hvor um sig rúmlega 31 milljón króna.

Átta ára börn spila harðbannaðan tölvuleik

Í mest selda tölvuleik í heimi eru ofbeldi, vændi og eiturlyfjanotkun daglegt brauð. Kennurum í Stykkishólmi blöskraði að börn niður í átta ára aldur spiluðu leikinn og sendu því bréf til foreldra. Börn hafa skiptar skoðanir á leiknum, eins og Hrund Þórsdóttir komst að í dag.

Ríkið ofrukkaði meðlag

Ríkið hefur hugsanlega ofrukkað alla meðlagsgreiðendur um mánuðinn þegar börn þeirra ná 18 ára aldri, en þá lýkur framfærsluskyldu samkvæmt lögum. Meðlagsgreiðandi sem lét á þetta reyna fékk meðlag endurgreitt.

Staða barna með málþroskaraskanir: "Tjáskipti eru mannréttindi"

Talmeinafræðingur segir marga í sinni stétt reiðubúna að færa þjónustu við börn með málþroskaraskanir inn í skóla og leikskóla, en til að það geti gerst þurfi að tækla ýmis úrlausnaratriði. Enginn heldur utan um þjónustu við þessi börn og biðtími eftir henni er rúmlega ár.

Hallarbylting í Öryrkjabandalaginu

Ellen Calmon var í dag kjörin nýr formaður Öryrkjabandalags Íslands. Hún bauð sig fram gegn Guðmundi Magnússyni, sitjandi formanni og hafði betur.

20 metra löng afmælisterta

Tölvulistinn fagnar 20 ára afmæli sínu um helgina. Af því tilefni tók bakaði Hafliði Ragnarsson úr Mosfellsbakaríi 20 metra afmælistertu fyrir um 2.000 manns sem búist er við að líti við í verslun Tölvulistans að Suðurlandsbraut 26.

Guðlaugur vill skilanefnd yfir Íbúðalánasjóð

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að nauðsynlegt sé að setja slitanefnd yfir Íbúðalánasjóð. Hann viðrar einnig hugmyndir um sameiningu sjóðsins við Landsbankann.

Bílvelta í Kömbunum

Bíll valt í Kömbunum. Lögreglan og sjúkraflutingamenn eru mættir á staðinn. Óljóst með meiðsli fólks.

Sjá næstu 50 fréttir