Fleiri fréttir

Forsetinn segir þjóðina eiga höfuðvaldið

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands ítrekaði það við setningu Alþingis í dag að þjóðin sjálf ætti höfuðvaldið og enginn ætti með það að skera úr um mál sem kæmu þjóðinni allri við, nema með vilja sem flestra meðal þjóðarinnar.

Birgitta fékk sæti Árna Johnsen

Mikil spenna var í þingmönnum þegar kom að því að raða í sæti í Alþingi í dag. Birgitta Jónsdóttir, pírati, fékk gamla stólinn hans Árna Johnsen og þingmaður Bjartar framtíðar átti í stökustu vandræðum með að hafa upp á sínum nýja samastað í þingsal.

Fjárveiting til þjóðkirkjunnar hækkar

Heildarfjárveiting til Þjóðkirkjunnar hækkar á næsta ári í nýju fjárlagafrumvarpi, fer úr 1.439 milljónum á þessu ári og í 1.474 milljónir 2014. Hækkunin nemur um 2,5% á milli ára.

Kaldar kveðjur í fjárlögum

Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar segir fjárlögin sýna forgangsröðun nýrrar ríkisstjórnar.

Gott fyrir eldri borgara að búa á Íslandi

Samkvæmt nýrri vísitölu sem mælir lífsskilyrði eldra fólks er Ísland í níunda sæti. Best er að búa í Svíþjóð og verst að búa í Afganistan á efri árum.

Breytingar á mataræði barna

Sex ára börn borða hlutfallslega minna af mettuðum fitusýrum og transfitusýrum í dag en fyrir áratug síðan. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem framkvæmd var á Rannsóknarstofu í næringarfræði og Landspítala Íslands.

Milljónir í eflingu löggæslu

Gert er ráð fyrir 500 milljón króna viðvarandi framlagi til að efla löggæsluna í landinu. Á sama tíma er gert ráð fyrir að 200 milljón króna framlag sem veitt var tímabundið til löggæslumála í fjárlögum 2013 verði fellt niður.

Barna- og vaxtabætur lækka

Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu er áætlað að barnabætur á næsta ári verði 10.2 milljarðar króna en á í fjárlögum þessa árs voru þær tæpir 10.8 milljarðar króna.

Hætt við stækkun FSU

Heildarfjárveiting íslenska ríkisins til framhaldsskóla á Íslandi lækkar um rúmlega 1,5 milljarð króna í fjárlögum síðasta árs. Þar af eru almennar launa- og verðlagsbreytingar 645 milljónir króna.

Tekjuskattur lækkar

Skatthlutfallið í miðþrepi tekjuskatts verður lækkað um 0,8 prósentustig samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Skatthlutfallið lækkar úr 25,8% í 25%.

Skólagjöld hækka um 25 prósent

Framlag íslenska ríkisins til Háskóla Íslands á næsta ári lækkar um 321,8 milljónir króna og skólagjöld verða hækkuð úr 60 þúsund krónum í 75 þúsund krónur í öllum ríkisreknum háskólum.

Mikilvægt að stöðva skuldasöfnun ríkissjóðs

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir gríðarlega mikilvægt að stefna að hallalausum fjárlögum til að stöðva skuldasöfnun ríkissjóðs. Bankaskatturinn verður notaður til að lækka skatta á fyrirtæki og heimili.

Landspítalinn fær enga innspýtingu - fé til tækjakaupa skorið niður

Tímabundið 600 milljóna króna framlag til spítalans vegna tækjakaupa er fellt niður. Hagræðingarkrafa á spítalann felur í sér hækkun á sértekjum sem verður náð með nýju legugjaldi. Um er að ræða nýtt gjald þar sem sjúklingar greiða 1.200 krónur fyrir hvern sólarhring sem þeir dvelja á Landspítalanum. Með þessu nýja gjaldi er spítalanum reiknaðar um 200 milljónir í sértekjur.

100 milljónir til hönnunar sjúkrahótels

Nýr Landspítali er ekki fyrirferðarmikill í nýju frumvarpi til fjárlaga. Til hans eru lagðar 100 milljónir króna til fullnaðarhönnunar á sjúkrahóteli.

Heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni sameinaðar

Kristján Már Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni verði sameinaðar. Þetta kemur fram í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2014. Eftir sameiningu stofnana verður ein stofnun í hverju heilbrigðisumdæmi, eins og lög um heilbrigðisþjónustu gera ráð fyrir. Þetta á við um Norðurland, Suðurland og Vestfirði.

Stefna á hallalaus fjárlög

Gert er ráð fyrir því að ríkissjóður skili tæplega 500 milljón króna afgangi á næsta ári miðað við fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar sem var kynnt í morgun. Þetta eru fyrstu hallalausu fjárlögin frá hruni.

Tóbak og áfengi hækka í verði

Tóbaksgjald og gjald á áfengi verður hækkað, samkvæmt lagabreytingu sem verður lögð fyrir Alþingi í næstu viku.

Konur tapa 15 milljónum á einni starfsævi

Umræður um kynbundinn launamun starfsmanna Reykjavíkurborgar eru til umfjöllunar hjá borgarstjórn. Jón Gnarr kynnti tillögu um aðgerðir gegn launamuninum og Sóley Tómasdóttir sagði konur tapa að meðaltali 15 milljónum á einni starfsævi.

„Þjóðin sjálf á höfuðvaldið“

Forsetinn lagði út frá grein Jóns Sigurðssonar frá árinu 1841 í ræðu sinni og sagði hann greinina móta grundvöll að lýðræðishefð Íslendinga.

Ummæli um Gillz dæmd ómerk

Stúlkan þarf auk þes að greiða 100 þúsund krónur í bætur til Egils, 30 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs og 800 þúsund krónur í málskostnað.

Háskalegur leikur í umferðinni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ferð bifreiðar sem var með kassa úr plasti í eftirdragi. Í kassanum sat ungur piltur og jafnaldri hans ók bílnum.

Fjórir læknar hafa sagt upp störfum í Vestmannaeyjum

Fjórir læknar hafa sagt upp hjá Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja síðasta hálfa árið. Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja segir menn þykja óvissuástandið sem ríki á stofnuninni óþægilegt. .

Konur ætla að fjölmenna á pallana

Konur sem starfa hjá Reykjavíkurborg hafa stofnað viðburð á Facebook þar sem þær hvetja allar konur sem starfa hjá Reykjavíkurborg til að fjölmenna á borgarstjórnarfund í dag þegar rætt verður um kynbundinn launamun kynjanna.

Lögreglan girðir af Alþingi

Töluverður viðbúnaður fyrir þingsetningunni sem hefst klukkan hálf tvö í dag. Boðað hefur verið til mótmæla.

Mótun fjölskyldustefnu til ársins 2020

Byggist á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um fjölskylduvænt samfélag þar sem allir þjóðfélagsþegnar eigi búa við jöfn tækifæri og öryggi og njóta lögvarinna réttinda.

Krefjast aðkomu að skipulagi Reykvíkur

Skipulagsmál höfuðborgar Íslands eru ekki einkamál íbúa Reykjavíkur eða kjörinna sveitarstjórnarmanna borgarinnar, heldur þjóðarinnar allrar,“ segir í bókun sveitarstjórnar Bláskógabyggðar sem fulltrúar annarra sveitarfélaga í skipulagsnefnd uppsveita Árnessýslu taka heils hugar undir.

Sjá næstu 50 fréttir