Innlent

Skar sig í anddyri velferðarráðuneytisins

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Maðurinn var með meðvitund þegar hann var fluttur á brott af sjúkraflutningamönnum.
Maðurinn var með meðvitund þegar hann var fluttur á brott af sjúkraflutningamönnum.
Maður var fluttur á brott frá velferðarráðuneytinu um tvöleytið í dag með áverka á handlegg. Hann hafði komið í anddyri ráðuneytisins og sagst ætla að skaða sjálfan sig. Samstundis var kölluð til lögregla og sjúkralið.

Maðurinn skar sig og að sögn sjónarvotta missti hann mikið blóð. Hann hafði þá afhent starfsmanni ráðuneytisins bréf þar sem hann sagðist ætla að skaða sig.

Maðurinn var með meðvitund þegar hann var fluttur á brott af sjúkraflutningamönnum. Maðurinn ógnaði ekki öðrum heldur beindist þetta að honum sjálfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×