Innlent

Landspítalinn fær enga innspýtingu - fé til tækjakaupa skorið niður

Svavar Hávarðsson skrifar
Landspítalinn fær ekki aukið rekstrarfé frá fyrra ári og eru framlög til spítalans í nýju fjárlagafrumvarpi í raun óbreytt. Frumvarpið gerir ráð fyrir að útgjöld ríkissjóðs vegna rekstrar spítalans nemi 38,5 milljörðum króna.

Tímabundið 600 milljóna króna framlag til spítalans vegna tækjakaupa er fellt niður. Hagræðingarkrafa á spítalann felur í sér hækkun á sértekjum sem verður náð með nýju legugjaldi. Um er að ræða nýtt gjald þar sem sjúklingar greiða 1.200 krónur fyrir hvern sólarhring sem þeir dvelja á Landspítalanum. Með þessu nýja gjaldi er spítalanum reiknaðar um 200 milljónir í sértekjur.

Þeir sem gerst þekkja rekstur Landspítalans benda á að með óbreyttu framlagi til rekstarins og niðurskurður á tækjakaupafé þýði í raun 2,5 til 3,5% niðurskurður til spítalans þegar allt er talið.

Í texta frumvarpsins segir að nú sé unnið að endurmati á þörf Landspítalans fyrir tækjakaup næstu ára og "er þess vænst að þau mál skýrist á haustdögum."

Einnig kemur fram að 15 milljóna króna tímabundið framlag vegna nýbyggingar Grensásdeildar - endurhæfingardeildar Landspítalans - er fellt niður.

Almennar launa- og verðlagsbreytingar nema 1,3 milljarði króna og að þeim meðtöldum verða útgjöld til spítalans tæplega 40 milljarðar króna.

Helstu breytingar á útgjöldum markast af framlagi til stofnanasamninga, sem gerðir voru í kjölfarið á jafnlaunaátaki stjórnvalda, að fjárhæð 881 milljón króna.


Tengdar fréttir

Mikilvægt að stöðva skuldasöfnun ríkissjóðs

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir gríðarlega mikilvægt að stefna að hallalausum fjárlögum til að stöðva skuldasöfnun ríkissjóðs. Bankaskatturinn verður notaður til að lækka skatta á fyrirtæki og heimili.

Stefna á hallalaus fjárlög

Gert er ráð fyrir því að ríkissjóður skili tæplega 500 milljón króna afgangi á næsta ári miðað við fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar sem var kynnt í morgun. Þetta eru fyrstu hallalausu fjárlögin frá hruni.

Barna- og vaxtabætur lækka

Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu er áætlað að barnabætur á næsta ári verði 10.2 milljarðar króna en á í fjárlögum þessa árs voru þær tæpir 10.8 milljarðar króna.

Tóbak og áfengi hækka í verði

Tóbaksgjald og gjald á áfengi verður hækkað, samkvæmt lagabreytingu sem verður lögð fyrir Alþingi í næstu viku.

Heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni sameinaðar

Kristján Már Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni verði sameinaðar. Þetta kemur fram í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2014. Eftir sameiningu stofnana verður ein stofnun í hverju heilbrigðisumdæmi, eins og lög um heilbrigðisþjónustu gera ráð fyrir. Þetta á við um Norðurland, Suðurland og Vestfirði.

Milljónir í eflingu löggæslu

Gert er ráð fyrir 500 milljón króna viðvarandi framlagi til að efla löggæsluna í landinu. Á sama tíma er gert ráð fyrir að 200 milljón króna framlag sem veitt var tímabundið til löggæslumála í fjárlögum 2013 verði fellt niður.

Tekjuskattur lækkar

Skatthlutfallið í miðþrepi tekjuskatts verður lækkað um 0,8 prósentustig samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Skatthlutfallið lækkar úr 25,8% í 25%.

Skólagjöld hækka um 25 prósent

Framlag íslenska ríkisins til Háskóla Íslands á næsta ári lækkar um 321,8 milljónir króna og skólagjöld verða hækkuð úr 60 þúsund krónum í 75 þúsund krónur í öllum ríkisreknum háskólum.

Hætt við stækkun FSU

Heildarfjárveiting íslenska ríkisins til framhaldsskóla á Íslandi lækkar um rúmlega 1,5 milljarð króna í fjárlögum síðasta árs. Þar af eru almennar launa- og verðlagsbreytingar 645 milljónir króna.

100 milljónir til hönnunar sjúkrahótels

Nýr Landspítali er ekki fyrirferðarmikill í nýju frumvarpi til fjárlaga. Til hans eru lagðar 100 milljónir króna til fullnaðarhönnunar á sjúkrahóteli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×