Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skálinn að Stöng er úreltur Efnt verður til hugmyndasamkeppni um hönnun ásýndar og umhverfis fornleifa við Stöng í Þjórsárdal. Fornleifavernd ríkisins stendur fyrir keppninni í samvinnu við Skeiða- og Gnúpverjahrepp og Arkitektafélag Íslands. 1.8.2012 06:00
Náttúran í ljósmyndasamkeppni Náttúra er þema þriðju ljósmyndakeppninnar sem Fréttablaðið stendur fyrir í sumar. Vonast er eftir fjölbreytilegum myndum sem fanga náttúru Íslands á áhugaverðan hátt og senda þátttakendur inn sínar eigin ljósmyndir. 1.8.2012 05:00
Hundrað ára hús að gistiheimili Félagið RR Hótel sem hefur hug á að kaupa eitt hundrað ára hús Félags bókagerðarmanna við hlið Þjóðleikhússins vill fá að að breyta eigninni í gistiheimili. 1.8.2012 04:30
Fái fleiri vegrið á Strandirnar „Full þörf er á veg-riði á þessum slóðum og raunar miklu víðar á Ströndum,“ segir á fréttavefnum strandir.is þar sem greint er frá því að nú sé unnið að uppsetningu vegriðs á Djúpvegi númer 61 þar sem hann liggur yfir Víðidalsá, rétt sunnan Hólmavíkur. Einnig sé ætlunin að setja veg-rið á sama vegi á nokkrum stöðum á Steingrímsfjarðarheiði í þessari lotu. „Sveitarstjórn Stranda-byggðar hefur sérstaklega bent á mikilvægi þess að vegrið verði sett á neðri kantinn í norðanverðum Kollafirði þar sem leiðin liggur um Forvaða og víðar þar sem kanturinn er mjög brattur og langt niður í fjöru,“ segir á strandir.is.- gar 1.8.2012 04:00
Færri aka göng undir Hvalfjörð Vegagerðin segir að nú í júlí hafi umferð um Hvalfjarðargöng dregist saman um tæp 6 prósent miðað við júlí í fyrra. Í júní dróst umferð um göngin hins vegar aðeins saman um 02, prósent miðað við í fyrra. „Mest dregst umferð saman á laugardögum eða um 10,5 prósent en það samsvarar því að um 750 færri bílum hafi verið ekið um Hvalfjarðargöng að meðaltali hvern laugardag í júlí,“ segir Vegagerðin og bætir við að samanlagt í júní og júlí hafi umferð um göngin minnkað um 3 prósent frá í fyrrasumar. „Það samsvarar því að um 230 færri bílum á sólarhring hafi verið ekið um göngin að meðaltali.“ - gar 1.8.2012 04:00
Niðurskurður haft veruleg áhrif á störf lögreglunnar Stefán Eiríksson, lögreglustjóri, segir að of langt hafi verið gengið í niðurskurði til löggæslu á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir fækkun afbrota þá sé ljóst að fækkun starfsmanna hafi haft veruleg áhrif á ýmsa þætti. 31.7.2012 23:06
Elísabet sóttist eftir hlutverki Bond-stúlkunnar Elísabet 2. Bretadrottning bað sérstaklega um að fá að leika Bond-stúlkuna í setningarathöfn Ólympíuleikanna. Drottninginn, sem 86 ára gömul, þótti taka sig vel út við hlið Daniel Craig sem fór með hlutverk spæjarans. 31.7.2012 22:51
"Skiltaskjálfta ber að sefa" "Þetta kemur mér á óvart," segir Jakob Frímann Magnússon, framkvæmdastjóri Miðborgarinnar okkar, aðspurður um ákvörðun byggingafulltrúa um að fjarlægja auglýsingaskilti sem sólarhringsfyrirvara í miðborginni. 31.7.2012 22:44
"Borgin ákveður og okkur ber að hlýða" Skiptar skoðanir eru um ákvörðun Reykjavíkurborgar um að fjarlæga rangstæð auglýsingaskilti í miðborginni á morgun. Kaupmaður á Laugavegi segir borgaryfirvöld ófær um að ræða málin. 31.7.2012 20:16
Jórunn lærir móðurmálið með undraverðum árangri Þrátt fyrir að hafa byrjað að læra íslensku fyrir þremur vikum hefur Jórunn Hjaltadóttir, átján ára gömul stúlka búsett í Noregi, náð ótrúlega góðum tökum á málinu. En framfarir hennar eru ekki einsdæmi. 31.7.2012 19:32
Vill ræða mál Nubos af yfirvegun Steingrímur J. Sigfússon segir betra að ræða mál Huangs Nubos af yfirvegun en að hrópast á í fjölmiðlum. Ríkisstjórnin mun skipa hóp ráðherra til að mynda afstöðu ríkisstjórnarinnar til framkvæmdana. 31.7.2012 19:04
Rangstæð skilti fjarlægð úr miðborginni Rangstæð skilti í miðborginni verða fjarlægð á morgun. Nokkuð hefur borið á því að undanförnu að auglýsingaskilti á gangstéttum hindri vegfarendur og hafa ábendingar þess efnis borist Reykjavíkurborg. 31.7.2012 17:37
Vefur borgarinnar liggur niðri Vefur Reykjavíkurborgar hefur legið niðri frá því klukkan hálf þrjú í dag en samkvæmt Hirti Grétarssyni, upplýsingatæknistjóra borgarinnar, er talið að lítil óværa hafi komist inn í kerfi borgarinnar. Hann segir að engin hætta sé á ferðum og að tjónið verði ekki neitt, nema þá helst að íbúar borgarinnar geti ekki sótt sér upplýsingar á vefinn. Einungis vefurinn reykjavikurborg.is liggur niðri en aðrir vefir borgarinnar eiga að virka, en þeir eru á þriðja hundrað. Vonast er til að hægt verði að opna vefinn um kvöldmatarleytið. 31.7.2012 16:40
Verjendur Annþórs og Barkar kæra til Hæstaréttar Verjendur Annþórs Kristján Karlssonar og Barkar Birgissonar munu kæra úrskurð Héraðsdóms Suðurlands, um að vitni fái að gefa skýrslu nafnlaust í máli gegn þeim, til Hæstaréttar. Annþór og Börkur eru grunaðir um að hafa orðið Sigurði Hólm Sigurðssyni, samfanga sínum, að bana á Litla Hrauni í vor. Þeir hafa að auki verið sökuð um fjölmörg alvarleg ofbeldisbrot, framin á liðnu ári á höfuðborgarsvæðinu. 31.7.2012 16:09
Börn í sérstakri hættu á tjaldsvæðum Mikil hætta getur skapast þegar bílar eru geymdir við hlið aftanívagna og tjalda en ekki á sérstökum bílastæðum, eins og áður tíðkaðist. Hætta er á því að ekið sé yfir fólk á tjaldsvæðum og eru börn í sérstakri hættu. Þetta segir Fjóla Guðjónsdóttir, forstöðumaður forvarna hjá Sjóvá. Hún segir að hér landi hafi orðið banaslys á tjaldsvæði sem rekja megi til þess að barn hljóp samsíða akandi bíl. Alltof algegnt sé að ekið sé um tjaldsvæði. Fjóla vill vekja athygli ökumanna og forráðamanna barna á þessari hættu nú þegar verslunarmannahelgina er framundan. 31.7.2012 14:47
Of Monsters and Men tilnefnd til MTV-verðlauna Íslenska hljómsveitin Of Monsters and Men er tilnefnd til MTV-verðlaunanna sem verða afhent í Los Angeles í byrjun september. Hátíðin er stærsta sinnar tegundar en hún er tileinkuð tónlistarmyndböndum frægra tónlistarmanna. Íslensku krakkarnir eru tilnefndir fyrir myndbandið við lagið Little Talks í flokknum; Besta listræna leikstjórn. Í sama flokki eru til að mynda söngkonan Katy Perry og tónlistarmennirnir Drake og Rihanna, tilnefnd. 31.7.2012 13:56
Öryggisþættir sem ber að hafa í huga um helgina Og í ljósi umferðarþungans sem er framundan er við hæfi að fara yfir helstu öryggisþætti sem ber að hafa í huga þegar ferðast er um þjóðvegi landsins. 31.7.2012 13:07
Talið er að 200 þúsund hafi flúið Aleppó Talið er að um 200 þúsund manns hafi flúið borgina Aleppó um helgina og undirbúa þjóðir sig undir aukin straum flóttamanna. Forstjóri Útlendingastofnunnar segir að hér á landi verði fylgt fordæmi annarra Evrópuþjóða um að fólk verði talið flóttamenn við það eitt að koma frá Sýrlandi og fái að auki viðbótarvernd. 31.7.2012 12:54
Árni Páll: Styrking krónunnar jákvæð - ríkisfjármálin aðalmálið Styrking krónunnar undanfarin misseri og innflæði á gjaldeyri sem það hún byggist á er fagnaðarefni, segir Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra. Hann segir ríkisfjármálin skipta miklu máli ef stíga eigi skref í átt að afnámi gjaldeyrishafta. 31.7.2012 12:08
Íslenska sendiráðið ekki rýmt Starfsmenn íslenska sendiráðsins í Osló þurfa ekki að rýma bygginguna þar sem húsnæðið er ekki innan 500 metra radíus frá dularfulla pakkanum undir bíl við bandaríska sendiráðið. Sprengjusveit lögreglunnar er á staðnum er að rannsaka pakkann sem grunur leikur á að sé sprengja. 31.7.2012 10:40
Slökkviliðið kallað að lögreglustöð vegna vatnsleka Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að lögreglustöðinni við Hverfisgötu rétt fyrir klukkan sex í morgun, vegna vatnsleka. 31.7.2012 08:20
Metþátttaka á unglingalandsmóti UMFÍ Metþáttaka verður í unglingalandsmóti UMFÍ sem haldið verður á Selfossi um verslunarmannahelgina. 31.7.2012 06:57
Time fer mjög lofsamlegum orðum um strákana okkar Bandaríska tímaritið Time fer mjög lofsamlegum orðum um strákana okkar eða íslenska landsliðið í handbolta á Ólympíuleikunum. 31.7.2012 06:47
Áslaug Arna sjálfkjörin í embætti formanns Heimdallar Sjálfkjörið verður í formannssætið og í ellefu manna stjórn Heimdallar á aðalfundi félagsins á morgun. 31.7.2012 06:40
Grindhvalavaðan horfin frá Akranesi Ekkert hefur spurst til grindhvalavöðunnarsem lónaði ut af Njarðvík í fyrradag og Akranesi í gærmorgun. Talið er að allt að tvö hundruð dýr séu í vöðunni. 31.7.2012 06:55
No Borders skora á Icelandair að falla frá málshöfðun Samtökin No Borders í Reykjavík skora á stjórnendur Icelandair að falla frá höfðun skaðabótamáls gegn tveimur hælisleitendum, sem freistuðu þess að komast frá Íslandi með flugvél Icelandair nýverið. 31.7.2012 06:52
Maður handtekinn eftir innbrot í söluturn Lögreglan handtók um tvö leitið í nótt karlmann, sem er grunaður um að hafa brotist inn í söluturn við Dalshraun. Talið er að hann hafi stolið nokkru magni af tóbaki, en ekki kemur fram hvort hann hafði komið þýfinu undan. 31.7.2012 06:50
Vandræðamál fyrir ríkisstjórnina Áhugi kínverska fjárfestisins Huang Nubos á kaupum á Grímsstöðum á Fjöllum undir ferðamannaaðstöðu hefur verið ríkisstjórn Íslands vandræðamál. Innanríkisráðherra hefur reynt að stöðva málið en samráðherrar hans hafa verið því fylgjandi. Ræða á málið í ríkisstjórn í dag. 31.7.2012 06:30
Vegabréfin rjúka út þetta árið Þjóðskrá Íslands gaf út mun fleiri vegabréf í júní heldur en á sama tíma í fyrra. Munurinn nemur 22,5 prósentum. Í júní voru 6.932 vegabréf gefin út en í fyrra voru þau 5.658. 31.7.2012 06:30
Sléttuvegurinn alls ekki sléttur Árvakur lesandi sendi Fréttablaðinu myndir frá Sléttuvegi við Fossvog. Fræst hefur verið upp úr veginum og mikið af glerbrotum liggur nú í fræsingunni. Einnig er stígur í botni götunnar lýstur upp, en stígurinn sjálfur einungis malarvegur. 31.7.2012 06:00
Snoop Dogg má ekki fara til Noregs í tvö ár Rapparanum Calvin Cordozar Broadus Jr., eða Snoop Dogg, hefur nú verið meinað að koma til Noregs næstu tvö árin. 31.7.2012 06:00
Sjómenn vilja breytt lög um strandveiðar Breyta ætti lögum um strandveiðar svo veiðidagar hitti ekki á tímabil þar sem fiskverð er lágt segir formaður smábátasjómanna. Þrátt fyrir viðræður náðist ekki samkomulag um að fresta strandveiðum þar til eftir verslunarmannahelgi. 31.7.2012 05:30
Kortleggja mannréttindi Komið hefur verið á fót verkefnisstjórn þriggja ráðuneyta, innanríkis-, velferðar- og utanríkisráðuneytis, um kortlagningu og stefnumótun í mannréttindamálum. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, stýrir starfinu, en kynna á ríkisstjórn áfangaskýrslu í byrjun september. 31.7.2012 05:00
Hraktir á land og síðan burt „Þetta var alveg ótrúlegt að sjá,“ segir Guðmundur Bjarki Halldórsson sem í gærmorgun varð vitni að því er yfir tvö hundruð dýra grindhvalavaða athafnaði sig fáa tugi metra frá landi á Akranesi. 31.7.2012 05:00
Flug krónunnar gefur svigrúm Seðlabankinn ætlar að tvöfalda kaup sín á evru af viðskiptavökum á gjaldeyrismarkaði hérlendis. „Aukið innflæði og styrking krónunnar gefa svigrúm til þess að auka nokkuð kaup Seðlabankans. Telur bankinn æskilegt að gjaldeyriskaupin standi undir vaxtagreiðslum vegna erlendra skulda ríkissjóðs og að hlutfall óskuldsetts gjaldeyrisforða hækki til lengri tíma litið,“ segir í tilkynningu frá bankanum sem hyggst nú kaupa eina milljón evra vikulega á hverjum viðskiptavaka á markaði í staðinn fyrir hálfa milljón evra eins og verið hefur í tæp tvö ár. Búast má við að þessi gjaldeyriskaup veiki gengi íslensku krónunnar. - gar 31.7.2012 04:30
Fara yfir öryggisleit á Leifsstöð Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hyggst fara yfir fyrirkomulag öryggisleitar á Keflavíkurflugvelli til að skera úr um hvort lengra sé gengið í þessum málum hér á landi en annars staðar. Þetta kemur fram í frétt á vefnum Túristi.is. 31.7.2012 04:30
Fara á hlaupahjólum landshorna á milli David og Andrea hófu í gær ferð sína frá Reykjavík til Egilsstaða á hlaupahjólum. Þeir hafa aðeins fimmtán daga og nota þennan merkilega fararskjóta því gangan tekur of langan tíma. Toppurinn á tilverunni að ferðast á Íslandi. 31.7.2012 04:00
"Mikilvægasta lið ÓL? Nú, íslenska handboltalandsliðið" "Fyrir okkur er handbolti ekki aðeins íþrótt, heldur sjálfur mergur þjóðarsálarinnar.“ Þetta sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í samtali við fréttamann bandaríska tímaritsins Time, stuttu eftir að íslenska handboltalandsliðið hafði borið sigur úr býtum gegn Argentínumönnum. 30.7.2012 23:29
Líðan erlenda parsins óbreytt Líðan erlenda parsins sem flutt var á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar í gærkvöld er óbreytt. Þau lentu bílslysi á Steingrímsfjarðarheiði. 30.7.2012 23:02
Betri nýting bílastæða fæst með gjaldtöku „Það eru skiptar skoðanir um þetta. En ég held að þetta muni frekar vera til góðs heldur ills." Þetta segir Karl Sigurðsson, bæjarfulltrúi Besta flokksins og formaður umhverfis- og samgöngunefndar. Gjaldskrá bílastæðasjóðs tók formlega breytingum í dag. Er nú mun dýrara að leggja í skammtímabílastæði en áður. 30.7.2012 20:30
Segir tekjublöðin gefa ranga mynd af auð Íslendinga Ríkustu Íslendingarnir eru miklu ríkari en tölur tekjublaðanna gefa upplýsingar um. Þetta segir prófessor við Háskóla Íslands. Ástæðan sé sú að ekki séu upplýsingar um fjármagnstekjur og margar eignir séu auk þess í skattaskjólum. 30.7.2012 20:00
Íbúðalánasjóður selur 25 íbúðir á einu bretti Íbúðalánasjóður hyggst setja þrjár blokkir á Selfossi á sölu í einu lagi í haust. Vonast er til þess að leigufélög kaupi eignirnar og þannig verði skorturinn á leighúsnæði á Árborgarsvæðinu leystur. Formaður bæjarráðs fagnar því að hreyfing sé komin á málið. 30.7.2012 19:15
Sautján ára og synti tvöfalt Viðeyjarsund Sautján ára gömul sjósundskona synti tvöfalt Viðeyjarsund í gærkvöldi. Hún stefndi á að synda Ermasundið í september en varð að fresta því vegna meiðsla. 30.7.2012 18:45
Búið að fella 69 tarfa Búið er að fella 69 hreindýrstarfa, en í gær voru liðnar tvær vikur frá því að hreindýratímabilið hófst. Einungis verður heimilt að veiða tarfa fram að 1. ágúst en þá verður einnig heimilt að veiða kvígur. Alls verður heimilt að veiða 1009 dýr. 30.7.2012 16:36
Forsetinn settur í embætti í fimmta sinn Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, verður settur í embætti í fimmta sinn eftir hádegi á miðvikudag. Athöfnin hefst með því að Lúðrasveit Reykjavíkur leikur ættjarðarlög á Austurvelli klukkan þrjú. Hálftíma siðar ganga forseti Íslands og forsetafrú, handhafar forsetavaldsins, biskup Íslands og fleiri frá Alþingishúsi i Dómkirkju þar sem fram fer helgistund í umsjá biskups Íslands. Um klukkan fjögur fer svo embættistakan sjálf fram. 30.7.2012 16:01