Hundrað ára hús að gistiheimili 1. ágúst 2012 04:30 Félag bókagerðarmanna auglýsti húseign sína til sölu fyrr á árinu. Fréttablaðið/Daníel
Félagið RR Hótel sem hefur hug á að kaupa eitt hundrað ára hús Félags bókagerðarmanna við hlið Þjóðleikhússins vill fá að að breyta eigninni í gistiheimili. Í bréfi RR Hótels til skipulagsyfirvalda í Reykjavík er spurt hvort breyta mætti húsinu að innan auk þess að setja á það þakglugga á báðar súðir, tvennar svalir og breyta gluggum í dyr á norðurhlið hússins. Í umsögn frá Húsafriðunarnefnd segir að ekki séu gerðar athugasemdir við breytingar innanhúss ef þær taki mið af upphaflegum frágangi. Eins leggur nefndin áherslu á að breytingar utanhúss taki mið af aldri og gerð hússins. Skipulagsstjórinn í Reykjavík segir breytta notkun hússins samrýmast deiliskipulagi svæðisins. Hins vegar sé ekki heimilt að gera breytingar á ytra byrði hússins því það njóti verndar 20. aldar bygginga. Málið hefur enn ekki verið afgreitt. Húsið á Hverfisgötu 21 er byggt árið 1912 eftir teikningum Steingríms Guðmundssonar og Finns Thorlacius arkitekts. Það er tvær hæðir auk riss og kjallara. Þar hafa löngum verið leigðir út salir undir veisluhald. Gert er ráð fyrir allt að níu gistirýmum eftir breytinguna. RR Hótel rekur nú þegar gistihúsið Reykjavik Residence á Hverfisgötu 45. Þar var norska sendiráðið áður til húsa og einnig Söngskólinn í Reykjavík.- gar
Mest lesið Alelda bíll á Emstruleið Innlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Sjá meira