Fleiri fréttir Fólskuleg líkamsárás í Þorlákshöfn Ráðist var á mann þar sem hann var að kasta af sér þvagi á bak við skemmtistaðinn Happy hour í Þorlákshöfn rétt fyrir klukkan tvö aðfaranótt laugardags. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var árásarmaðurinn einn á ferð og réðist aftan að fórnarlambinu og tókst að koma honum niður og lét hnefahögg dynja á andliti mannsins sem leiddi til nefbrots. 30.7.2012 13:13 Mikilvægt að efla íslenska kornrækt til að mæta hækkunum Hækkun heimsmarkaðsverðs á korni gæti leitt til verðhækkana á íslenskum matvælum. Mikilvægt er að efla íslenska kornrækt til að mæta hækkunum á innfluttu korni segir formaður Svínaræktarfélags Íslands. 30.7.2012 12:18 Í lífshættu eftir bílslys Erlenda parið, sem flutt var á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar seint í gærkvöldi eftir bílslys á Steingrímsfjarðarheiði, liggur á gjörgæslu. Samkvæmt vakthafandi lækni er maðurinn í lífshættu og er haldið sofandi í öndunarvél. Konan er minna slösuð. Þau eru á milli tvítugs og þrítugs. 30.7.2012 11:58 Slökkviliðið fékk lykla að Laugaveginum Slökkviliðið fékk í morgun lykla af hliðum á Laugaveginum en slökkviliðsmenn höfðu gagnrýnt að Laugaveginum væri lokað og neyðarbílar kæmust ekki í gegnum hliðin. Höskuldur Einarsson, hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir þó æskilegast ef hægt væri að opna hliðin með fjarstýringu því seinlegt sé fyrir slökkviliðsmenn að stökkva út úr bíl og opna tvískipt hlið ef eitthvað ber útaf. Fulltrúar slökkviliðsins og Reykjavíkurborgar ætla að hittast til þess að ræða þessi mál í þaula. 30.7.2012 11:50 Þrír hvalir strönduðu í flæðamálinu Hvalaskoðunarbátar frá Reykjavík, sem var fullur af ferðamönnum, sigldi full nærri grindhvalavöðunni sem stödd er út af Leyni á Akranesi um tíuleytið í morgun. Fram kemur á vef Skessuhorns að styggð hafi komið að hvölunum og þeir stefnt í land. Þrír hvalir strönduðu þá í flæðarmálinu sunnan við Höfða en tveir menn á vöðlum óðu út og komu þeim til bjargar. 30.7.2012 11:16 Grindhvalavaða við Akranes Grindhvalavaða er núna rétt fyrir utan Akranes og sést hún vel frá bænum. Valentínus Ólason, íbúi á Akranesi, segist í samtali við Vísi hafa fylgst með henni úr stofuglugganum hjá sér. Lögreglan á Akranesi hafði einnig orðið vör við hvalina. Lögreglumaður sem Vísir talaði við sagði að um væri að ræða á bilinu 1-200 dýr. Þau munu hafa verið svamlandi fyrir utan bæinn frá því snemma í morgun. 30.7.2012 09:46 Synti tvöfalt Viðeyjarsund aðeins 17 ára gömul Írena Líf Jónsdóttir, 17 ára stúlka úr Reykjanesbæ, synti tvöfalt Viðeyjarsund í gærkvöldi. 30.7.2012 07:00 Tímasetningar hjá íslensku keppendunum á ÓL Það hefur varla farið framhjá nokkrum manni að Ólympíuleikarnir standa sem hæst þessa dagana og fjöldi Íslendinga tekur þátt. Eiríkur Stefán Ásgeirsson, íþróttafréttamaður á 365 miðlum, stendur vaktina í London. Hann hefur tekið saman tímasetningar á viðburðum hjá íslensku keppendunum næstu dagana og þær má finna hér. 30.7.2012 13:43 Allt að 200 dýr í torfunni Talið er að allt að 200 grindhvalir séu svamlandi í sjónum við Leyni á Akranesi. Skagamenn urðu þeirra varir þegar þeir vöknuðu í morgun. Valentínus Ólason náði þessum myndum af hvölunum um tíuleytið. Eins og fram kom í fréttum um helgina sást líka Grindhvalavaða í Innri-Njarðvík um helgina. Gísli Víkingsson hvalasérfræðngur segir í samtali við Morgunblaðið í dag að það gerist af og til að hvalavöður sjáist svo skammt frá landi. Gísli rifjar upp að árið 1986 sáust hvalir við Þorlákshöfn og voru þeir nánnast komnir á þurrt þegar menn sáu til þeirra. 30.7.2012 10:28 Barnabætur og fæðingarorlofsgreiðslur hækkaðar Ríkisstjórnin hefur áform um að lengja fæðingarorlof og hækka barnabætur á fjárlögum næsta árs. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir það hafa verið til umræðu í ríkisstjórn hvernig nýta eigi hugsanlegt svigrúm í ríkisfjármálum á næsta fjárlagaári. 30.7.2012 10:00 Fjórar lögreglukonur á vakt Fimm lögreglumenn eru á vakt hjá lögreglunni á Selfossi í dag sem er kannski ekki svo óeðlilegt yfir sumartímann. En af þessum fimm lögreglumenn eru fjórar konur. Það hefur ekki áður gerst í sögu lögreglunnar í Árnessýslu að svo margar konur séu saman á vakt innan lögreglunnar. 30.7.2012 09:48 Dæmdur fyrir hraðbankasvindl Erlendur karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur til níu mánaða fangelsisvistar þann 20. júlí síðastliðinn, eftir að hafa orðið uppvís að því að hafa komið fyrir afritunarbúnaði á hraðbanka í miðborg Reykjavíkur. Maðurinn hóf afplánun dómsins strax. Einungis átta dögum áður var maðurinn handtekinn á Akureyri eftir að rannsókn lögreglu leiddi hana á spor hans, en búnaðurinn fannst þann 7. júlí. Það leið því ekki langur tími frá því að upp komst um brotið þar til dómur féll. 30.7.2012 09:34 Fundu ólöglega netalögn á Ströndum Lögreglumenn frá Ísafirði og fulltrúar frá Fiskistofu fundu ólöglega netalögn vestur á Ströndum, þegar þeir fóru þar um í eftirlitsflugi með Landhelgisgæslunni. 30.7.2012 07:09 Völuspá fyrir augum höfundar Bolvíkingar afhjúpuðu á laugardag skilti með Völuspá áletraðri og upplýsingum um Þuríði Sundafylli og Völu-Stein son hennar. Þau mæðgin eru landnámsmenn Bolungarvíkur og hallast margir fræðimenn að því að annað hvort þeirra hafi samið Völuspá. 30.7.2012 07:00 Síbrotamaður handtekinn eftir hótelþjófnaði Maður var handtekinn í nótt, grunaður um ítrekaðan þjófnað, meðal annars frá gestum á hótelum í Reykjavík. 30.7.2012 06:55 Bandaríska neyðarlínan 911 bað Gæsluna um aðstoð Bandaríska neyðarlínan 911 hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar vegna skilaboða um gerfitungl á sjöunda tímanum í gærkvöldi, frá svonefndum persónuneyðarsendi, sem benti til þess að einhver væri í neyð vestur á Ströndum. 30.7.2012 06:25 Banaslys á Steingrímsfjarðarheiði Íslenskur karlmaður beið bana og tveir útlendingar slösuðust mjög alvarlega þegar bíll valt út af þjóðveginum um Steingrímsfjarðarheiði, Hólmavíkurmegin, seint í gærkvöldi. 30.7.2012 06:20 Svíi kaupir jarðir og ár í Ísafjarðardjúpi John Harald Örneberg, sem er sænskur timburframleiðandi, hefur fest kaup á þremur og hálfri jörð við Ísafjarðardjúp. Þeim fylgir tæpur helmingshlutur í ánum Langadalsá og Hvannadalsá. 30.7.2012 06:00 Rúturnar færðar lengra frá Leifsstöð ?Það er langur gangur frá útgangi Leifsstöðvar og út á nýja rútustæðið, sérstaklega þegar maður er með ferðatöskur á kerru,? segir Þorbjörg Jónsdóttir ferðalangur um nýtt rútustæði fyrir utan Leifsstöð. 30.7.2012 05:00 Plöntur visna vegna þurrka í Surtsey 30.7.2012 04:00 Mikið unnið úr TALIS-rannsókn hér á landi 30.7.2012 03:00 Með hreindýr í túninu heima 30.7.2012 02:00 Tefla bleikum fílum gegn kynferðisbrotum Forvarnarhópur ÍBV mun beita sér af krafti á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum næstu helgi. Með bleika fíla í broddi fylkingar sendir hópurinn þau skilaboð að nauðganir og kynferðisbrot verði ekki liðin á næstu Þjóðhátíð. 29.7.2012 20:19 Nauðsynlegt fyrir Íslendinga að líta á björtu hliðarnar Breskur rithöfundur segir það nauðsynlegt að Íslendingar horfi á björtu hliðarnar í heiminum þrátt fyrir efnahagskreppuna. Þjóðin standi betur að vígi en margar evrópuþjóðir. 29.7.2012 21:02 Stefnan að reisa hundrað herbergja hótel Unnið er að því að leggja einn stærsta golfvöll landsins í Grímsnes- og Grafningshreppi. Þá er stefnt að því að reisa hundrað herbergja hótel við völlinn. Oddviti sveitarstjórnarinnar segir þetta gríðarlega þýðingarmikið fyrir lítið samfélag. 29.7.2012 20:49 Mun íhuga formannsframboð með opnum huga Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður, útilokar ekki framboð til formanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í byrjun næsta árs ef svo fer að Jóhanna Sigurðardóttir ákveður að hætta. 29.7.2012 20:35 Merki bárust úr neyðarsendi Landhelgisgæslan fékk tilkynningu frá neyðarlínu Bandaríkjanna um að boð hefðu borist frá persónu neyðarsendi. 29.7.2012 19:43 Lögregla lætur vel af hátíðinni Á góðri stund Lögreglan á Snæfellsnesi segir hátíðina Á góðri stund í Grundarfirði hafa farið vel fram að mestu. Mjög mikil ölvun var á svæðinu þar sem yfir 4000 manns komu saman, hlustuðu á tónlist og dönsuðu. 29.7.2012 18:17 Börnum finnst of auðvelt að nálgast klám Grunnskólabörnum finnst of auðvelt að nálgast klám á internetinu og of erfitt að forðast það. Þetta eru niðurstöður lokaverkefnis sem Björg Magnúsdóttir gerði í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. 29.7.2012 16:59 Bræðslunni lauk án meiriháttar áfalla Síðasta kvöld útihátíðarinnar Bræðslunnar í Borgarfirði eystri fór fram í gær. Hátíðin gekk öll fyrir sig án meiriháttar áfalla að sögn lögreglu. 29.7.2012 15:06 Undarlegt að Sæferðir séu eina fyrirtækið sem er kært Pétur Ágústsson, framkvæmdastjóri Sæferða, segir að það sé ekkert leyndarmál að fyrirtækið hafi farið með ferðamenn upp að arnarhreiðrum til að fylgjast með fuglunum. Hann hafnar því hins vegar algerlega að þeir beri sérstaka ábyrgð á því að arnarvarp hafi misfarist í Breiðafirði og Vestfjörðum. Honum finnst einnig undarlegt að Sæferðir séu eina fyrirtækið sem er kært fyrir skoðunarferðir á svæðinu. 29.7.2012 14:00 Íslendingar óvenju hjátrúarfullir miðað við menntaðar þjóðir Íslendingar eru ákaflega hjátrúafullir í samanburði við önnur menntuð þjóðfélög. Þá hafa Íslendingar orðið enn hjátrúafyllri eftir hrun. Þetta kemur fram í rannsókn doktors í sálfræði við Oxford háskóla. 29.7.2012 13:15 Vill að fundargerðir ríkisstjórnar um félag Nubos verði opinberaðar Lilja Mósesdóttir, alþingismaður, óskar eftir því að fundargerðir ríkisstjórnarinnar frá fundi þar sem fjallað var um stofnun íslensks félags í eigu Huang Nubo verði gerðar opinberar. Ívilnanasamningur var kynntur ríkisstjórninni í vor en engin ákvörðun var tekin. Aðkoma ríkisstjórnarinnar að málinu hefur í raun verið mjög lítil. 29.7.2012 12:45 Náttúrufræðistofnun kærir Sæferðir vegna bágborins arnarvarps Náttúrufræðistofnun Íslands hefur kært ferðaþjónustufyrirtækið Sæferðir fyrir að sigla með ferðamenn upp að arnarhreiðrum á viðkvæmum tíma. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu. 29.7.2012 12:14 Hvers vegna villast grindhvalir upp að landi? Það er sjaldgæft að grindhvalavaða villist upp að ströndum lands, líkt og gerðist undan ströndum Njarðvíkur í gær. Það hefur gerst um það bil á tíu ára fresti hér við land að sögn Gísla Víkingssonar, hvalasérfræðings hjá Hafrannsóknarstofnun. Þá eiga dýrin það til að synda upp í fjöru og festast. Ekki er vitað hvað veldur þessari hegðun en ýmsar kenningar hafa verið settar fram. 29.7.2012 11:12 Lögreglan hafði afskipti af skemmdarvörgum, röftum og þjófum Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og mikið um ölvun í miðborginni. 29.7.2012 10:36 Slökkviliðið kallað að Hrafnistu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var þrisvar sinnum kallað út í nótt. Rétt fyrir sex í morgun barst tilkynning um reyk og reykjarlykt frá Hrafnistu. Einn dælubíll var sendur á svæðið. Engin hætta reyndist á ferðum en skýringin fannst aldrei. Í gærkvöldi var tilkynnt um svartareyk upp af þakinu á Lágafellsskóla í Mosfellsbæ. Öflugt lið af þremur stöðvum var sent á staðinn en þegar fyrsti bíll mætti á svæðið kom á daginn að um brennandi ruslahrúgu aftan við húsið var að ræða. Einnig var tilkynnt um brennandi rusl í hrauninu við Kaplakrika. 29.7.2012 10:23 Arnarvarp með slakasta móti Arnarvarpið var með slakasta móti í ár. Varp misfórst hjá meirihluta þeirra 45 para sem urpu í vor. Helsta ástæðan er að líkindum kuldakastið í maí og truflun af mannavöldum, segir á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands. 29.7.2012 10:10 Maður stunginn við Borgartún Ungur maður var stunginn við Borgartún fyrr í kvöld. Fjölmennt lið lögreglu var samstundis sent á vettvang. 28.7.2012 20:19 Júlíus Vífill er hræddur um verslunina á Laugarveginum Borgarfulltrúi sjálfstæðismanna óttast að hækkun bílastæðagjalds í Reykjavík muni hafa neikvæð áhrif á þróun verslunar í miðborginni. Hann gagnrýnir meirihlutann fyrir samráðsleysi. 28.7.2012 20:47 Kviknaði í bíl á þjóðveginum Eldur kom upp í jepplingi á veginum til móts við bæinn Neðri-Ás III rétt við Hofsós í kvöld. Frá þessu er greint á vef mbl.is en þar segir að bíllinn sé gerónýtur. Slökkvilið er komið á staðinn. 28.7.2012 20:42 Fyrsti vinningur kom á miða úr Hyrnunni Lottóspilari sem keypti miða í Hyrnunni í Borgarnesi vann fyrsta vinning í Lottó í kvöld. Hann var með fimm tölur af fimm réttar og hlýtur rúma 16 og hálfa milljón króna. 28.7.2012 20:00 Gat keypt hálfan dal án leyfis en hefði þurft undanþágu í Danmörku Sænskur kaupsýslumaður gat keypt þrjár og hálfa jörð í Langadal við Ísafjarðardjúp án sérstaks leyfis, ólíkt Kínverjanum Huang Nubo. Hefðu svipaðar lagareglur gilt hér og í Danmörku um búsetu hefði Svíinn þurft undanþágu stjórnvalda. 28.7.2012 19:12 Ferðamennirnir borða líka sveppi Framleiðsla Flúðasveppa er jöfn allt árið um kring, en á sumrin anna þeir ekki eftirspurn. Skýringin er einföld, segir framkvæmdastjóri fyrirtækisins, erlendir ferðmenn borða líka sveppi og markaðurinn stækkar. 28.7.2012 19:02 Jóhannes segir mikilvægt að gefa Löng röð myndaðist fyrir utan matvöruverslunina Iceland í Kópavogi í dag. Kaupmaðurinn sjálfur, Jóhannes Jónsson, opnaði dyr verslunarinnar í fyrsta sinn og fékk að launum heillaóskir og blómagjafir. 28.7.2012 18:56 Sjá næstu 50 fréttir
Fólskuleg líkamsárás í Þorlákshöfn Ráðist var á mann þar sem hann var að kasta af sér þvagi á bak við skemmtistaðinn Happy hour í Þorlákshöfn rétt fyrir klukkan tvö aðfaranótt laugardags. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var árásarmaðurinn einn á ferð og réðist aftan að fórnarlambinu og tókst að koma honum niður og lét hnefahögg dynja á andliti mannsins sem leiddi til nefbrots. 30.7.2012 13:13
Mikilvægt að efla íslenska kornrækt til að mæta hækkunum Hækkun heimsmarkaðsverðs á korni gæti leitt til verðhækkana á íslenskum matvælum. Mikilvægt er að efla íslenska kornrækt til að mæta hækkunum á innfluttu korni segir formaður Svínaræktarfélags Íslands. 30.7.2012 12:18
Í lífshættu eftir bílslys Erlenda parið, sem flutt var á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar seint í gærkvöldi eftir bílslys á Steingrímsfjarðarheiði, liggur á gjörgæslu. Samkvæmt vakthafandi lækni er maðurinn í lífshættu og er haldið sofandi í öndunarvél. Konan er minna slösuð. Þau eru á milli tvítugs og þrítugs. 30.7.2012 11:58
Slökkviliðið fékk lykla að Laugaveginum Slökkviliðið fékk í morgun lykla af hliðum á Laugaveginum en slökkviliðsmenn höfðu gagnrýnt að Laugaveginum væri lokað og neyðarbílar kæmust ekki í gegnum hliðin. Höskuldur Einarsson, hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir þó æskilegast ef hægt væri að opna hliðin með fjarstýringu því seinlegt sé fyrir slökkviliðsmenn að stökkva út úr bíl og opna tvískipt hlið ef eitthvað ber útaf. Fulltrúar slökkviliðsins og Reykjavíkurborgar ætla að hittast til þess að ræða þessi mál í þaula. 30.7.2012 11:50
Þrír hvalir strönduðu í flæðamálinu Hvalaskoðunarbátar frá Reykjavík, sem var fullur af ferðamönnum, sigldi full nærri grindhvalavöðunni sem stödd er út af Leyni á Akranesi um tíuleytið í morgun. Fram kemur á vef Skessuhorns að styggð hafi komið að hvölunum og þeir stefnt í land. Þrír hvalir strönduðu þá í flæðarmálinu sunnan við Höfða en tveir menn á vöðlum óðu út og komu þeim til bjargar. 30.7.2012 11:16
Grindhvalavaða við Akranes Grindhvalavaða er núna rétt fyrir utan Akranes og sést hún vel frá bænum. Valentínus Ólason, íbúi á Akranesi, segist í samtali við Vísi hafa fylgst með henni úr stofuglugganum hjá sér. Lögreglan á Akranesi hafði einnig orðið vör við hvalina. Lögreglumaður sem Vísir talaði við sagði að um væri að ræða á bilinu 1-200 dýr. Þau munu hafa verið svamlandi fyrir utan bæinn frá því snemma í morgun. 30.7.2012 09:46
Synti tvöfalt Viðeyjarsund aðeins 17 ára gömul Írena Líf Jónsdóttir, 17 ára stúlka úr Reykjanesbæ, synti tvöfalt Viðeyjarsund í gærkvöldi. 30.7.2012 07:00
Tímasetningar hjá íslensku keppendunum á ÓL Það hefur varla farið framhjá nokkrum manni að Ólympíuleikarnir standa sem hæst þessa dagana og fjöldi Íslendinga tekur þátt. Eiríkur Stefán Ásgeirsson, íþróttafréttamaður á 365 miðlum, stendur vaktina í London. Hann hefur tekið saman tímasetningar á viðburðum hjá íslensku keppendunum næstu dagana og þær má finna hér. 30.7.2012 13:43
Allt að 200 dýr í torfunni Talið er að allt að 200 grindhvalir séu svamlandi í sjónum við Leyni á Akranesi. Skagamenn urðu þeirra varir þegar þeir vöknuðu í morgun. Valentínus Ólason náði þessum myndum af hvölunum um tíuleytið. Eins og fram kom í fréttum um helgina sást líka Grindhvalavaða í Innri-Njarðvík um helgina. Gísli Víkingsson hvalasérfræðngur segir í samtali við Morgunblaðið í dag að það gerist af og til að hvalavöður sjáist svo skammt frá landi. Gísli rifjar upp að árið 1986 sáust hvalir við Þorlákshöfn og voru þeir nánnast komnir á þurrt þegar menn sáu til þeirra. 30.7.2012 10:28
Barnabætur og fæðingarorlofsgreiðslur hækkaðar Ríkisstjórnin hefur áform um að lengja fæðingarorlof og hækka barnabætur á fjárlögum næsta árs. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir það hafa verið til umræðu í ríkisstjórn hvernig nýta eigi hugsanlegt svigrúm í ríkisfjármálum á næsta fjárlagaári. 30.7.2012 10:00
Fjórar lögreglukonur á vakt Fimm lögreglumenn eru á vakt hjá lögreglunni á Selfossi í dag sem er kannski ekki svo óeðlilegt yfir sumartímann. En af þessum fimm lögreglumenn eru fjórar konur. Það hefur ekki áður gerst í sögu lögreglunnar í Árnessýslu að svo margar konur séu saman á vakt innan lögreglunnar. 30.7.2012 09:48
Dæmdur fyrir hraðbankasvindl Erlendur karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur til níu mánaða fangelsisvistar þann 20. júlí síðastliðinn, eftir að hafa orðið uppvís að því að hafa komið fyrir afritunarbúnaði á hraðbanka í miðborg Reykjavíkur. Maðurinn hóf afplánun dómsins strax. Einungis átta dögum áður var maðurinn handtekinn á Akureyri eftir að rannsókn lögreglu leiddi hana á spor hans, en búnaðurinn fannst þann 7. júlí. Það leið því ekki langur tími frá því að upp komst um brotið þar til dómur féll. 30.7.2012 09:34
Fundu ólöglega netalögn á Ströndum Lögreglumenn frá Ísafirði og fulltrúar frá Fiskistofu fundu ólöglega netalögn vestur á Ströndum, þegar þeir fóru þar um í eftirlitsflugi með Landhelgisgæslunni. 30.7.2012 07:09
Völuspá fyrir augum höfundar Bolvíkingar afhjúpuðu á laugardag skilti með Völuspá áletraðri og upplýsingum um Þuríði Sundafylli og Völu-Stein son hennar. Þau mæðgin eru landnámsmenn Bolungarvíkur og hallast margir fræðimenn að því að annað hvort þeirra hafi samið Völuspá. 30.7.2012 07:00
Síbrotamaður handtekinn eftir hótelþjófnaði Maður var handtekinn í nótt, grunaður um ítrekaðan þjófnað, meðal annars frá gestum á hótelum í Reykjavík. 30.7.2012 06:55
Bandaríska neyðarlínan 911 bað Gæsluna um aðstoð Bandaríska neyðarlínan 911 hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar vegna skilaboða um gerfitungl á sjöunda tímanum í gærkvöldi, frá svonefndum persónuneyðarsendi, sem benti til þess að einhver væri í neyð vestur á Ströndum. 30.7.2012 06:25
Banaslys á Steingrímsfjarðarheiði Íslenskur karlmaður beið bana og tveir útlendingar slösuðust mjög alvarlega þegar bíll valt út af þjóðveginum um Steingrímsfjarðarheiði, Hólmavíkurmegin, seint í gærkvöldi. 30.7.2012 06:20
Svíi kaupir jarðir og ár í Ísafjarðardjúpi John Harald Örneberg, sem er sænskur timburframleiðandi, hefur fest kaup á þremur og hálfri jörð við Ísafjarðardjúp. Þeim fylgir tæpur helmingshlutur í ánum Langadalsá og Hvannadalsá. 30.7.2012 06:00
Rúturnar færðar lengra frá Leifsstöð ?Það er langur gangur frá útgangi Leifsstöðvar og út á nýja rútustæðið, sérstaklega þegar maður er með ferðatöskur á kerru,? segir Þorbjörg Jónsdóttir ferðalangur um nýtt rútustæði fyrir utan Leifsstöð. 30.7.2012 05:00
Tefla bleikum fílum gegn kynferðisbrotum Forvarnarhópur ÍBV mun beita sér af krafti á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum næstu helgi. Með bleika fíla í broddi fylkingar sendir hópurinn þau skilaboð að nauðganir og kynferðisbrot verði ekki liðin á næstu Þjóðhátíð. 29.7.2012 20:19
Nauðsynlegt fyrir Íslendinga að líta á björtu hliðarnar Breskur rithöfundur segir það nauðsynlegt að Íslendingar horfi á björtu hliðarnar í heiminum þrátt fyrir efnahagskreppuna. Þjóðin standi betur að vígi en margar evrópuþjóðir. 29.7.2012 21:02
Stefnan að reisa hundrað herbergja hótel Unnið er að því að leggja einn stærsta golfvöll landsins í Grímsnes- og Grafningshreppi. Þá er stefnt að því að reisa hundrað herbergja hótel við völlinn. Oddviti sveitarstjórnarinnar segir þetta gríðarlega þýðingarmikið fyrir lítið samfélag. 29.7.2012 20:49
Mun íhuga formannsframboð með opnum huga Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður, útilokar ekki framboð til formanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í byrjun næsta árs ef svo fer að Jóhanna Sigurðardóttir ákveður að hætta. 29.7.2012 20:35
Merki bárust úr neyðarsendi Landhelgisgæslan fékk tilkynningu frá neyðarlínu Bandaríkjanna um að boð hefðu borist frá persónu neyðarsendi. 29.7.2012 19:43
Lögregla lætur vel af hátíðinni Á góðri stund Lögreglan á Snæfellsnesi segir hátíðina Á góðri stund í Grundarfirði hafa farið vel fram að mestu. Mjög mikil ölvun var á svæðinu þar sem yfir 4000 manns komu saman, hlustuðu á tónlist og dönsuðu. 29.7.2012 18:17
Börnum finnst of auðvelt að nálgast klám Grunnskólabörnum finnst of auðvelt að nálgast klám á internetinu og of erfitt að forðast það. Þetta eru niðurstöður lokaverkefnis sem Björg Magnúsdóttir gerði í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. 29.7.2012 16:59
Bræðslunni lauk án meiriháttar áfalla Síðasta kvöld útihátíðarinnar Bræðslunnar í Borgarfirði eystri fór fram í gær. Hátíðin gekk öll fyrir sig án meiriháttar áfalla að sögn lögreglu. 29.7.2012 15:06
Undarlegt að Sæferðir séu eina fyrirtækið sem er kært Pétur Ágústsson, framkvæmdastjóri Sæferða, segir að það sé ekkert leyndarmál að fyrirtækið hafi farið með ferðamenn upp að arnarhreiðrum til að fylgjast með fuglunum. Hann hafnar því hins vegar algerlega að þeir beri sérstaka ábyrgð á því að arnarvarp hafi misfarist í Breiðafirði og Vestfjörðum. Honum finnst einnig undarlegt að Sæferðir séu eina fyrirtækið sem er kært fyrir skoðunarferðir á svæðinu. 29.7.2012 14:00
Íslendingar óvenju hjátrúarfullir miðað við menntaðar þjóðir Íslendingar eru ákaflega hjátrúafullir í samanburði við önnur menntuð þjóðfélög. Þá hafa Íslendingar orðið enn hjátrúafyllri eftir hrun. Þetta kemur fram í rannsókn doktors í sálfræði við Oxford háskóla. 29.7.2012 13:15
Vill að fundargerðir ríkisstjórnar um félag Nubos verði opinberaðar Lilja Mósesdóttir, alþingismaður, óskar eftir því að fundargerðir ríkisstjórnarinnar frá fundi þar sem fjallað var um stofnun íslensks félags í eigu Huang Nubo verði gerðar opinberar. Ívilnanasamningur var kynntur ríkisstjórninni í vor en engin ákvörðun var tekin. Aðkoma ríkisstjórnarinnar að málinu hefur í raun verið mjög lítil. 29.7.2012 12:45
Náttúrufræðistofnun kærir Sæferðir vegna bágborins arnarvarps Náttúrufræðistofnun Íslands hefur kært ferðaþjónustufyrirtækið Sæferðir fyrir að sigla með ferðamenn upp að arnarhreiðrum á viðkvæmum tíma. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu. 29.7.2012 12:14
Hvers vegna villast grindhvalir upp að landi? Það er sjaldgæft að grindhvalavaða villist upp að ströndum lands, líkt og gerðist undan ströndum Njarðvíkur í gær. Það hefur gerst um það bil á tíu ára fresti hér við land að sögn Gísla Víkingssonar, hvalasérfræðings hjá Hafrannsóknarstofnun. Þá eiga dýrin það til að synda upp í fjöru og festast. Ekki er vitað hvað veldur þessari hegðun en ýmsar kenningar hafa verið settar fram. 29.7.2012 11:12
Lögreglan hafði afskipti af skemmdarvörgum, röftum og þjófum Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og mikið um ölvun í miðborginni. 29.7.2012 10:36
Slökkviliðið kallað að Hrafnistu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var þrisvar sinnum kallað út í nótt. Rétt fyrir sex í morgun barst tilkynning um reyk og reykjarlykt frá Hrafnistu. Einn dælubíll var sendur á svæðið. Engin hætta reyndist á ferðum en skýringin fannst aldrei. Í gærkvöldi var tilkynnt um svartareyk upp af þakinu á Lágafellsskóla í Mosfellsbæ. Öflugt lið af þremur stöðvum var sent á staðinn en þegar fyrsti bíll mætti á svæðið kom á daginn að um brennandi ruslahrúgu aftan við húsið var að ræða. Einnig var tilkynnt um brennandi rusl í hrauninu við Kaplakrika. 29.7.2012 10:23
Arnarvarp með slakasta móti Arnarvarpið var með slakasta móti í ár. Varp misfórst hjá meirihluta þeirra 45 para sem urpu í vor. Helsta ástæðan er að líkindum kuldakastið í maí og truflun af mannavöldum, segir á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands. 29.7.2012 10:10
Maður stunginn við Borgartún Ungur maður var stunginn við Borgartún fyrr í kvöld. Fjölmennt lið lögreglu var samstundis sent á vettvang. 28.7.2012 20:19
Júlíus Vífill er hræddur um verslunina á Laugarveginum Borgarfulltrúi sjálfstæðismanna óttast að hækkun bílastæðagjalds í Reykjavík muni hafa neikvæð áhrif á þróun verslunar í miðborginni. Hann gagnrýnir meirihlutann fyrir samráðsleysi. 28.7.2012 20:47
Kviknaði í bíl á þjóðveginum Eldur kom upp í jepplingi á veginum til móts við bæinn Neðri-Ás III rétt við Hofsós í kvöld. Frá þessu er greint á vef mbl.is en þar segir að bíllinn sé gerónýtur. Slökkvilið er komið á staðinn. 28.7.2012 20:42
Fyrsti vinningur kom á miða úr Hyrnunni Lottóspilari sem keypti miða í Hyrnunni í Borgarnesi vann fyrsta vinning í Lottó í kvöld. Hann var með fimm tölur af fimm réttar og hlýtur rúma 16 og hálfa milljón króna. 28.7.2012 20:00
Gat keypt hálfan dal án leyfis en hefði þurft undanþágu í Danmörku Sænskur kaupsýslumaður gat keypt þrjár og hálfa jörð í Langadal við Ísafjarðardjúp án sérstaks leyfis, ólíkt Kínverjanum Huang Nubo. Hefðu svipaðar lagareglur gilt hér og í Danmörku um búsetu hefði Svíinn þurft undanþágu stjórnvalda. 28.7.2012 19:12
Ferðamennirnir borða líka sveppi Framleiðsla Flúðasveppa er jöfn allt árið um kring, en á sumrin anna þeir ekki eftirspurn. Skýringin er einföld, segir framkvæmdastjóri fyrirtækisins, erlendir ferðmenn borða líka sveppi og markaðurinn stækkar. 28.7.2012 19:02
Jóhannes segir mikilvægt að gefa Löng röð myndaðist fyrir utan matvöruverslunina Iceland í Kópavogi í dag. Kaupmaðurinn sjálfur, Jóhannes Jónsson, opnaði dyr verslunarinnar í fyrsta sinn og fékk að launum heillaóskir og blómagjafir. 28.7.2012 18:56