"Mikilvægasta lið ÓL? Nú, íslenska handboltalandsliðið" 30. júlí 2012 23:29 Frá leik Íslendinga og Argentínumanna á Ólympíuleikunum í Lundúnum. mynd/AP „
Fyrir okkur er handbolti ekki aðeins íþrótt, heldur sjálfur mergur þjóðarsálarinnar." Þetta sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í samtali við fréttamann bandaríska tímaritsins Time, stuttu eftir að íslenska handboltalandsliðið hafði borið sigur úr býtum gegn Argentínumönnum. Íslenska handboltaliðið og stuðningsmenn þess hafa vakið þó nokkra athygli í Lundúnum, ekki síst fyrir þær sakir að sjálfur forseti lýðveldisins situr meðal áhangenda. Þetta kveikti að minnsta kosti forvitni blaðamanns Time. Hann fór því á stúfana og kynnti sér málið. Fréttamaðurinn bendir á að landsliðið hafi unnið til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008. Ísland er minnsta landið til að ná svo langt í hópíþrótt í sögu leikanna. Þá hafi 40 þúsund manns tekið á móti hetjunum þegar þeir sneru heim. Fálkaorðan beið þeirra síðan á Bessastöðum. Aðeins nokkrum vikum eftir þessa miklu sælu kom hrunið. Nú þegar land og þjóð réttir úr kútnum þá sé það augljóst að handboltinn hafi hjálpað til. „Eftir þetta mikla áfall ákvað þjóðin að horfa fram á veginn," sagði Ólafur. „Og handboltalandsliðið átti stóran þátt í því." Greinin endar á því að blaðamaðurinn spyr Ólaf hvort að hann vilji koma einhverju á framfæri. „Mín skilaboð til bandarískra áhorfenda eru sú að þeir ættu að byrja að spila handbolta," segir Ólafur og bætir við: „Þetta er skemmtileg íþrótt." Hægt er að nálgast grein Time hér.
Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Barist á hafi úti Erlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent „Ég sé engin rök fyrir því“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Sjá meira