Fleiri fréttir

Grindhvalavaða hamast rétt undan ströndum Njarðvíkur

Hundruð grindhvala hafa verið í allan morgun rétt undan landi neðan við byggðina í Dalshverfi Innri Njarðvíkur. Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að staðnum til að berja hvalina augum og áætlar að milli tvö og þrjú hundruð hvalir séu á svæðinu.

Þingmenn VG tortryggnir gagnvart áformum Nubos

Formaður þingflokks Vinstri grænna segir að almennt séu þingmenn flokksins tortryggnir í garð uppbyggingar Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum, ekki síst vegna misvísandi yfirlýsinga umboðsmanns hans hér á landi.

Skrifar um spillingu og kröfuna um sterkan leiðtoga

Herdís Þorgeirsdóttir, forsetaframbjóðandi, skrifar í Morgunblaðið í dag undir yfirskriftinni "Tröllriðna land - sprungið af spillingu". Í greininni líkir hún tíðaranda dagsins við ástandið í Weimarlýðveldinu sem leiddi til uppgangs fasisma í Evrópu.

Verndun votlendis ber ávöxt

Verndun votlendisins í Vatnsmýrinni í Reykjavík virðist vera skila árangri. Fram kemur í Morgunblaðinu í dag að í sumar hafi reglulega sést þar þrjár andartegundir sem ekki hafi sést á svæðinu í áraraðir. Um er ræða rauðhöfðaönd, skúfönd og duggönd.

Lögreglan fylgist með hraðakstri úr þyrlu

Lögreglumenn flugu með þyrlu Landhelgisgæslunnar um Suðurland í gær og höfðu eftirlit með umferð úr lofti. Afskipti voru höfð af sex ökumönnum sem óku of hratt.

Fólk mætti með blóm fyrir Jóhannes

Fólk mætti með blómvendi og rósir fyrir Jóhannes Jónsson þegar hann opnaði nýju matvöruverslunina Iceland í morgun. Fjölmenni var komið saman og beið fyrir utan þegar verslunin opnaði.

Sér fyrir endann á vatnsskorti

Framkvæmdir við nýja vatnsveitu fyrir Reykholt og Kleppjárnsreyki í Borgarfirði verða boðnar út um helgina. Með framkvæmdum vonast menn til að sjái fyrir endann á þeim erfiðleikum sem hafa verið í vatnsveitu á svæðinu.

Hugmyndir um skipulag Öskjuhlíðar streyma inn

Í sumar stendur yfir hugmyndasamkeppni um nýtingu Öskjuhlíðar og eru tillögur byrjaðar að streyma inn. Ólöf Örvarsdóttir, sviðstjóri skipulags- og byggingarsviðs hjá Reykjavíkurborg, segir að fólk þurfi ekki að vera landslagsarkitekt eða sérmenntað til að taka þátt.

Ættleiðingardagurinn í Kattholti

Í dag er ættleiðingardagurinn í Kattholti, en hann er haldinn á hverju ári. Þar geta þeir sem vilja fá sér kött komið í heimsókn og valið þann kött sem þeim líst best á. Sömuleiðis gefst fólki kostur á að skoða starfsemina í Kattholti. Fjölmargir kettir eru í kattholti, bæði stálpaðir og kettlingar. Fjölmargt fólk sótti viðburðinn í fyrra en opið verður á milli klukkan ellefu og tvö.

Aukinn stuðningur við fatlaða í Hinu Húsinu

Borgarráð samþykkti fyrir helgi að veita 10,8 milljónir til starfsemi fyrir fatlaða í Hinu Húsinu. Viðvera verður lengd og reynt að mæta þörfum allra fatlaðra framhaldsskólanema að fullu.

350 ár liðin frá Kópavogsfundinum

Í dag eru liðin þrjú hundruð og fimmtíu ár frá Kópavogsfundinum þar sem Íslendingar samþykktu erfðaeinveldið, en hann fór fram árið 1662.

Slökkviliðið ræst vegna gufu úr ræsum

Allt tiltækt slökkvilið var ræst um fjögur leytið í nótt vegna tilkynningar um reyk og reykjarlykt á Héðinsgötu. Þegar fyrstu dælubílar mættu á staðinn kom þó á daginn að um var að ræða gufu úr brunnlokum og ræsum á svæðinu. Engin hætta var á ferðum og því var liðinu öllu snúið við.

Ungur maður stunginn í nótt

Rúmlega tvítugur karlmaður var stunginn um tvö leytið í nótt í austurbæ Reykjavíkur. Þegar lögregla og sjúkraliðar komu á vettvang var gerandinn flúinn þaðan. Margir urðu hins vegar vitni að atvikinu og nú hefur meintur gerandi verið handtekinn. Maðurinn var stunginn með hníf í öxlina og var í kjölfarið fluttur á slysadeild til aðhlynningar.

Átök hafin í Aleppo

Orrustan um Aleppo, stærstu borg Sýrlands, er hafin. Stjórnarhermenn hafa nú hafið gagnsókn sína gegn uppreisnarmönnum Frelsishers Sýrlands en þeir hafa hertekið stór svæði borgarinnar.

Vill svipta lögbrjóta stöðu hælisleitenda

„Verði menn uppvísir að svona lögbroti eiga þeir náttúrulega að missa öll réttindi sem hælisleitendur,“ segir Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips, um þá menn sem hafa verið gripnir við að brjótast inn á athafnasvæði fyrirtækisins undanfarið og reynt að lauma sér um borð í skip.

Dreginn á þurrt að Fjallabaki

Ferðamenn á jepplingi sem þeir höfðu tekið á leigu lentu í ógöngum á miðvikudag þegar þeir festu bílinn í á sem rennur á Fjallabaksleið syðri.

Bæta starfið á gæsluvellinum í Setbergi

„Nokkrar úrbætur voru gerðar á gæsluvellinum,“ segir Axel Guðmundsson, yfirflokkstjóri Vinnuskóla Hafnarfjarðar, um gæsluvöllinn í Setbergshverfi í Hafnarfirði. Gæsluvöllurinn heyrir undir Vinnuskólann.

Kippur í sölu byggingarkrana

Þýska fyrirtækið Rueko GmbH hefur keypt 60 prósenta hlut í fyrirtækinu Hýsi – Merkúr, sem flytur meðal annars inn byggingarkrana og vinnuvélar. Kaupin, ásamt uppbyggingu nýrra höfuðstöðva, kosta þýska fyrirtækið hundruð milljóna króna.

„Ekki mögulegt að uppfæra daglega“

Viðmiðunargengi evru sem Bláa Lónið notar til að ákvarða verðskrá sína er tæpum fimm krónum hærri en skráð gengi evru hjá Seðlabankanum. Bláa Lónið hækkaði í vikunni viðmiðunargengi upp í 155 krónur á evru en Seðlabankagengi evru sem var rúmar 150 krónum í gær.

Íslenski hópurinn glæsilegur í London

Íslenski hópurinn gekk inn á Ólympíuleikvanginn í Lundúnum fyrr í kvöld. Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastari var fánaberi Íslands og stóð hún sig með stakri prýði. Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaeiff forsetafrú voru í stúkunni og klappaði Ólafur Ragnar fyrir okkar keppendum og Dorrit dansaði.

Bændur, myllur og kindur á setningarhátíð

"Það er alveg stappað af fólki hérna og það eru allir að bíða bara eftir því að þetta byrji,“ segir Eiríkur Stefán Ásgeirsson, íþróttafréttamaður Vísis og Fréttablaðsins, sem staddur er á Ólympíuleikvanginum í London. Opnunaratriðið byrjar núna klukkan átta og segir Eiríkur að mikil stemming í fólki. "Það er búið að grasleggja allt hérna og búa til svona litla sveitastemmingu. Hér eru hús, myllur, bændur, geitur og kindur. Þetta verður örugglega ótrúlega flott. Það er reyndar búið að rigna aðeins, sem er svo sem ekkert óvenjulegt hér í Bretlandi. En menn eru bara hressir og í góðum fíling,“ segir hann. Opnunaratriðið hefst á slaginu 20 og er hægt að horfa á það í beinni útsendingu á RÚV.is.

Yngsta Byrgisstúlkan orðin afburðanemandi

Stúlka sem lenti á glapstigum fíkniefna tólf ára gömul og var misnotuð í Byrginu þegar hún var sextán ára ákvað að breyta lífi sínu þegar hún var lífguð við í fjórða skiptið sem hún sprautaði sig með of stórum skammti eiturlyfja. Í sumar hlaut hún styrk frá Háskóla Íslands sem aðeins er veittur afburðarnemendum og stefnir á að læra sálfræði.

Fjögur þúsund á Landsmóti skáta

Gestum á mótssvæði Landsmóts skáta fer fjölgandi og straumur ferðafólks hefur legið á svæðið síðan síðdegis í gær, enda veðurspá helgarinnar góð. Fjöldi gesta fjölskyldubúða mótsins eru nú þegar kominn yfir eitt þúsund.

Yfir þúsund farþegar á einum degi

Ferðamannatíðin stendur nú sem hæst og svo virðist sem að áhugi ferðafólks á hvalaskoðun fari vaxandi. Fyrirtækið Norðursigling sem ferjað hefur fólk um hvalaslóðir frá árinu 1995 sló met á miðvikudaginn. Rúmlega þúsund ferðamenn skelltu sér þá í siglingu.

Varar við vegaframkvæmdum um Garðahraun

Safnstjóri Listasafns Reykjavíkur varar við vegaframkvæmdum um Garðahraun. Hann segir að sú stefna að taka ekki tillit til umhverfis og menningarminja þegar út framkvæmdir sé farið sé stórhættuleg. Íbúar á svæðinu telja að vegurinn muni eyðileggja frægar fyrirmyndir Kjarvalsverka.

Teiknuðu kort af San Francisco

Fyrirtækið Borgarmynd hefur unnið að gerð handteiknaðs korts af San Francisco, en verkið er unnið fyrir hönnunarstofuna The Open Company, þar í borg. Kortið er allt handteiknað og vatnslitað og unnið eftir tölvugerðum þrívíddarmódelum, loftmyndum og ljósmyndum víðsvegar að úr borginni. Kortið hampar meðal annars 40 bestu veitingastöðum borgarinnar að mati starfsmanna hönnunarstofunnar.

Lifandi tónar við rautt sólarlag

Garðabær er kannski ekki fyrsti staður sem fólki dettur í hug þegar velja á kaffihús til að sækja. Nú horfir ef til vill til breytinga. Á útikaffihúsinu Himinn og Haf í Garðabæ er reglulega boðið upp á lifandi tónlist þar sem gestir geta sest niður og notið lífsins með veitingum og stórbrotnu útsýni.

Reykvíkingar eigi góðar sundlaugar um alla borg

Frumáætlanir gera ráð fyrir að kostnaður við nýja útilaug við Sundhöllina á Barónstíg gæti kostað um 800 milljónir króna. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir að fyrirhuguð bygging hafi verið til skoðunar frá því í vetur. Áætlanir, eins og þær líta út núna, gera ráð fyrir 25 metra laug, pottum og úti- og leiksvæði.

Barnadagurinn haldinn í Viðey á sunnudag

Barnadagurinn verður haldinn hátíðlegur í Viðey, sunnudaginn 29. júlí næstkomandi. Sú hefð hefur skapast í Viðey að bjóða yngstu meðlimum fjölskyldunnar sérstaklega velkomna og bjóða skemmtun og afþreyingu sem þeim er að skapi.

Stórafmæli Ray Cup fagnað með tónleikum

Jón Jónsson og hljómveitin Retro Stefson munu troða upp á opnum útitónleikum í Laugardalnum í Reykjavík í dag. Tilefnið er 10 ára afmæli knattspyrnumótsins Ray Cup.

Hækkunin ákveðin án samráðs við verslunareigendur

Samtök kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveginn í Reykjavík mótmæla harðlega áformum um hækkun bílastæðagjalda í miðborginni sem borgaryfirvöld kynntu í gær. Þar er gert ráð fyrir hækkunum bílastæðagjalda um fimmtíu prósent, auk þess sem til stendur að lengja gjaldskyldu á laugardögum.

Flokkstjórnarfundur Samfylkingarinnar í ágúst

Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar verður haldinn á Hótel Natura, sem áður hét Hótel Loftleiðir, í Reykjavík laugardaginn 25. ágúst. Um er að ræða fund sem boðaður hafði verið í júníbyrjun. Á fundinum verða ræddar tillögur um reglur um val á framboðslista, tillaga um sátta- og siðanefnd, tillaga um uppfærða aðgerðaáætlun í málefnum ungs fólks og kosningavorið 2013 ásamt öðrum póltískum málefnum.

Börn afskiptalaus á gæsluvelli í Setbergi

„Ég fann dóttur mína úti í horni gæsluvallarins í leikfangabíl, umkringda þremur helmingi eldri drengjum, sem voru að djöflast í henni og vildu greinilega hafa af henni bílinn. Hún var orðin skelfd, enda föst í bílnum og enginn starfsmaður í grenndinni til að skakka leikinn,“ segir Laufey Ómarsdóttir, móðir tveggja ára stúlku í Hafnarfirði.

Tveir laumufarþegar teknir í annað sinn í Sundahöfn

Lögreglan handtók tvo hælisleitendur á öryggissvæðinu við Sundahöfn í Reykjavík í gærkvöldi þar sem þeir ætluðu að laumast um borð í eitt skip Eimskipa, sem hélt vestur um haf í gærkvöldi.

Innanríkisráðherra beitir sér gegn áformum Huang Nubos

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra vill að ríkisstjórnin afturkalli leyfi sem veitt hafa verið um ívilnanir vegna fyrirhugaðra áforma kínverska kaupsýslumannsins Huang Nubos um leigu á Grímsstöðum á Fjöllum. Hann mun taka málið upp í ríkisstjórn á þriðjudag.

Andlát fanga enn í rannsókn

Rannsókn á andláti fanga á Litla-Hrauni í maí síðastliðnum stendur enn yfir. Niðurstaða úr krufningu er ókomin enn.

Vísindin sem keppa við tímann og vatnið

Útlit er fyrir að fornleifafræðirannsóknir færi okkur fljótlega stór brot í púsluspili sjálfsvitundar okkar. Þar koma stóriðja, umsvif útlendinga og markaðslögmál við sögu. Fréttablaðið kynnti sér nokkrar rannsóknir sem nú standa yfir.

Gjafir til guðshúsa setja sóknir í vanda

Brýnt er að koma á ákveðnu vinnulagi varðandi gjafir og innkaup fyrir kirkjur landsins, segir Páll V. Bjarnason, formaður húsafriðunarnefndar. Hann segir að í flestum sóknum landsins sé kirkjunnar fólk í vandræðum með gjafir og innkeypta muni sem sýnt þykir að henti kirkjunum ekki eða stingi hreinlega í stúf.

Notar frekar bílinn en göngin

„Þetta eru löng göng og maður fær hroll þegar maður gengur þarna í gegn, göngin eru svo dimm,“ segir Ósk Kvaran sem sendi Fréttablaðinu ábendingu um göng við Kringluna undir Miklubraut.

Sjá næstu 50 fréttir