Fleiri fréttir

Viltu láta pynta þig?

Það var töluverður fjöldi fólks sem fylgdist með því þegar ungliðahreyfing Amnesty á Íslandi sýndi pyntingaraðferðir sem beitt er víða um heim. Tilefnið er alþjóðlegur dagur pyndinga sem haldinn var á dögunum. Fréttamaður fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis var á Austurvelli og prófaði þetta sjálf. Að hennar sögn voru þrír félagar í ungliðahreyfingunni sem sýndu hvernig pyndingarnar fara fram, meðal annars með gargandi þungarokkstónlist á hæsta styrk.

Boða til blaðamannafundar vegna njósna

Iceland Express hefur boðað til fréttamannafundar vegna "alvarlegra en jafnframt fáránlegra ásakana" um ólöglegar hleranir, eftir því sem segir í tilkynningu. Fundurinn fer fram kl 15:00 í höfuðstöðvum fyrirtækisins við Ármúla 7.

Bændur stigu gleðidans í rigningu

Bændur í Valþórsdal stigu gleðidans og fóru með ástaróð til rigningarinnar í gær þegar rigndi í fyrsta sinn í sex vikur á svæðinu.

Eldsvoðinn í Kópavogi rannsakaður

Rannsókn á orsökum eldsvoðans sem varð við Vesturvör 24 í Kópavogi á miðnætti er hafin. Í morgun voru starfsmenn Orkuveitu Reykjavikur og lögreglunnar að kanna vettvang. Gríðarlegur eldur braust út í húsinu, en þar er rekin bílasprautun. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað út og tók mesta slökkvistarfið um tvo klukkutíma.

Tvennt slasast í bílveltu

Tvennt slasaðist líttillega þegar bíll valt við Kerið í Grímsnesi um klukkan átta í gærkvöldi.

Eldur í strandveiðibát austan við Papey

Tilkynnt var um eld í strandveiðibát austan við Papey um fimm leytið í morgun. Landhelgisgæslan var að ræsa út björgunarlið þegar skiptstjórinn hafði samband að nýju og sagðist hafa ráðið niðurlögum eldsins og að allt væri í lagi. Björgunarliðið var því afturkallað.

Öryggi og verndun er höfuðatriði við Silfru

Þingvallanefnd ákveður á næsta fundi hvort innheimtu umdeilds gjalds fyrir kafara í Silfru verði frestað til 1. september. Nefndarformaðurinn segir áríðandi að stýra aðgangi að gjánni til að vernda umhverfið og tryggja öryggi kafara.

OR leiðrétti lækkun en borgin ekki

Orkuveita Reykjavíkur (OR) leiðrétti þær lækkanir launa sem starfsmenn tóku á sig í janúar 2009 við lok þess árs. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær var sú ekki raunin með Reykjavíkurborg, en nú hafa þeir starfsmenn sem heyra undir ákvörðun kjararáðs fengið leiðréttinguna, en aðrir ekki.

Krefst greiningar á orðum um aflimun

Landlæknir skoðar, að ósk velferðarráðherra, fullyrðingar formanns Læknafélags Íslands um að fjárskortur hafi verið orsök þess að taka þurfti fót af manni. Velferðarráðherra segir ekkert hafa komið á sitt borð um málið.

Háttalag trjágeitungsins einsdæmi

„Þetta er algert einsdæmi,“ segir Konráð Magnússon meindýraeyðir hjá meindýraeftirliti Firringar. „Það er svo ólíklegt að þetta geti skeð að ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum.“

Gamall gærukollur í tísku í útlöndum

Gærukollur sem hannaður var fyrir fjörutíu og tveimur árum eykur nú hróður íslenskrar hönnunar víða um heim. Víða er bannað að sitja á kollinum.

Fiskurinn með nælonroðið

Úlfar Eysteinsson, veitingamaður á Þremur frökkum, komst heldur betur í feitt í gær þegar hann fékk 65 kílóa tunglfisk inn á borð til sín. Það var vinveittur sjómaður á Sighvati Bjarnasyni frá Vestmannaeyjum sem færði honum fenginn.

Fékk átján mánuði fyrir líkamsárás

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 28 ára mann í átján mánaða fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Laugavegi í lok febrúar. Fórnarlambið, óreglumaður á fimmtugsaldri, slasaðist lífshættulega og lá á gjörgæsludeild um tíma.

Slökkvistarfi að ljúka við Vesturvör

Slökkvistarfi er nú að mestu lokið að Vesturvör 24 í Kópavogi. Búið er að slökkva mesta eldinn og verið er að rífa þann hluta hússins sem þarf að rífa til að komast í glæður. Ljóst er að verulegt tjón hefur orðið í eldinum, en í húsinu var rekið bílasprautunarverkstæði. Eldurinn var verulegur og lagði mikinn reyk yfir Kópavog. Slökkvistarf tók um tvo klukkutíma.

Eldurinn í Kópavogi: Nágrannar beðnir um að loka gluggum

Fólk sem finnur fyrir reykjalykt vegna eldsvoðans í Vesturvör er vinsamlegast beðið um að loka fyrir gluggum í híbýlum sínum. Þetta kemur fram í fréttaskeyti sem slökkviliðið sendi fjölmiðlum nú rétt eftir klukkan hálfeitt.

Eldur í Kópavogi

Eldur kom upp í iðnaðarhúsi við Vesturvör í Kópavogi nú um miðnættið. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var sent á staðinn. Samkvæmt sjónvarvottum teygja elddungurnar sig langt upp úr húsinu og leggur mikinn reyk yfir.

Vélarvana fiskibátur við Neskaupstað

Landhelgisgæslunni barst í völd aðstoðarbeiðni frá fiskibát sem var vélarvana um 15 sjómílur frá Neskaupstað. Björgunarskipið Hafbjörg frá Neskaupstað var kallað út til aðstoðar og er reiknað með að skipið verði komið á staðinn um miðnætti.

Hlakka til að spila á Íslandi eftir ótrúlegt tónleikaferðalag

Íslenska hljómsveitin Of Monsters and Men er nú komin aftur til landsins eftir vel heppnað tónleikaferðalag um Bandaríkin. Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, söngkona, segir að sterk vináttutengsl hljómsveitarmeðlima hafi reynst nauðsynleg þegar á ferðalaginu stóð.

Eitt stærsta sterasmyglmál ársins

Þetta er eitt stærsta málið í smygli og innflutningi á sterum á þessu ári, segir Jón H. B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri, um málið þar sem þrír starfsmenn Eimskips voru handteknir á sunnudaginn. Þeir höfðu meðal annars reynt að smygla tíu þúsund steratöflum til landsins.

Tom Cruise geðugur, kurteis og hógvær

Kvikmyndaleikarinn heimsfrægi, Tom Cruise, fékk afmælisgjafir í Veiðivötnum í gærkvöldi í tilefni fimmtugsafmælis síns í dag en hann flaug síðan af landi brott fyrir miðnætti, eftir nítján daga dvöl hérlendis. Tom Cruise leið vel á Íslandi, þrátt fyrir allt, og erlenda kvikmyndatökuliðið var mjög ánægt með hversu vel tökurnar heppnuðust hérlendis.

Vill leysa makríldeiluna fyrir næsta fiskveiðiár

Sjávarútvegsmálastjóri Evrópusambandsins segist hafa sýnt mikinn sveigjanleika í makríldeilunni. Íslensk stjórnvöld þurfi nú að koma til móts við samningsaðila sína. Þá þurfi að finna lausn á málinu fyrir næsta fiskveiðiár.

Húsnæði vantar fyrir útskrifaða sjúklinga á geðdeildum

Um tuttugu einstaklingar með langvinna geðsjúkdóma eru fastir inn á Kleppi og öðrum geðdeildum Landspítalans þar sem þá vantar húsnæði að útskrift lokinni. Lengst hefur sjúklingur beðið í fjögur ár. Kona sem var lögð inn á Klepp fyrir tæpu ári líkir dvölinni við fangavist og harmar að komast ekki út í samfélagið að nýju vegna húsnæðisskorts.

Eldur kom upp á sambýli

Eldur kom upp á sambýli á Selfossi á fimmta tímanum í dag. Um smávægilegan eld var að ræða og náði starfsmaður á sambýlinu að ráða niðurlögum hans.

Íslensk söfn bjóða í heimsókn

Íslenski safnadagurinn þetta árið verður á sunnudaginn kemur. Söfn munu almennt bjóða fólki ókeypis aðgang á þessum degi sem nýtist vel til að kynna starf íslenskra safna fyrir almenningi.

Tom Cruise fékk mótorhjól og Íslandskort í afmælisgjöf

Tökulið Oblivion myndarinnar hélt Tom Cruise afmælisveislu áður en hann fór af landi brott í gær. Sem kunnugt er fagnar Cruise fimmtugsafmæli í dag. Heimildarmaður Vísis segir að Cruise hafi meðal annars fengið að gjöf vélhjól sem notað var við tökur á myndinni. Þá mun hann jafnframt hafa fengið gamalt Íslandskort að gjöf.

Andrea vill snúa sér að réttlætisbaráttu

Andrea Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, býst við því að hún muni snúa sér aftur að einhvers konar réttlætisbaráttu fyrst hún hlaut ekki kjör sem forseti Íslands. Áður en hún fór í forsetaframboð gegndi hún hlutverki formanns Hagsmunasamtaka Heimilanna.

Ásdís Olsen handtekin í Rússlandi

Ásdís Olsen aðjúnkt var handtekin og sett í stofufangelsi í Rússlandi á sunnudaginn þegar hún var í vegabréfsskoðun á leiðinni heim. Landvistarleyfið hennar hafði runnið út fyrir mistök því einhver ágalli hafði verið á Vegabréfinu. Ásdís segir að upplifunin hafi verið hryllileg og að landamæraverðir í Moskvu hafi komið fram við sig eins og úrhrak.

Sýna pyndingar á Austurvelli

Ungliðar í Amnesty international ætla að hafa sýningu á pyndingaraðferðum fyrir framan Alþingishúsið kl 12 á morgun. Þar gefst fólki tækifæri til að læra meira um pyndingar, skrifa undir mótmælabréf og jafnvel reyna á eigin skinni það sem fólk sem sætt hefur pyndingum hefur mátt þola. Tilefni sýningarinnar er alþjóðlegur dagur pyndinga sem var um daginn.

Fimm hundruð stöðvaðir í átaki lögreglunnar

Fimm hundruð ökumenn voru stöðvaðir í Reykjavík um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Níu þeirra þeirra reyndust ölvaður við stýrið og eiga hinir sömu ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Eftirlitið fór m.a. fram í miðborginni og í Víðidal, en þar var haldið velheppnað Landsmót hestamanna.

Höfðu ekki hugmynd um risasmyglmál

Forsvarsmenn Eimskip vissu ekki af umfangsmikilli rannsókn lögreglu á smygli starfsmanna Eimskip. „Við vitum aldrei af rannsóknum fyrr en mennirnir eru teknir," segir Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskip. Hann segir félagið hins vegar vinna náið með lögregluyfirvöldum og Tollgæslunni eftir að tilkynnt er um málið og veita allar upplýsingar sem óskað er eftir.

Efla eftirlit með brunavörnum

Slökkviliðið, ásamt Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands (EBÍ) og Mannvirkjastofnun (MVS) skrifuðu í dag undir samstarfssamning um þróun hugbúnaðar til að efla eftirlit með brunavörnum á Íslandi. Hugbúnaðurinn hefur fengið vinnuheitið Brunavarnagáttir og kemur til með að halda utan um allt sem tengist brunavörnum í byggingum og ástandi þeirra. Gert er ráð fyrir að fyrsta útgáfa hans verði komin í notkun í desember 2014.

Tíu þúsund steratöflur teknar

Þrír karlar voru handteknir á sunnudag í aðgerðum lögreglunnar í tengslum við rannsókn hennar á umfangsmiklu smygli. Lagt var hald á áfengi, tóbak og mikið magn af töflum, en talið er að um steratöflur sé að ræða. Töflurnar eru um 10 þúsund talsins. Lögreglan tók einnig í sína vörslu 200 ambúlur og verulagt magn af sterum í vökvaformi. Þremenningarnir, sem allir eru skipverjar hjá Eimskipum, hafa játað aðild sína að málinu.

Egill búinn að kæra stúlkuna

Egill "Gillzenegger“ Einarsson, hefur kært stúlkuna sem sakaði hann um nauðgun til lögreglu. Hann óskar eftir lögreglurannsókn á tildrögum þess að hann, ásamt unnustu sinni var borinn sökum, um svívirðilegan glæp, sem hafi verið rangar. "Ég hef einsett mér að komast til botns í þessu máli," segir Egill í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum.

Engin heimild til að grípa inn í ferli um brottnám barna

Barnaverndanefnd Kópavogsbæjar hefur ekki heimild til að breyta eða stöðva ferli sem felur í sér fullnustu ákvæða samkvæmt Haag-samningnum frá 25. október 1980 um brottnám barna, sem Ísland hefur fullgilt. Þetta segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ, en undanfarna daga hefur í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum verið fjallað um forsjármál sem Barnaverndanefnd Kópavogs hefur komið að.

Mamma vann treyjuna fyrir son sinn

Íslendingar tóku vel í söfnunina sem UNICEF stóð fyrir í tengslum við Evrópumótið í fótbolta. Alls söfnuðust 835.500 krónur með 557 smáskilaboðum en allir sem sendu inn fóru í pott þar sem verðlaunin voru árituð treyja frá liðsmönnum Barselóna. Ungur áhugamaður um knattspyrnu, Ari Sigfússon, vann treyjuna en hann hefur verið aðdáandi Börsunga í mörg ár. Það var reyndar móðir hans, Hildur Markúsdóttir, sem sendi skilaboðin í von um að vinna treyjuna fyrir Ara.

Hjólar kringum landið fyrir 12 ára vinkonu

Breiðdælingurinn Helga Hrönn Melsteð lagði á föstudaginn var í hjólreiðarferð hringinn í kringum landið. Ferðina kallar hún Thelmu-hringinn og tileinkar tólf ára stúlku sem berst við krabbamein.

Segir gamla muni vinsælt skotmark skemmdarvarga

Eignaspjöll voru unnin á Byggðasafninu að Görðum á Akranesi í síðustu viku. Safnastjóri safnsins segir slík skemmdarverk hafa verið ákveðið vandamál upp á síðkastið og að "gamlir og sérstakir munir" verði frekar fyrir barðinu á skemmdarvörgum.

Ól barn í bíl á leiðinni á sjúkrahús

Lítilli stúlku lá svo á að komast í heiminn þegar foreldrarnir voru á leið á Fjórðungssjúkrahúsið á Neskaupstað um hálfáttaleytið í morgun að móðirin ól stúlkuna í bíl á leiðinni á sjúkrahúsið. Sjúkrabíll ók svo á móti fjölskyldunni og móðir og barn voru flutt á sjúkrahúsið með sjúkrabílnum. Samkvæmt upplýsingum frá Birni Magnússyni, forstöðulækni á sjúkrahúsinu, eru mæðgurnar enn á sjúkrahúsinu og heilsast þeim vel.

Hélt konu nauðugri í tvær klukkustundir

Eftir að hafa stungið kunningja sinn fjórum sinnum með litlum hníf ruddist karlmaður á þrítugsaldri óboðinn inn í íbúð á Ólafsfirði. Þar var ein kona fyrir sem hann varnaði útgöngu, hélt þar fanginni í um tvo tíma og kom í veg fyrir að hún hringdi á lögreglu. Atvikin áttu sér stað á aðfararnótt laugardagsins.

Líkamsárás á mann á sextugsaldri í nótt

Maður á sextugsaldri kom á slysadeild um tvö leytið í nótt og kvaðst hafa orðið fyrir líkamsárás við Hegningarhúsið á Skólavörðustíg. Að sögn lögreglu liggur ekki fyrir hvað þar átti sér stað.

Gjaldskrá vegna tannlækninga hækkar tímabundið um 50%

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur falið Sjúkratryggingum Íslands að hækka gjaldskrá vegna almennra tannlækninga barna yngri en 18 ára tímabundið um 50%. Gjaldskrárbreytingin gildir frá 1. júlí til næstu áramóta, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu. Áætlað er að með þessu hækki hlutfall endurgreiðslu raunkostnaðar úr tæpum 42% í að meðaltali í 62,5% og hefur það ekki verið hærra í tæpan áratug. Ákvörðun velferðarráðherra er í samræmi við tillögu starfshóps sem hann skipaði um miðjan maí síðastliðinn.

Tökum á mynd Cruise lokið

Tökum á myndinni Oblivion lauk í gærkvöld. Þetta staðfestir upplýsingafulltrúi myndarinnar Claire Raskind í samtali við Vísi. "Við erum hætt tökum hér. Þeim lauk í gærkvöldi. Það er það eina sem ég get sagt," sagði Raskind í samtali við Vísi.

Sjá næstu 50 fréttir