Innlent

Egill búinn að kæra stúlkuna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Egill Einarsson segir stúlkuna vera margsaga í aðalatriðum málsins.
Egill Einarsson segir stúlkuna vera margsaga í aðalatriðum málsins.
Egill „Gillzenegger Einarsson, hefur kært stúlkuna sem sakaði hann um nauðgun til lögreglu. Hann óskar eftir lögreglurannsókn á tildrögum þess að hann, ásamt unnustu sinni var borinn sökum, um svívirðilegan glæp, sem hafi verið rangar. Eins og kunnugt er lauk meðferð Ríkissaksóknara á málinu gegn Agli án ákæru á hendur honum.

„Ég hef einsett mér að komast til botns í þessu máli," segir Egill í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum. Yfirlýsingin er svar við yfirlýsingu sem Guðjón Ólafsson, réttargæslumaður stúlkunnar, sendi fjölmiðlum fyrir helgi. Egill hefur, allt frá því að málið kom fyrst upp, sagt að hann íhugaði að leggja fram slíka kæru.

Fékk skilaboð frá handrukkara

Egill segir stúlkuna hafa verið margsaga í aðalatriðum málsins og hann sé hugsi yfir því. „Hvers vegna hún í skýrslutöku vitnar um sms-skilaboð og símtöl sem aldrei áttu sér stað eins og útprentaðar símaskýrslur staðfesta. Það er mér mikið umhugsunarefni hvers vegna tvær vinkonur hennar „staðfesta" í smáatriðum þessi símtöl og sms, sem aldrei áttu sér stað, í skýrslutöku hjá lögreglu. Og ég get hreinlega ekki hætt að hugsa um það hvers vegna skilaboð frá handrukkara biðu mín þegar ég vaknaði daginn eftir," segir Egill.

Finnur til samúðar með stúlkunni

„Þrátt fyrir reiði mína og hryggð yfir þessu máli finn ég á vissan hátt til samúðar með stúlkunni því ég trúi ekki að það hafi verið meðvituð ákvörðun hjá henni að eyðileggja mannorð fólks sem hún á ekkert sökótt við. Ég hef þess vegna mikið velt því fyrir mér hvort eitthvað sé hæft í sögusögnum um að hún hafi orðið fyrir óeðlilegum þrýstingi frá tilteknu áhrifafólki. Komi slíkt i ljós þá eru allir aðilar þessa máls peð í pólitískum hráskinnsleik," segir Egill.

Rangt að stúlkan hafi farið grátandi heim

Egill segir að það sé rangt að stúlkan hafi horfið af heimili sínu í miklum flýti og hvað þá að hún hafi farið grátandi. „Það er rétt að vitni staðfesta að stúlkan hafi verið í tilfinningalegu uppnámi þegar vinkonur hennar sóttu hana. Hún komst hins vegar ekki í það uppnám fyrr en eftir að hún fór frá okkur. Á meðan hún dvaldi hjá okkur var mikið hlegið og góð stemning og þessi áburður kom því eins og þruma úr heiðskýru lofti," segir Egill.

Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að lesa yfirlýsingu Egils.


Tengdar fréttir

Fór hágrátandi heim frá Gillzenegger

Stelpan sem kærði Egil Einarsson fyrir nauðgun í haust fór hágrátandi af heimili Egils nóttina sem hún fullyrðir að hann hafi nauðgað sér. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem réttargæslumaður stúlkunnar hefur sent fjölmiðlum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×