Gjaldskrá vegna tannlækninga hækkar tímabundið um 50% Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. júlí 2012 15:22 Tannlæknaþjónusta verður dýrari um stund. mynd/ hari.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur falið Sjúkratryggingum Íslands að hækka gjaldskrá vegna almennra tannlækninga barna yngri en 18 ára tímabundið um 50%. Gjaldskrárbreytingin gildir frá 1. júlí til næstu áramóta, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu. Áætlað er að með þessu hækki hlutfall endurgreiðslu raunkostnaðar úr tæpum 42% í að meðaltali í 62,5% og hefur það ekki verið hærra í tæpan áratug. Ákvörðun velferðarráðherra er í samræmi við tillögu starfshóps sem hann skipaði um miðjan maí síðastliðinn. Síðastliðinn áratug hefur á hverju ári orðið afgangur af þeim fjármunum sem Alþingi hefur ákveðið að verja til tannlækninga sjúkratryggðra hér á landi. Meginástæðan er sú að enginn samningur hefur verið í gildi milli ríkisins og tannlækna um margra ára skeið og hlutfall endurgreiðslu raunkostnaðar vegna tannlækninga barna hefur lækkað verulega. Í fyrra var sá afgangur sem varð af fjárlagalið tannlækninga nýttur í sérstakt átaksverkefni þar sem börnum tekjulágra foreldra var boðin tannlæknisþjónusta án endurgjalds og nýttu tæplega 800 börn þessa þjónustu. Áætlað hefur verið að afgangur af fjárlagalið tannlækninga á þessu ári myndi að óbreyttu nema um 174 milljónum króna. Með gjaldskrárhækkuninni frá 1. júlí til 31. desember 2012 munu þessir fjármunir nýtast að fullu. Meginmarkmiðið er að fleiri börn leiti til tannlæknis en ella og er áætlað að þeim fjölgi um að minnsta kosti 10% með þessari breytingu.
Mest lesið Ekki hægt að draga ályktanir um hver varð manninum „líklegast“ að bana Innlent Gosmóðan gæti setið sem fastast fram á fimmtudag: „Menn verða að taka þetta alvarlega“ Innlent Lokuð inni með lokað fyrir glugga í þrjá daga Innlent Segjast komnir með nóg og ætla að gæta að framtíð Íslands Innlent Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Innlent Einfaldlega nýnastistar sem þýði meira ofbeldi og átök Innlent Hvalreki í Vogum Innlent Fundurinn vonbrigði: „Þetta leikrit er hafið“ Innlent Árekstur á Rangárvallarvegi Fréttir Hefur áhyggjur af málflutningi „taugaveiklaðrar“ stjórnarandstöðu Innlent Fleiri fréttir Ekki hægt að draga ályktanir um hver varð manninum „líklegast“ að bana Hvalreki í Vogum Gosmóðan gæti setið sem fastast fram á fimmtudag: „Menn verða að taka þetta alvarlega“ Hefur áhyggjur af málflutningi „taugaveiklaðrar“ stjórnarandstöðu Lokuð inni með lokað fyrir glugga í þrjá daga Fundurinn vonbrigði: „Þetta leikrit er hafið“ Búin að vera lokuð inni í þrjá daga vegna gosmóðunnar Vopnað rán og skartgripaþjófnaður í Reykjavík Einfaldlega nýnastistar sem þýði meira ofbeldi og átök Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Fordæma Hamas og segja áform um „mannúðarborg“ óviðunandi Stofna grunnskóla fyrir einhverf börn í Garðabæ Loftgæði versnandi á gosstöðvunum Segjast komnir með nóg og ætla að gæta að framtíð Íslands Sex spænskar orrustuþotur á leið til landsins Hafa tapað tvö hundruð milljónum króna vegna fjársvika Hafa sótt um bráðabirgðaleyfi Vill vita hvaða samningar eru í undirbúningi gagnvart ESB Verði fram á nótt að slökkva eld í trjákurlinu Geta greint frá svörum Þorgerðar ef hún gefur leyfi Stal bíl og keyrði um flugbrautirnar „Það þarf ekki alveg að halda sig innandyra“ „Þetta eru markvissar aðgerðir til að brjóta niður menntastofnanir“ Aðstæður þær bestu síðan 2021: Bílastæði við eldgosið að fyllast Mesta mengun frá upphafi eldsumbrota og deilt um utanríkismálin Tveggja katta enn saknað eftir eldsvoða á Tryggvagötu Hæsta gildi brennisteinsdíoxíðs frá upphafi eldsumbrota Enn unnið í því að slökkva í trjákurlinu Enginn Vinnuskóli í Reykjavík í dag vegna gosmengunar Haldlagning á ketamíni hundraðfaldast á fjórum árum Sjá meira