Fleiri fréttir

Gagnrýna nýtt gjald fyrir kafanir í Silfru

Eigandi Arctic Adventures segir nýtilkomið gjald Þingvallanefndar á kafara og snorklara í gjánni Silfru mismuna gestum þjóðgarðsins og koma á óvart. Helmingur gjaldsins fari væntanlega í laun starfsmanns sem eigi að rukka það.

Gæðaeftirlitsmenn skoða verkferla

„Embættismenn Kópavogsbæjar hafa lagt ómælda vinnu við það undanfarin fjögur ár að endurskoða og skrá niður alla vinnuferla innan stjórnsýslusviðs sem snerta til dæmis vistun skjala, innheimtu, innkaup, fjárhagsáætlunargerð, upplýsingagjöf og mannaráðningar,“ segir Arna Schram, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar.

Drottningin dregin í svaðið

Hópurinn Handverkskonur á milli heiða gagnrýnir harðlega að íslenskar lopapeysur séu framleiddar í Kína eða löndum með ódýru vinnuafli. Fjórar vikur eru síðan Fréttablaðið benti á að íslenskar lopapeysur væru í miklum mæli prjónaðar erlendis.

Fær ekki bætur fyrir varðhaldsvist

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af bótakröfu íslensks atvinnurekanda sem sat í gæsluvarðhaldi um þriggja vikna skeið haustið 2009 grunaður um aðild að mansalsmáli. Maðurinn var ákærður í málinu en fundinn sýkn saka.

Fjórir í stærðfræði með ágætiseinkunn

Fjórir stærðfræðinemar brautskráðust úr grunnnámi með yfir níu í meðaleinkunn frá Háskóla Íslands fyrir viku. Stærðfræði er nytsamleg, segir einn þessara nema, hún er notuð í hvert skipti sem lesa þarf úr talnagögnum.

Fallegri undirgöng í vændum

Veggjakrotarar voru ekki lengi að setja mark sitt á nýmálaða veggi í göngunum undir Miklubraut við Lönguhlíð. Stutt er síðan göngin voru máluð.

Vill sameina sjúkraflug á landinu

"Við gætum hugsanlega gert betur með því að vera ávallt með vakt á staðnum og það hlýtur auðvitað að vera framtíðin,“ segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann ræddi þar um þá hugmynd að sameina sjúkraflug á landinu og að hafa ávallt mannaða vakt á flugvöllum.

Strandaði við Skagaströnd

Báturinn Eyjólfur Ólafsson HU-100 strandaði norðan við Spákonufellshöfða við Skagaströnd á fimmta tímanum í dag. Engin hætta skapaðist en einn maður var um borð. Hann kom sér sjálfur í land við strandstaðin. Björgunarbátur frá Landsbjörg dró bátinn til hafnar.

Móðir telpnanna leitar til dómstóla

Móðir telpnanna þriggja, sem teknar voru með lögregluvaldi fyrir helgi, ætlar ásamt lögmanni sínum að leita til dómstóla til að fá úr því skorið hvort aðgerðin hafi verið lögleg. Lögmaður föðurins segir Ísland skuldbundið alþjóðasáttmálum til að beita þessu neyðarúrræði.

Þörf á strangari kröfum til fjölda meðmælenda

Prófessor við lagadeild Háskóla Íslands telur rétt að auka þann fjölda meðmælenda sem forsetaframbjóðendur þurfa að afla til að framboð telst löglegt. Niðurstöður kosninganna þar sem þrír frambjóðendur fengu samtals um fimm prósent atkvæða bendi til þessa að þröskuldurinn sé of lágur í dag.

Vill að lopapeysur verði merktar framleiðslulandi sínu

"Það eru hundruð íslendinga sem vinna við það að prjóna peysur og ég vill ekki að þetta handverk eigi í hættu við erlenda samkeppni." Þetta segir Aðalsteinn Baldurssonar, formaður verkalýðsfélagsins Framsýnar.

Athugasemdir eldri borgara í Gerðubergi verða skoðaðar

Reykjavík verð rúmum hálfum milljarði króna til félagsmiðstöðvanna í Reykjavík á þessu ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni vegna bænaskjals sem eldri borgarar, sem nýta sér þjónustu Gerðubergs, færðu borgarfulltrúum í dag til að mótmæla niðurskurði í starfi eldri borgara í Gerðubergi.

Konan formlega tekin við af Karli

Agnes M. Sigurðardóttir tók formlega við starfi biskups Íslands í dag. Dagurinn byrjaði klukkan níu á Biskupsstofu. Fyrsta formlega verkefnið var innanhúss helgistund.

Sakborningur í mansalsmáli fær engar bætur frá ríkinu

Íslenska ríkið hefur verið sýknað af kröfu manns sem var handtekinn og sætti einangrun í þrjár vikur vegna mansalsmálsins 2009. Um er að ræða eina mansalsmálið sem hefur verið ákært í á Íslandi, en maðurinn var sýknaður af ákærunni.

Ólíklegt að kosningarnar verði ógiltar

Þó að framkvæmd atkvæðagreiðslu fatlaðra í forsetakosningunum á laugardag gæti talist ágalli á kosningunum er ólíklegt að það leiði til ógildingar þeirra. Þetta segir Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst.

Framleiðendur Oblivion vildu loka svæðinu yfir Veiðivötnum

Framleiðendur kvikmyndarinnar Oblivion óskuðu eftir því að flugbann yrði sett yfir svæðinu þar sem tökur fara fram á Veiðivatnasvæðinu. Eins og kunnugt er leikur Tom Cruise aðalhlutverkið í myndinni. Flugmálayfirvöld fengu beiðni um að svæðinu yrði lokað fyrir flugumferð þar sem einhverjar sprengingar voru fyrirhugaðar vegna töku kvikmyndar þar.

Vinna hafin við þriðja bindi sögu Akraness

Samningar um að hefja vinnu við þriðja bindið af sögu Arkaness voru samþykktir í bæjarráði Akraness í júní. Vinnan við þriðja bindi sögunnar er því hafin og sem fyrr sér Gunnlaugur Haraldsson um ritunina. Upphæðin sem samþykkt var fyrir þetta ár var 4,2 milljónir króna en í heild sinni er gert ráð fyrir að vinnan við bindið kosti 14 milljónir.

Eldri borgarar biðla til borgarfulltrúa

Eldri borgarar úr Gerðubergi í Breiðholti afhentu borgarfulltrúum í dag bænaskjal þar sem þess er farið á leit að starfi eldri borgara í Gerðubergi verði bjargað. Undirskriftir 450 manns sem tengjast starfinu voru afhentar borgarfulltrúunum. Á meðal þeirra sem hittu borgarfulltrúana var Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og formaður velferðarráðs.

Tökur á Oblivion enn í gangi

Það ræðst líklega á morgun hvenær tökum á myndinni Oblivion, sem skartar Tom Cruise í aðalhlutverki, mun ljúka. Þetta staðfestir talsmaður tökuliðsins við Vísi. Tökur hafa farið fram undanfarna daga samkvæmt áætlun, þrátt fyrir þrálátar sögusagnir í erlendum miðlum um að Tom Cruise hafi yfirgefið landið eftir að Katie Holmes sótti um skilnað frá honum. Tökur fara fram núna á Suðurlandi, í nágrenni við Veiðivötn.

Leita vitnis að umferðarslysi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Nýbýlavegi í Kópavogi um hádegisbil föstudaginn var. Í hringtorgi á móts við Toyota-umboðið var svörtum Range Rover ekið í veg fyrir bifhjól með þeim afleiðingum að ökumaður þess missti stjórn á hjólinu, ók á vegkant og féll síðan af því. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar.

Guðmundur: Forsetinn kominn í pólitík

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir þjóðina hafa sent þau skilaboð í forsetakosningunum að forsetinn eigi að láta til sín taka í umræðunni um hin stærstu mál. Guðmundur Steingrímsson, formaður stjórnmálaflokksis Bjartrar framtíðar, segir að með þessu sé forsetinn kominn í pólitík og að breytingar þurfi að verða á embættinu í samræmi við það. Skoðanir forsetans geti ekki komið úr vernduðu umhverfi.

Telpurnar fluttar til Danmerkur í gær

Telpurnar þrjár, sem voru teknar með lögregluvaldi af móður sinni á föstudag, voru fluttar úr landi síðdegis í gær til Danmerkur. Lögmaður móðurinnar furðar sig á að börnin hafi ekki verið kyrrsett á Íslandi.

Brotist inn í nýbyggingu í Mosfellsbæ

Brotist var inn í nýbyggingu í Mosfellsbæ og nokkrum verkfærum var stolið. Tilkynning um innbrotið barst lögreglunni um hálftíuleytið í morgun. Ekki er vitað hver eða hverjir voru þarna að verki en þeirra er leitað.

Hundruð handverkakvenna óttast um hag sinn

Verulegur hiti er meðal handverkakvenna sem hafa haft lífsviðurværi sitt af því um árabil að selja ferðamönnum prjónaðar vörur og annað íslenskt handverk. Stórfyrirtæki á Íslandi eru farin að senda lopa til Kína þar sem íslenskir minjagripir eru framleiddir. Í morgun greindi Verkalýðsfélagið Framsýn greindi frá því að félagið hyggðist kanna hver kjör kinversk verkafólks væru.

Viðbragðsáætlun virkjuð á Keflavíkurflugvelli

Viðbragðsáætlun var virkjuð á Keflavíkurflugvelli nú á níunda tímanum vegna flugvélar sem á að lenda um klukkan korter í níu. Tilkynnt var um reyk í flugstjórnarklefa vélarinnar, en á þessari stundu er ekki vitað hvað veldur reyknum. Ekki hafa fengist um það upplýsingar á þessari stundu hvaðan vélin var að koma.

Vilja að lopapeysurnar séu prjónaðar á Íslandi

Verkalýðsfélagið Framsýn íhugar að óska eftir upplýsingum frá íslenskum aðilum sem láta framleiða íslenskar lopapeysur í Kína til þess að selja á Íslandi. Óskað verður eftir upplýsingum um kjör og aðbúnað fólksins í Kína sem framleiðir lopapeysurnar fyrir markaðinn á Íslandi. Á vef Framsýnar segir að Kínverjar hafi fram að þessu ekki verið þekktir fyrir góð launakjör eða aðbúnað verkafólks, sé tekið mið af því sem gerist á Íslandi.

Snjallsímaleiðsögn í boði um Austurland

Austfirðingar hafa tekið nýjustu tækni í þjónustu sína til að auka gildi ferðalaga um fjórðunginn. Nýtt smáforrit fyrir snjallsíma og spjaldtölvur gerir ferðalöngum kleift að nálgast leiðsögn um sex aðskilin svæði á héraði og niðri á fjörðum.

Bílvelta á Mosfellsheiði

Bílvelta varð á Mosfellsheiði í gærkvöld um tíu leytið. Tvennt var í bílnum, ungur ökumaður og stúlka. Þau slösuðust ekki að ráði, fengur skrámur og eymsli á öxl en voru flutt á slysadeild til skoðunnar. Bíllinn er hinsvegar stórskemmdur.

Þvottastöðvar knúnar fótafli viðskiptavina

Ef hugmyndir átta bandarískra listhönnuða ganga eftir verður ekki langt í að þvottastöðvar, sem í leiðinni verða hálfgerðar félagsmiðstöðvar, skjóti upp kollinum víða um land.

Þóra var duglegust á samfélagsmiðlum

Rannsóknir benda til þess að fylgni sé á milli úrslita kosninga og áhrifa frambjóðenda á samfélagsmiðlum. Þekkingarfyrirtækið Cloud engineering tók saman upplýsingar um virkni forsetaframbjóðenda á Facebook í aðdraganda kosninganna. Skemmst er frá því að segja að Þóra Arnórsdóttir og stuðningsmenn hennar nýttu samfélagsvefinn mest allra frambjóðenda til að kynna sig og eiga samskipti við kjósendur. Gagnasöfnunin um Facebook-notkunina spannaði allan júnímánuð.

Einföld atriði útskýra dræma kjörsókn

Kjörsókn í forsetakjöri hefur aðeins einu sinni verið lakari, árið 2004. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórmálafræði, segir augljós atriði skýra dræma kjörsókn nú.

Þurfa að greiða 110 milljónir í veiðigjöld

Sjávarútvegsfyrirtæki í Vesturbyggð þurfa að greiða hundrað og tíu milljónir í veiðigjöld á næsta ári. Framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Odda á Patreksfirði segir að fyrirtækið muni draga úr fjárfestingum til að mæta auknum útgjöldum.

Jóhanna Sigurðardóttir: Niðurstaðan er afgerandi

"Þetta er afgerandi niðurstaða í lýðræðislegum kosningum þar sem fólkið hefur sagt sína skoðun og hana bera að sjálfsögðu að virða og ég óska forsetanum til hamingju og óska honum alls góðs með endurkjörið,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í viðtali við fréttastofu en þar með er hún fyrsti stjórnmálamaðurinn til þess að óska Ólafi Ragnari Grímssyni til hamingju með endurkjör sitt.

Enginn þingmaður hefur óskað Ólafi til hamingju

Hvorki ráðherrar né þingmenn höfðu óskað Ólafi Ragnari Grímssyni til hamingju með kosningaúrslitin í hádeginu í dag. Hann segir það vera í góðu lagi því kosningarnar snúist ekki um ríkisstjórnina. "Þær eru um fólkið í landinu, vilja þess og framtíðarsýn," sagði Ólafur Ragnar Grímsson í samtali við Lóu Pind Aldísardóttur á Bessastöðum í dag.

Fullur, próflaus og óviðræðuhæfur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um klukkan hálf átta í morgun um sérkennilegt aksturslag bifreiðar í austurbænum. Skömmu síðar fannst bifreiðin og rætt var við ökumann sem var ekki var kominn með bílpróf. Hann var sýnilega mjög ölvaður og óviðræðuhæfur af þeim sökum samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

Lokatölur yfirkjörstjórnar í Norðausturkjördæmi

Auðir og ógildir seðlar í Norðausturkjördæmi voru 404, eða 1,9%, samkvæmt lokaskýrslu yfirkjörstjórnar þar. Á kjörskrá voru 29.003. Greidd atkvæði voru alls 20.884 sem þýðir 72,0% kjörsókn. Atkvæði féllu þannig: Andrea J. Ólafsdóttir 348 eða 1,7%. Ari Trausti Guðmundsson 1.882 eða 9,2%. Hannes Bjarnason 277 eða 1,4%. Herdís Þorgeirsdóttir 583 eða 2,8%. Ólafur Ragnar Grímsson 10.363 eða 50,6%. Þóra Arnórsdóttir 7.027 eða 34,3%. Auðir seðlar 344 eða 1,6% Aðrir ógildir seðlar 60 eða 0,3%.

Sjá næstu 50 fréttir