Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fá ekki styrki fyrir lífrænan búskap vegna fjárskorts Fjárskortur hefur orðið til þess að bændur sem vilja skipta yfir í lífrænan búskap hafa enn ekki fengið ríkissstyrk til að skipta um búskaparhætti. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir bændum skuli tryggður aðlögunarstuðningur skipti þeir úr hefðbundinni ræktun yfir í lífræna. Þingsályktunartillaga nefndar um eflingu græna hagkerfisins var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á Alþingi á dögunum. 15.4.2012 12:03
Beittu piparúða til að ná manni úr lögreglubíl Ölvaður maður réðst að lögreglubíl um þrjúleytið í nótt og barði í bílinn. Þegar lögreglumenn höfðu afskipti af honum sýndi maðurinn þeim ógnandi tilburði. Maðurinn var handtekinn og er vistaður í fangageymslu þar til hægt verður að ræða við hann. 15.4.2012 09:10
Víða er skíðafæri Skíðasvæðin í Bláfjöllum og í Hlíðarfjalli eru opin í dag. Bæði svæðin opnuðu nú klukkan tíu og er opið til fimm í Bláfjöllum og til klukkan fjögur í Hlíðarfjalli. Færi á báðum stöðum er mjög gott en þó er fólk beðið um að fylgjast með aðstæðum í símsvara Bláfjalla þar sem að líkur eru á að hvessi þegar líða tekur á daginn. Skíðasvæðin í Skálafelli, á Ísafirði og í Dalvík eru lokuð í dag, 15.4.2012 10:05
Tími nagladekkja liðinn Vorið er farið að láta á sér kræla og við minnum lesendur á að frá og með deginum í dag er bannað að aka á nagladekkjum. Minnt er á að nú ber að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk og ónothæf dekk, og því betra að gera bragabót í þessum efnum hið fyrsta. Umferðarstofa vill benda á að það hafa orðið alvarleg umferðarslys sem rekja má m.a. til lélegs dekkjabúnaðar. Þá má benda á að Alþýðusamband Ísland gerði fyrir skemmstu verðkönnun á dekkjum en hana má kynna sér á vefnum asi.is 15.4.2012 09:51
Hafa þegar hjálpað nær 40.000 börnum Hjálparstarf UNICEF á Sahel-svæðinu í Afríku er komið í fullan gang. Tugir þúsunda barna hafa fengið meðferð vegna vannæringar. Söfnun UNICEF hefur gengið vel á Íslandi og um fjórtán milljónir króna hafa þegar safnast. 15.4.2012 06:00
Varla meirihluti án Sjálfstæðisflokksins Eini möguleikinn til að mynda ríkisstjórn án þátttöku Sjálfstæðisflokksins er ríkisstjórn allra hinna flokkanna fimm sem ná sæti á Alþingi samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Ný framboð ná samtals átta þingmönnum, en hátt hlutfall kjósenda á enn eftir að gera upp hug sinn. 14.4.2012 20:04
Jón Kaldal yfirgefur Fréttatímann Jón Kaldal, ritstjóri Fréttatímans, hefur selt hlut sinn í blaðinu. Kaupendur eru aðrir hluthafar. Jón hefur í kjölfar þessara viðskipta látið af starfi ritstjóra. 14.4.2012 19:08
Hægt að sjöfalda lífræna framleiðslu Raunhæft er að stefna að sjöföldun lífrænnar framleiðslu á íslenskum markaði fyrir lok þessa áratugar. Þetta segir formaður þingnefndar um eflingu græna hagkerfisins. Samtök lífrænna neytenda skiluðu í dag tillögum sínum til yfirvalda um hvernig móta skuli stefnu í þessum málum. Fyrsti aðalfundur Samtaka lífrænna neytenda var haldinn í Reykjavíkurakademíunni í dag, en ár er síðan samtökin voru stofnuð. Tilgangur þeirra er að stuðla að aukinni framleiðslu vottaðra lífrænna vara á Íslandi með velferð almennings, búfjár og umhverfisins að leiðarljósi. 14.4.2012 18:43
Segir sjálfstæðismenn hafa samþykkt hugmyndirnar Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs Reykjavíkurborgar, segir að samkomulag sem til stendur að Reykjavíkurborg og ríkiið geri með sér um bættar almenningssamgöngur en frestun í mannvirkjagerð byggist á viljayfirlýsingu sem borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi staðið að og greitt atkvæði sitt á fundi borgarráðs í júlí í fyrra. 14.4.2012 18:08
Gagnrýna borgaryfirvöld fyrir að samþykkja frestun framkvæmda Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins gagnrýna harðlega að meirihluti borgarstjórnar ætli að undirrita samkomulag við ríkisvaldið sem felur í sér frestun mikilvægra vegaframkvæmda í Reykjavík. Þar ber hæst Sundabraut, lausnir við mislæg gatnamót við Kringlumýrarbraut, göng undir Öskjuhlíð og margar aðrar brýnar samgöngubætur sem borgarbúar hafa beðið eftir til margra ára. Samkvæmt því samkomulagi sem nú liggur fyrir verður þessum brýnu framkvæmdum frestað í minnst 10 ár. 14.4.2012 15:18
Formaðurinn tekinn undir áhrifum: "Algjört dómgreindarleysi" Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri grænna, var tekinn fyrir ölvun við akstur í gærkvöldi. "Ég hafði verið í matarboði og drukkið hvítvín með matnum. Þetta er algjört dómgreindarleysi af minni hálfu, og mikilvæg lexía sem og áminning um að maður á aldrei að snerta bifreið undir áhrifum áfengis,“ segir Guðmundur í yfirlýsingu sem hann birti fyrir stundu á Facebook-síðu sinni. Þar kemur fram að hann hafi verið tekinn við umferðareftirlit lögreglunnar í Hafnarfirði, látinn blása og reynst vera yfir mörkunum. "Til þess að allt sé upp á borðum vildi ég koma þessu á framfæri öðrum til varnaðar. Ég vil þakka lögreglunni fyrir árverkni hennar. Stjórnarmönnum Hægri grænna hefur verið greint frá málinu,“ segir Guðmundur í yfirlýsingunni. 14.4.2012 12:22
Ólöf: Sjálfstæðisflokkurinn á góðri siglingu "Ég er auðvitað mjög ánægð með þessar niðurstöður sem þarna koma fram,“ segir Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins. Samkvæmt niðurstöðunum mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 43% fylgi en ríkisstjórnarflokkarnir með 23% fylgi samanlagt. Ólöf bendir á að niðurstöður sem komu fram í könnun Capacent um daginn hafi verið góðar og þessar fylgi svo í kjölfarið. "Þannig að ég held að það sé alveg ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn er á góðri siglingu,“ segir Ólöf. 14.4.2012 10:34
Sjálfstæðisflokkurinn með 43% Sjálfstæðisflokkurinn ber höfuð og herðar yfir aðra flokka samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Stjórnarflokkarnir njóta samanlagt stuðnings ríflega 23 prósenta. 14.4.2012 08:00
Linda: Háværustu þrumur sem ég hef heyrt Þær voru yfirþyrmandi þrumurnar og eldingarnar sem dundu yfir Tælandi eftir að jarðskjálftinn reið yfir í Indónesíu í síðustu viku. Skjálftinn var 8,7 stig á Richterskvarða og síðar varð annar skjálfti sem var 8,2 að stærð. 14.4.2012 14:24
Flugstöðin er 25 ára Tuttugu og fimm ár eru liðin í dag frá því Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli var vígð og var afmælinu fagnað í gær. Meðal gesta voru ýmsir fyrrverandi og núverandi forráðamenn stöðvarinnar og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sem er æðsti yfirmaður samgöngumála á landinu. 14.4.2012 14:02
Girðingar í góðu standi en hreindýr drepast úr hor Bæjarstjóri Hornafjarðar segir girðingar í góðu lagi í landi Flateyjar í Mýrum. Því ættu engin hreindýr að flækjast í þeim og drepast. Hins vegar sé það áhyggjuefni að hreindýr í Hornafirði hafi drepist úr hor á undanförnum dögum og því sé brýnt að rannsaka beitarþol. Fréttastofa greindi frá því í gær að tveir dýraverndunarsinnar hefðu kært 14.4.2012 13:04
List án landamæra sett í vikunni Það verður mikið um að vera víðast hvar um landið frá og með næsta miðvikudegi en þá verður hátíðin List án landamæra sett. Á dagskrá verða fjölmargir skapandi og skemmtilegir viðburðir. Meðal annars mun Bjöllukórinn úr Tónstofu Valgerðar troða upp í Hörpu og Leikfélag Sólheima mun sýna Kardimommubæinn að Sólheimum. 14.4.2012 11:33
Líkamsárás við Bæjarins bestu Ráðist var á mann við Bæjarins Bestu í Tryggvagötu rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Árásarmaðurinn var handtekinn og verður vistaður í fangageymslu þar til hægt verður að ræða við hann. Sá sem varð fyrir árásinni slasaðist ekki alvarlega, en er líklega með brotna tönn. Þá voru tveir ökumenn stöðvaðir fyrir ölvun við akstur, annar í Hamraborg í Kópavogi en hinn á Reykjanesbraut við Molduhraun. Sá sem var stöðvaður við Hamraborg hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Hinn ökumaðurinn var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. 14.4.2012 09:03
Ákærður fyrir nauðgun og brennu Ríkissaksóknari hefur ákært ríflega þrítugan mann frá Höfn í Hornafirði fyrir brennu og nauðgun. Brotin sem hann er ákærður fyrir voru framin með um árs millibili. Hann neitar allri sök. 14.4.2012 08:00
Efla vitund um kosti lífrænnar framleiðslu Efla þarf vitund almennings um kosti lífrænnar ræktunar og afurða hennar, segir í áætlun Samtaka lífrænna neytenda um mótun stefnu um lífræna framleiðslu. 14.4.2012 16:57
Unga fólkið líklegra til úrskráningar 352 gengu úr Þjóðkirkjunni fyrstu þrjá mánuði þessa árs. Þar af skráðu 166 sig í annað trúfélag en 186 skráðu sig utan trúfélaga. Í samantekt Þjóðskrár kemur fram að af þessum 352 einstaklingum eru 269 fæddir árið 1976 eða síðar. 14.4.2012 10:00
Vinir Elliðaárdals stofna samtök Hátt í níutíu manns mættu á stofnfund Hollvinasamtaka Elliðaárdals í félagsheimili Orkuveitu Reykjavíkur í dalnum í fyrrakvöld. 14.4.2012 06:30
Ísland mótmælir ekki meðalgöngu Evrópusambandsins Íslensk stjórnvöld telja best að leggjast ekki gegn meðalgöngu framkvæmdastjórnar ESB í Icesave-málinu. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins mótmælir og segir ástæðulaust að halda áfram aðildarviðræðum að óbreyttu. 14.4.2012 06:00
Íslensk músík orðin vörumerki Það er að miklu leyti tilviljunum háð hverjir "meika“ það í útlöndum og hverjir ekki, segir Sigtryggur Baldursson, framkvæmdastjóri ÚTÓN og Sykurmoli, við Stíg Helgason. Hann telur að margar íslenskar hljómsveitir gætu náð langt á næstunni. 13.4.2012 21:15
Páll Óskar vekur athygli á neyðinni á Sahel-svæðinu Neyð barna á Sahel-svæðinu er gríðarleg og UNICEF stendur nú yfir neyðarsöfnun. Páll Óskar Hjálmtýsson hefur unnið öflugt sjálfboðastarf fyrir UNICEF og leggur sitt af mörkum til að vekja athygli Íslendinga á neyðinni. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá Pál Óskar tala um ástandið þar, en framleiðslufyrirtækið Pegasus gerði myndbandið með Palla en allir sem komu að gerð þess gáfu vinnuna sína. 13.4.2012 20:38
Kirkjugarður á Seltjarnarnesi? Kirkjugarður gæti risið á Seltjarnarnesi ef hugmyndir þess efnis ná fram að ganga. Þrjár staðsetningar koma til greina fyrir allt að þrjú þúsund grafir. 13.4.2012 20:33
Ásdís Rán í kynþokkafullu hlutverki í búlgörsku tónlistarmyndbandi „Þetta er held ég stærsta hlutverkið sem ég hef fengið, það var rosalega skemmtilegt að taka þátt í þessu," segir Ásdís Rán Gunnarsdóttir, sem fer með eitt aðalhlutverkið í nýju tónlistarmyndbandi hjá búlgarska söngvaranum Diamante. 13.4.2012 20:12
Ný dagbók komin í dagsljósið - mikilvæg viðbót við rannsóknina Dagbók Guðjóns Skarphéðinssonar sakbornings í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, frá því hann sat í eins árs gæsluvarðhaldi árin 1976-77 er nýlega komin í hendur starfshóps á vegum innanríkisráðuneytisins sem rannsakar nú málið. Formaður hópsins segir dagbókina veigamikið gagn og viðbót fyrir rannsóknina. 13.4.2012 19:30
Tveir kært Hornafjörð vegna hreindýradrápa Tveir dýraverndunarsinnar hafa kært sveitarfélag Hornafjarðar fyrir meint brot á lögum um dýravernd og girðingarlögum. Fjöldi hreindýra hefur drepist í sveitarfélaginu eftir að hafa flækst í girðingarvír. 13.4.2012 19:21
Dómurinn kostar fjármálastofnanir 165 milljarða Dómur hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðra lána mun kosta fjármálastofnanir um hundrað sextíu og fimm milljarða króna. Þetta kemur fram í minnisblaði fjármálaeftirlitsins um áhrif dómsins. Bankarnir hafa nú þegar lækkað lánasöfn sín um rúma sjötíu milljarða og því þurfa þeir að afskrifa tæpa níutíu og fimm milljarða til víðbótar. Fjármálaeftirlitið telur ekki að dómurinn ógni fjármálastöðugleika en áréttar að öll óvissa vegna uppgjörs gengislána sé slæm fyrir fjármálakerfið í heild. 13.4.2012 18:37
Bætir ekki andrúmsloftið í viðræðunum Steingrímur J. Sigfússon segir þátttöku framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í Icesave málinu pólitískt mál þar sem sambandið taki afstöðu gegn Íslandi. Honum þyki þetta fruntaleg framkoma sem sé ekki til þess fallin að bæta andrúmsloftið í aðildarviðræðunum. 13.4.2012 18:34
Almannatengill: Þóra gæti verið búin að toppa of snemma Jón Hákon Magnússon almannatengill segir að Þóra Arnórsdóttir, fjölmiðlakona og forsetaframbjóðandi, gæti verið búin að toppa of snemma. Í könnun Fréttablaðsins í dag mælist hún með jafn mikið fylgi og Ólafur Ragnar Grímsson, sitjandi forseti. 13.4.2012 18:10
Olíuvinnslu Noregs við Jan Mayen verði þjónað frá Íslandi Fyrirtækin sem nú undirbúa þjónustumiðstöð á Íslandi vegna olíuborana stefna að því að hún þjóni einnig fyrirhugaðri olíuleit Norðmanna á Jan Mayen-hryggnum. Þórshöfn og Vopnafjörður koma enn til greina. 13.4.2012 20:00
FME: Gengislánadómur ógnar ekki fjármálastöðuleika Fjármálaeftirlitið telur að áhrif gengislánadómsins frá 15. febrúar á þessu ári ógni ekki fjármálastöðuleika í landinu. Þetta kemur fram í minnisblaði stofnunarinnar. 13.4.2012 17:07
Íbúar telja innbrot mesta vandamálið í sínu hverfi Tæp 44 prósent sögðu innbrot mesta vandamálið í sínu hverfi samkvæmt niðurstöður könnunar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um viðhorf almennings til lögreglu, ótta við afbrot og reynslu af þeim. Þau 44 prósent sem sögðu innbrot mesta vandamálið eru umtalsvert færri en í síðustu könnun. 13.4.2012 16:52
Veiðitímabil svartfugls stytt Umhverfisráðherra hefur breytt reglugerð um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum á þann veg að stytta veiðitíma fimm tegunda svartfugla nú í vor. Veiðar á álku, langvíu, lunda, stuttnefju og teistu verða heimilar til 25. apríl í stað 10. maí nú í vor. 13.4.2012 16:41
Segja metanól ekki jafn hættulegt og FÍB heldur fram Carbon Recycling vill árétta að metanól og etanól hafa svipuð áhrif á efni sem notuð eru í eldsneytiskerfum bíla. Framkvæmdastjóri Félags bifreiðaeiganda, Runólfur Ólafsson, gagnrýndi í dag fyrirtækið harðlega og vildi meina að það þyrfti að rannsaka heilsufarslega þætti blöndunar betur. 13.4.2012 16:35
Stjórnvöld ekki á móti meðalgöngu ESB Íslensk stjórnvöld hafa falið EFTA-dómstólnum að ákveða hvort að meðalganga framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins í Icesave-málinu verður leyfð. 13.4.2012 16:31
Listahátíð afhjúpuð Listahátíð í Reykjavík leggur undir sig borgina frá 18. maí til 3. júní. Dagskrá hátíðarinnar var kynnt í gær. Hrefna Haraldsdóttir, stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, fór yfir dagskrána á blaðamannafundi í gær. Á fimmta tug viðburða og hundruð listamanna víðs vegar að úr heiminum taka þátt í Listahátíð í Reykjavík í ár. 13.4.2012 15:30
Laugardalslaug lokuð vegna framkvæmda Unnið er að miklum endurbótum á Laugardalslaug og vegna framkvæmda verður lokað í þrjá daga eftir helgi - frá mánudegi til miðvikudags. Laugin opnar á ný kl. 8:00 sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 19. apríl. Gestir eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem lokun hefur í för með sér. 13.4.2012 15:21
Málafjöldi aukist um 466 prósent Aflið, samtök gegn kynferðis og heimilisofbeldi á Norðurlandi halda upp á áratugar afmæli sitt í dag. Starfsemin hefur vaxið á síðustu árum. Til að mynda má nefna að í ársskýrslu samtakanna, sem kynnt verður í dag, kemur fram að málafjöldi hefur aukist um 466 prósent frá því árið 2007. 13.4.2012 15:13
Ný gögn komin fram í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu Ný gögn hafa komið fram í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, meðal annars nýjar dagbækur svipaðar þeim og fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá fyrir jól. 13.4.2012 15:12
Áfengis- og húsgagnaverslun jókst á milli ára Velta í dagvöruverslun í marsmánuði jókst frá fyrri mánuði í öllum flokkum, enda febrúar mánuður stuttur og að auki voru fimm föstudagar í mars mánuði en þeir vega nokkuð þungt í veltu, sérstaklega í flokki dagvöru og áfengis. Þannig jókst sala áfengis um 12,2% í mars miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 17,2% á breytilegu verðlagi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá rannsóknarsetri verslunarinnar. 13.4.2012 14:28
Plastmál Jóhönnu Sigurðardóttur selt á 105 þúsund krónur Plástmál sem Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, drakk úr í hljóðveri Rásar 2 í morgun var slegið á 105 þúsund krónur. Uppboðið hófst eftir að þáttastjórnendur Virkra morgna komu að dýrgripnum á glámbekk í morgun. 13.4.2012 14:22
Segir aðildarumsókn Íslands að ESB á leiðinni í algjöra sjálfheldu Eiríkur Bergmann Einarsson, forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst segir allt benda til þess að aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu muni lenda í algjörri sjálfheldu í komandi kosningum. 13.4.2012 14:00