Innlent

Ný dagbók komin í dagsljósið - mikilvæg viðbót við rannsóknina

Helga Arnardóttir skrifar
Dagbók Guðjóns Skarphéðinssonar sakbornings í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, frá því hann sat í eins árs gæsluvarðhaldi árin 1976-77 er nýlega komin í hendur starfshóps á vegum innanríkisráðuneytisins sem rannsakar nú málið. Formaður hópsins segir dagbókina veigamikið gagn og viðbót fyrir rannsóknina.

Starfshópurinn sem skipaður var í byrjun október í fyrra til að rannsaka Guðmundar og Geirfinnsmálið hefur viðað að sér fjölda gagna frá hinum ýmsu stofnunum. Þá hefur einnig verið gerð réttarsálfræðirannsókn undir forystu Gísla Guðjónssonarog Jóns Friðriks Sigurðsson réttarsálfræðinga. Fyrir ekki svo löngu barst nefndinni dagbók Guðjóns Skarphéðinssonar frá því hann sat í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins. Hann sat heilt ár í varðhaldi og fékk tíu ára fangelsisdóm fyrir að hafa orðið Geirfinni Einarssyni að bana.

„Dagbókin er viðamikið gagn og mikilvæg viðbót inn í rannsóknarvinnu réttarsálfræðinganna. Hún er viðamikil og nákvæm og nær jafnvel yfir lengri tíma en dagbækur Tryggva Rúnars sem komu fram síðastliðið haust. Þannig að þetta er stór gagnapakki inn í okkar vinnu," segir Arndís Soffía Sigurðardóttir

Guðjón segist í samtali við fréttastofu hafa haldið að dagbókin hefði glatast þegar hann bjó úti í Danmörku í fimmtán ár. Hún hafi hins vegar komið í leitirnar í byrjun árs þar sem hún var niðugrafin í kassa uppi á háalofti. Dagbækur Tryggva Rúnars Leifssonar, heitins, eins sakborninganna voru birtar í fyrsta skipti í Íslandi í dag í október í fyrra.

Gísli Guðjónsson taldi dagbækurnar taldi þá vera veigamikil gögn fyrir réttarsálfræðirannsókn í málinu sérstaklega með tilliti til falskra játninga. Komið hefur fram að allir sakborningar málsins drógu játningar sínar til baka en ekkert mark var á þeim tekið. Gerð hefur verið réttarsálfræðirannsókn á þeim sakborningum málsins sem eftir lifa en þeir eru fjórir og ítarleg viðtöl verið tekin við þá. Þeim hluta rannsóknarinnar er þó alls ekki lokið.

Starfshópurinn átti að skila áfangaskýrslu um málið í lok þessa mánaðar en hann hefur hins vegar farið fram á frest en hyggst í staðinn skila stöðuskýrslu í apríllok.

„Í fyrsta lagi þá var runnið nokkuð blint í sjóinn í upphafi með það hvað við þyrftum langan tíma til að ljúka þessu verki og það hefur nú komið í ljós að við þurfum mun lengri tíma. Í annan stað þá hefur það tekið lengri tíma en við ætluðum að sækja gögn til einstakra stofnana."

Hún vildi ekki tiltaka hvaða stofnanir það væru sem hefðu tafið fyrir því að gögn bærust nefndinni.

„Það hefur vissulega valdið okkur vonbrigðum hvað þetta hefur tekið langan tíma að sækja gögn en þetta kemur allt á endanum."

Arndís gat ekki að svo stöddu sagt til um hvenær lokaskýrsla um málið verði tilbúin þar sem fjölmörg gögn eru enn óyfirfarin úr öllum áttum. Hún hvetur fólk til að hafa samband búi það yfir upplýsingum um málið og minnir á netfang starfshópsins sem er gg@irr.is.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×