Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ráðist á heimasíðu Bubba: Ættu mjög bágt ef ég vissi hverjir þeir væru "Þetta er mér algjörlega óskiljanlegt, ég skil ekki hver sér tilganginn í að gera svona,“ segir Bubbi Morthens tónlistarmaður en óprúttnir aðilar gerðu árás á heimasíðu hans, bubbi.is, í nótt. Síðan liggur niðri en inni á henni er mikið af upplýsingum um feril hans. 25.9.2011 13:14
Einn dagur í verkfall félagsráðgjafa Félagsráðgjafar og fulltrúar Reykjavíkurborgar funda í kjaradeilu sinni í dag, en nú er einungis einn dagur þar til fyrirhugað verkfall félagsráðgjafa hjá Reykjavíkurborg skellur á. 25.9.2011 12:00
Barefli notuð í alvarlegum líkamsárásum í nótt Tvær alvarlegar líkamsárásir áttu sér stað á höfuðborgarsvæðinu í nótt, önnur fyrir utan pizzastað í Núpalind í Kópavoginum en hin í heimahúsi í Grafarvogi. 25.9.2011 09:12
Ný námsleið fyrir heyrnarlausa Ný námsleið sem verður sniðin að þörfum heyrnarlausra verður tekin upp í byrjun næsta árs hjá Mími-símenntun. Sjálfstyrking verður stór hluti af náminu. 24.9.2011 20:30
Vann 26,5 milljónir í lottó Einn var með allar lottótölurnar réttar og fær um 26,5 milljónir í sinn hlut. 24.9.2011 19:45
Bænastund vegna sjálfsvígs 11 ára pilts Bænastund verður haldin í Safnaðarheimilinu í Sandgerði klukkan 18 á morgun vegna sjálfsvígs ellefu ára pilts. 24.9.2011 19:34
Íhugar að láta af störfum vegna lélegra kjara Lögreglumaður, sem elskar starf sitt, segist íhuga að láta af störfum vegna lélegra kjara og lítilsvirðandi viðmóti ríkisvaldsins. 24.9.2011 18:44
Fékk aðsvif og klessti á Ökumaður fólksbíls slapp án meiðsla þegar hann fékk aðsvif og klessti aftan á kyrrstæðan bíl í Hveragerði nú síðdegis. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá lögreglunni á Selfossi var ökumaðurinn fluttur á sjúkrahús til skoðunar en hann er ekki mikið slasaður. Báðir bílarnir skemmdust talsvert. 24.9.2011 17:50
Lýsti yfir stuðningi við ESB-umsókn Erato Kozakou-Marcoullis, utanríkisráðherra Kýpur, lýsti yfir stuðningi við umsókn Íslands að Evrópusambandinu á formlegum fundi sem hún átti með Össurri Skarphéðinssyni, utanríkisráðherra Íslands, á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. 24.9.2011 16:15
Bíll slökkviliðsstjóra notaður í útkall Jón Guðlaugsson, slökkviliðsstjóri brunavarna Suðurnesja, segir að í gærkvöldi og í nótt hafi allir sjúkrabílar slökkviliðsins verið samtímis í útköllum. 24.9.2011 15:32
Fangaverðir styðja lögreglumenn Fangavarðafélag Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af öryggi og launakjörum öryggisstétta. Þetta kemur fram í ályktun sem félagið sendi frá sér eftir hádegi í dag. Félagið segist styðja réttmætar launakröfur Landssambands lögreglumanna og harmar niðurstöðu gerðardóms um laun þeirra. 24.9.2011 14:50
Gunnar Nelson vann Evrópumeistarann Bardagakappinn Gunnar Nelson vann Evrópumeistarann, Marko Helen, í sinni fyrstu glímu á ADCC-mótinu, sem er sterkasta uppgjafaglímumót í heimi, í Nottingham á Englandi í dag. Gunnar var með yfirhöndina nánst alla glímuna og vann evrópumeistarann 5-0 eftir tvær framlengingar. 24.9.2011 13:40
Biðla til þjóðarinnar að mótmæla friðsamlega Formaður landssamband lögreglumanna biðlar til þjóðarinnar að ætli fólk að mótmæla við setningu Alþingis laugardaginn fyrsta október, geri það það friðsamlega. "Það erum við sem stöndum innan við línurnar og þurfum að verja það sem þar er," segir formaðurinn. 24.9.2011 12:04
Lögreglumenn afar ósáttir við kjaraúrskurð Megn óánægja er í stétt lögreglumanna eftir úrskurð gerðardóms í gær. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að laun lögreglumanna skyldu hækka að sama marki og samningar á almennum vinnumarkaði, auk þrettán þúsund króna hækkunar á álagsgreiðslum. Það er talsvert undir kröfum lögreglumanna. 24.9.2011 10:00
Rennihurð frá IKEA innkölluð - viðskiptavinur skar sig IKEA biður viðskiptavini sem eiga ELGÅ skáp með FENSTAD rennihurð með spegli frá framleiðanda nr. 12650 að hafa samband við þjónustuver verslunarinnar til þess að fá nýja hurð. 24.9.2011 10:00
Enn finnst listería í graflaxi Ópal sjávarfang ehf. hefur ákveðið að taka graflax af markaði eftir að listeria monocytogenes greindist yfir viðmiðunarmörkum við lok líftíma vörunnar. 24.9.2011 09:30
Dópaður undir stýri í Borgarnesi Karlmaður á þrítugsaldri var stöðvaður í Borgarnesi í nótt grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Lögregla fann hálft gramm af kannabis í bíl hans og var það gert upptækt. 24.9.2011 09:27
Hagnaðurinn meiri á Íslandi Hagnaður íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja er meiri en hagnaður fyrirtækja í geiranum í Noregi. Þetta má að einhverjum hluta rekja til fyrirkomulags fiskveiða hér á landi, segir í samantekt norsks sérfræðings. 24.9.2011 08:00
Katla er framúrskarandi jarðvangur Náttúra Kötlu hefur verið bætt á lista Sameinuðu þjóðanna yfir framúrskarandi jarðvanga í heiminum. UNESCO, Mennta-, menningar- og vísindastofnun Sameinuðu þjóðanna, barst sextán umsóknir um sæti á listanum og samþykkti níu þeirra. Nú eru 87 staðir í 27 löndum á listanum. 24.9.2011 07:00
Hægt að spara mikið með skipum úr trefjaplasti Íslenskar útgerðir gætu sparað stórfé í eldsneytis- og viðhaldskostnað með því að smíða skip sín úr trefjaplasti í stað stáls. Þetta segir Andri Þór Gunnarsson hjá fyrirtækinu Infuse, sem ásamt fyrirtækinu Ausus framleiðir efni í trefjabáta. Fyrirtækin eru meðal þeirra sem kynna hugmyndir sínar á Sjávarútvegssýningunni í Smáranum um þessar mundir. 24.9.2011 06:00
Skoða brask með gjaldeyri og afleiður Auk þess að hafa til rannsóknar fimmtíu skattaskjólsmál hefur embætti skattrannsóknarstjóra einnig til rannsóknar mál nokkurra tuga manna sem hagnast hafa á afleiðuviðskiptum og gjaldeyrisbraski hér á landi. 24.9.2011 04:00
Risaskattaskuldir ógreiddar Embætti skattrannsóknarstjóra telur að í tveimur af þeim tæplega 50 skattaskjólsmálum, sem eru til rannsóknar, hafi ekki verið greiddur skattur af milljörðum króna. Gunnar Thorberg, forstöðumaður rannsóknasviðs Skattrannsóknarstjóra, segir mismunandi hvernig skattleggja á vegna skattaskjólsmálanna. 24.9.2011 03:15
Íslendingur braust inn í tölvu hjá blaðamanni Independent Smári McCarthy, íslenskur samstarfsmaður Julians Assange, stofnanda WikiLeaks, braust inn í tölvu hjá blaðamanni á blaðinu Independent í fyrra. 23.9.2011 21:37
Unnið að friðlýsingu Látrabjargs og Rauðasands Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra kynnti í morgun í ríkisstjórn samstarf sem hafið er við bæjarstjórn Vesturbyggðar um að vinna að friðlýsingu Látrabjargs og Rauðasands. Svæðið hefur frá upphafi náttúruverndaráætlunar verið tilgreint sem eitt af þeim svæðum sem mikilvægt er að vernda sem friðland eða þjóðgarð. 23.9.2011 20:47
Björg er nýr formaður Persónuverndar Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur skipað Björgu Thorarensen, lagaprófessor við lagadeild Háskóla Íslands, nýjan formann stjórnar Persónuverndar. Björg verður annar formaður stjórnarinnar og tekur við af Páli Hreinssyni, hæstaréttardómara, en hann hefur tekið við starfi dómara hjá EFTA-dómstólnum í Lúxemborg. Páll hefur setið sem formaður stjórnar Persónuverndar frá upphafi eða árinu 2000. Páll var áður formaður tölvunefndar frá árinu 1999. 23.9.2011 20:20
Minntist fórnarlamba hryðjuverkanna í Útey Guðrún Jóna Jónsdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, minntist fórnarlamba hryðjuverkanna í Útey og í Osló þann 22. júlí síðastliðinn þegar landsþing Ungra jafnaðarmanna var sett í dag. Fórnarlömbin voru flest úr AUF, sem eru systursamtök Ungra jafnaðarmanna. 23.9.2011 19:33
Hefur heimsótt Ísland 25 sinnum á fjórum árum Breskur ferðamaður sem hefur heimsótt Ísland tuttugu og fimm sinnum á síðustu fjórum árum varar Íslendinga við því að ráðast í of miklar framkvæmdir á hálendinu. Hann er nú mættur hingað til lands, ásamt fjölskyldu og vinum. Höskuldur Kári Schram hitti á þennan íslandsvin. 23.9.2011 19:02
Ungur drengur sat fastur í tré Ungur drengur lenti í vandræðum nýlega þegar hann klifraði upp í tré á leiksvæði við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Ferðin upp gekk vel en þegar halda átti aftur niður á jörðina vandaðist málið. Stráksi sat því fastur í trénu og þurfti að kalla til lögreglu og slökkvilið. Körfubíll var notaður til að ná drengnum niður. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni gekk það fljótt fyrir sig og ofurhuganum varð ekki meint af. 23.9.2011 18:48
Þungt hljóð í lögreglumönnum "Hljóðið í okkur er þung, mjög þungt," segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, en gerðardómur kvað upp dóm sinn í kjaradeilu lögreglumanna við ríkið í dag. 23.9.2011 18:05
Fjöldi skjálfta við Hellisheiðavirkjun Fjöldi skjálfta hefur mælst við Hellisheiðarvirkjun eftir hádegi í dag. Stærsti skjálftinn að stærð 3,4 varð klukkan 15:22. Hann fannst vel í Hveragerði, Mosfellsbæ og víðar. Eftir því sem Vísir kemst næst er ástæða skjálftanna sú að Orkuveita Reykjavíkur hefur verið að dæla niður vatni í nýja borholu á svæðinu. 23.9.2011 16:57
20 árekstrar á höfuðborgarsvæðinu í dag Hátt í tuttugu árekstrar urðu á höfuðborgarsvæðinu í dag samkvæmt upplýsingum frá árekstur.is. Þannig varð þriggja bíla árekstur í morgun á Kringlumýrabrautinni. Einn bíll var óökufær eftir óhappið. 23.9.2011 16:23
Niðurstöður kynntar fyrir lögreglumönnum Niðurstaða gerðadóms hefur verið kynnt forsvarsmönnum Landssamband lögreglumanna. Hátt í hundrað lögreglumenn voru fyrir utan gerðadóm þegar niðurstaðan var kynnt. 23.9.2011 16:17
Lögreglumenn sitja um gerðadóm Tugi lögreglumanna eru fyrir utan húsnæði gerðadóms þar sem niðurstöður dómsins verður kynntur fyrir fulltrúum Landssambands lögreglumanna og fulltrúum ríkisins vegna kjarabaráttu lögreglumanna. 23.9.2011 16:09
Úrskurðuð í gæsluvarðhald fyrir að stinga karlmann á sjötugsaldri Kona á sextugsaldri hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 30. september að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. 23.9.2011 15:55
Salmonella Enteritidis greinist í fyrsta skiptið í búfénaði hérlendis Salmonella Enteritidis greindist í stoksýni sem tekið var af svínaskrokki. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi tegund salmonellu greinist í búfé hérlendis samkvæmt tilkynningu á heimasíðu Matvælastofnunnar. 23.9.2011 14:09
Er með meðvitund og verður útskrifaður af gjörgæslu í dag Líðan mannsins sem var stunginn nokkrum sinnum í kvið og handlegg í Kópavogi síðdegis í gær er stöðug. Samkvæmt upplýsingum læknis á gjörgæslu Landspítalans verður hann útskrifaður af gjörgæslu og sendur á almenna deild síðar í dag. Maðurinn er með fulla meðvitund. 23.9.2011 14:08
Stálu bíl og fóru í ferðalag Tveir ungir menn stálu bíl í Kópavogi í gærmorgun. Í framhaldinu fóru þeir á bensínstöð, stálu þar eldsneyti og lögðu svo upp í langferð sem lauk á Norðurlandi nokkrum klukkutímum síðar. 23.9.2011 13:44
Varðskipið Þór afhent í dag Varðskipið Þór verður í dag afhent Landhelgisgæslunni við hátíðlega athöfn í Chile. Skipið leggur úr höfn á þriðjudag og kemur til landsins eftir rúman mánuð en áhöfnin áætlar að nýta siglingartímann til að læra á búnaðinn um borð. 23.9.2011 13:15
Kviknaði í potti á eldavél Slökkviliðið átti ekki í miklum vandræðum með að ráða niðurlögum elds sem tilkynnt var um í Skipasundi nú rétt fyrir klukkan eitt. Eldurinn hafði kviknað í potti sem skilinn hafði verið eftir á eldavél og náði eldurinn ekki að breiðast út um íbúðina. 23.9.2011 13:06
Eldur í kjallara í Skipasundi Slökkviliðið er nú á leið í Skipasund 1 í Reykjavík þar sem eldur kom upp í kjallara. Tveir bílar eru á leið á staðinn. Ekki er ljóst hvort um mikinn eld sé að ræða á þessari stundu. 23.9.2011 12:49
Katla á lista Sameinuðu þjóðanna Katla hefur verið valin á sérstakan lista Sameinuðu þjóðanna yfir framúrskarandi jarðvanga í heiminum. 23.9.2011 12:12
Krefjast gæsluvarðhalds yfir konunni sem grunuð er um hnífaárás Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir konunni sem talin er hafa stungið sambýlismann sinn í Kópavogi í gær. 23.9.2011 11:59
110 prósent leiðin of flókin - afstaða Lýsingar illskiljanleg 110 prósent úrræðið var útfært of þröngt og hefði mátt vera einfaldara og þar með fljótlegra í framkvæmd. Úrræðið fór seint af stað og var ekkert auglýst í byrjun. Þetta er meðal annars mat eftirlitsnefndar til efnahags- og viðskiptaráðherra um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins. 23.9.2011 11:18
Brennisteinslykt fannst við Múlakvísl í morgun Megn brennisteinslykt fannst við Múlakvísl í morgun og segir Jónas Erlendsson, bóndi í Fagradal, að hann hafi fundið lyktina fyrst um sex leytið í morgun og því áður en skjálftin reið yfir en skjálfti, um tveir komma átta á ríkter, varð í Kötlu í morgun. Jónas segir að hann hafi fundið lyktina öðru hverju undanfarin ár og að það sé algengara að hún blossi upp á haustin. Menn setji þó fyrirvara við lyktina þegar hún komi samfara jarðskjálfta á svæðinu. Jónas segir engan vöxt í Múlakvíslinni, einungis sé um venjulegt haustvatn sé að ræða. 23.9.2011 10:29
Skar sig á IKEA spegli - varan innkölluð Ikea hefur innkallað ELGÅ skáp með FENSTAD rennihurð með spegli eftir að verslunin fékk tilkynningar um að spegillinn losnaði af hurðinni með þeim afleiðingum að hann brotnaði. Í einu tilviki skar viðskiptavinur sig eftir að spegillinn féll í gólfið og brotnaði. 23.9.2011 09:55
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent